blaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 30
30 I ÍPRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 blaðið
SKYNDIPRÓFIÐ
Barcelona
1. Hvað heitir knattspyrnu-
stjóri Barcelona?
2. Hvernig er varabúningur
liðsins á litinn?
3. Hver leikur í treyju númer 7
hjá Barcelona?
4. Hvaða enski knattspyrnu-
stjóri stýrði liðinu á árunum
1996-1997?
5. Hver skoraði sigurmark
Börsunga gegn Sampdoria,
þegar liðið varð síðast Evr-
ópumeistari árið 1992?
ueuiao)| pieuoy ’S 'uosqoy Aqqog fr 'uossjeq )|!JuaH £
'jnxnqjjnjs jejjeAS qia jnfÁojj je|nt) z 'pjeejifjy )|uejj ’i
■ Utan vallar með Daða Lárussyni, markverði FH
Sárt að lenda í 30. sæti á
Andrésar andar leikunum
Fæðingardagur og ár?
I9.júní 1973
Besta bíómynd?
Scarface
Besta bók?
101 Reykjavík eftir Hallgrím Helga.
Besta hljómsveit/tónlistarmaður?
Guns N‘ Roses
Besti matur?
Grillaður humar með öllu
tilheyrandi.
Hvað gleður þig mest?
Sonur minn þegar hann er með ein-
LENGJAN
LEIKIR DAGSINS
Spilaðu á næsta sölustað eða á lengjan.is
Leitarvélin tengir
Ashley Cole sterklega
Bakvörður Arsenal, Ashley Cole,
á ekki sjö dagana saela um þessar
mundir en auk þess að glíma við
þrálát meiðsli glímir hann við enn
þrálátari orðróm um að hann sé
samkynhneigður. Lögmaður Co-
les hefur nú krafist þess að fá að
vita hvers vegna leitarvélin Google
vísar fólki á síður tengdar skjól-
stæðingi sínum þegar netnotendur
fletta upp orðinu „gay“ (samkyn-
hneigð/ur). Þá krafðist hann enn
fremur skýringa á því hvers vegna
leitarvélin gæfi möguleika á því að
sjá niðurstöður „Ashley Cole gay“
þegar fólk skrifaði einungis nafn
knattspyrnumannsins.
Bakvörðurinn knái hefur þegar
höfðað meiðyrðamál gegn dag-
blöðunum News of the World og
The Sun sem birtu greinar þar
sem því var haldið fram að Cole
væri hommi og hefði átt sam-
neyti við ónefnda leikmenn ensku
úrvalsdeildarinnar.
Sviðsett ástarsamband?
Ekki er vitað hvort ástæðan fyrir
tengingunni sé að svo mikill fjöldi
fólks hafi leitað að orðinu „As-
hley Cole gay“ eða að ritstjórar
Google hafi sjálfir ákveðið að
stinga upp á valmöguleikanum
„gay“ í tengslum við nafnið.„Ég hef
áhuga á því að komast að því hvort
ákvörðunin var tekin af umsjónar-
nafn bakvarðarins
við leitarorðið y,gay“
Ashley Cole:„Ég er ekki hommi!"
mönnum Google eða hvort þetta
gerðist sjálfkrafa í tölvu,“ sagði
Graham Shear, lögmaður kappans.
„Þá vil ég einnig vita hvort þetta
gerðist áður eða eftir að við höfð-
uðum málin gegn dagblöðunum
tveimur."
Shear og Cole hafa verið ötulir
í að reyna að kveða niður sögu-
sagnir um samkynhneigð þess síð-
arnefnda sem hafa gengið fjöllum
hærra undanfarnar vikur. Er því
einnig haldið fram af mörgum að
stjörnusamband hans og hinnar
þokkafullusöngkonuhljómsveitar-
innar Girls Aloud, Cheryl Tweedy,
sé sviðsett fyrir fjölmiðla.
Google segir Ashley
Cole vera homma
Denizlispor - Samsunspor
Palermo - Schalke
Steaua Búkarest - Betis
FC Midtjylland - Lyn
Lille - Sevilla
Rapid Búkarest - Hamburger
Keflavlk - UMFN
Basel - Strasbourg
Hammarby - FC Köbenhavn
Lilleström - Cautaborg
VSIerenga - Djurgirden
Udinese - Levski Sofia
Dundee FC - Hamilton
Marseilie - Zenit StPetersburg
Middlesbro - Roma
Tigres UANL - Corinthians
Independiente - Estudiantes
2,90 3,35
2,65 2,60
2,75 2,80
2,90 3,35
2,65 2,60
2,60 2,20
7,65 1,75
2,80 3,00
2,60 2,35
2,70 2,75
2,70 2,65
3,35 4,75
2,70 2,65
3,00 3,70
2,60 2,20
2,65 2,60
2,75 2,80
1,65
2,05
1,90
1,65
2,05
2,45
1,60
1,80
2,30
1,95
2,00
1,35
2,00
1,55
2,45
2,05
1,90
hvers konar gjörning á stofugólfinu
sem á að kