blaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 12
12 I ERLENDAR FRÉTTXR FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 blaðiö Fjöldamótmæli i Súdan vegna viðræðna um ástandið í Darfur Reuters Mótmælendur f Karthoum, höfuðborg Súdans, brenna bandaríska fánann. Súdönsk stjórnvöld óttast að Sameinuðu þjóðirnar sendi friðargæslusveitir til Darfur-héraðs. að á aðra milljón manna hafa þurft að yfirgefa heimili sín og búa við þröngan kost í flóttamannabúðum. Mannréttindasamtök og alþjóðlegar hjálparstofnanir hafa gagnrýnt alþjóðasamfélagið fyrir að setja kí- kinn fyrir blinda augað þegar kemur að ástandinu í héraðinu. Fundurinn í Khartoum þykir benda til aukins vilja meðal áhrifa- mikilla ríkja til að grípa inn í ástandið. <millifs>Hóta úrsögn úr Afríkubandalaginu Súdönsk stjórnvöld eru á móti því að Sameinuðu þjóðirnar taki við friðargæslu í Darfur og hafa hótað að segja sig úr Afrikubanda- laginu verði raunin sú. Þrátt fyrir frumkvæði Evrópusambandsins er ekki tryggt að samstaða náist innan öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að senda friðargæslulið til Dar- fur. Kínverjar, sem flytja mikið af olíu inn frá Súdan, hafa lýst sig mót- fallna inngripum Sameinuðu þjóð- anna í héraðinu. mbl.is | Þrír drengir, 6, 9 og 10 ára gamlir, brunnu inni þegar eldur kviknaði í húsi við Ravnsoyargotu í Þórshöfn á þriðjudagskvöld. Tveir yngri drengirnir voru bræður en sá þriðji var gestkom- _____ andi í húsinu. Þeir létust allir af völdum reykeitrunar, að sögn fær- eyska útvarpsins. Von er á sérfræðingum frá Dan- mörku til að rannsaka upptök elds- ins, sem kviknaði í eldhúsi. Haft er eftir lögreglu, að ekki sé grunur um að kveikt ^ hafi verið í af •teík. ásettu ráði. Y^h/////<?/ EMR 429AM 18719" Ý^-í/////í<?/ EMR310C 17"/l8" \ //-^////'/fc’/' )348BM / i8" Hiólbarðahöllin Gúmmívinnustofan Fellsmúla 24-108 Reykjavík Réttarhálsi 2 110 Reykjavík 530 5700 587 5588 www.hollin.iswww.gvs.is Þúsundir mótmælenda flykktust út á götur Khartoum, höfuð- borgar Súdans í gær, til þess að mótmæla fyrirætlunum Samein- uðu þjóðanna um að taka yfir friðargæslu í hinu stríðshrjáða Darfur-héraði í vesturhluta lands- ins. Mótmælin fóru fram á sama tíma og fuUtrúar Evrópusam- bandsins, Sameinuðu þjóðanna og Afríkubandalagsins funduðu með súdönskum stjórnvöldum í borginni. Héldu mótmælendur á skiltum sem á stóð að vilji Samein- uðu þjóðirnar senda friðargæslu- liða til Darfur ættu þeir að taka líkkisturnar með. Fundurinn er haldinn að frum- kvæði Javier Solana, utanríkismál- stjóra ESB, sem hefur lýst þvi yfir fyrir hönd sambandsins að knýjandi þörf sé á því að stilla til friðar í Dar- fur-héraði. Vaxandi vilji er á meðal vestrænna ríkja að friðargæslusveitir á vegum Sameinuðu þjóðanna taki við af sjö þúsund manna liði Afríku- bandalagsins í héraðinu. En það fé sem Afríkubandalagið setti á sínum tíma í verkefnið verður brátt upp- urið. Friðargæslusveitir á vegum SÞ yrðu fjölmennari og hefðu ríkara umboð frá alþjóðasamfélaginu til þess að stilla til friðar í þessu stríðs- hrjáða héraði. Hörmulegt ástand ríkir í Darfur og hafa tugþúsundir manna verið drepnar í þjóðernisátökum á milli arabískra vígamanna, sem eru studdir af ríkisstjórn landsins, og annarra kynþátta sem búa í hérað- inu. Ofbeldið hefur orðið til þess Þrír drengir brunnu inni í Færeyjum TÖLVUNAM Byrjendanámskeið Vinsælt námskeið á sérlega hagstæðu verði ætlað byrjendum í tölvunotkun á öllum aldri. Allar greinar eru kenndarfrá grunni og farið rólega í námsefnið með miklum endurtekningum. Á þessu námskeiði er allt tekið fyrir sem byrjandinn þarf til að komast vel af stað og öðlast sjálfsöryggi við tölvuna. • Windows tölvugrunnur • Word ritvinnsla • Excel kynning • Internetið og tölvupóstur Kennt er á mánudögum og miðvikudögum. Hægt að velja um morgunnámskeið kl 9 -12 og kvöldnámskeið kl 18 - 21. Lengd: 60 std. Kennsla hefst 13. mars og lýkur 8. maí (Páskafrí frá 6. til 19. apríl). Verð kr. 36.000,- (Allt kennsluefni innifalið) Almennt tölvunám Sérstaklega hagnýtt og markvisst námskeið ætlað þeim sem hafa einhvern tölvugrunn að byggja á eða hafa reynslu af tölvuvinnu en vilja auka við þekkingu sína, hraða og færni. Mikið lagt uppúr vinnusparandi aðgerðum í tölvu. • Windows XP og skjalvarsla • Word • Excel • Internet • Outlook tölvupóstur og dagbók Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum. Hægt að velja um morgunnámskeið kl 9 -12 og kvöldnámskeið kl 18-21. Lengd: 63 std. Kennsla hefst 16. mars og lýkur 9. maí. (Páskafrl frá 7. til 17. apríl) Verð kr. 39.900,- (Allt kennsluefni innifalið) Faxafen 10 « 108 Reykjavik » Simi: 544 2210 » www.tsk.is » skoli@tsk.is Varaó við borgarastyrjöld í Irak í kjölfar stigvaxandi ofbeldis (raskur maður aðstoðar samborgara sfna viö koma bfl af vettvangi eftir að sprengja sprakk við vegarkannt f Bagdag ímiðvikudag. Óttast er að borgaraatrfð milli trúarhópa sé yfirvofandi f landinu. Átján menn sem höfðu verið hengdir eða skotnir fundust í litlum flutningabíl í hverfi súnn- íta í Bagdag í gær. Líkin báru merki um að mennirnir hefðu verið pyntaðir. Líkfundurinn er talinn benda til þess að ástandið í landinu fari hríðversnandi og borgarastyrjöld kunni að vofa yfir. Svipaðir fundir hafa aukið á spennu á milli trúarhópa í landinu. Hrottalegar pyntingar og aftökur eru teknar að einkenna ofbeldið á milli súnníta og sjíta-múslima í kjölfar þess að helgistaður sjíta í Samarra var sprengdur í loft upp í síðasta mánuði. Trúarhóparnir tveir reyna að ögra hvor öðrum með því að skilja illa farin lík eftir í hverfum hvors annars. Bandaríski sendiherrann varar við afleiðingum borgarastríðs Óttast er að stigvaxandi ofbeldi í landinu verði til þess að borgara- stríð brjótist út á milli trúarhópa. Sendiherra Bandarikjanna, Zalmay Kahlilzad, í Irak lýsti því yfir í gær í viðtali við bandaríska dagblaðið Los Angeles Times að Bandaríkjamenn ættu ekki annarra úrræða völ en að vera með öflugan her áfram i land- inu til þess að koma í veg fýrir að upp úr sjóði. Kahlilzad sagði ennfremur að uppreisnarmenn reyndu á með- vitaðan hátt að draga landsmenn út í fen borgarastyrjaldar og lykillinn að stöðugleika í írak væri að sam- komulag myndi nást um skipun nýrrar ríkisstjórnar. Þráteflið um hver verður forsætisráðherra lands- ins kemur í veg fyrir að lögmætt stjórnvald geti brúað þá gjá sem hefur myndast á milli trúarhópa í landinu. Takist það ekki verða afleið- ingar valdatöku talíbana-stjórnar- innar í Afganistan barnaleikur einn miðað við afleiðingar borgarastríðs í írak, að mati Kahlilsad. Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, telur að borg- arastyrjöld ríki ekki í Irak og að vestrænir fjölmiðlar máli of dökka mynd af ástandinu. Þrátt fyrir það viðurkennir hann að hætta á borg- arastríði sé til staðar. Á fundi með blaðamönnum í gær varaði hann ennfremur stjórnvöld í Teheran við að skipta sér af ástandinu í frak, en Bandaríkjamönnum hafa borist njósnir um að íranir hafi sent lið til þess að taka þátt í átökunum yfir landamærin.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.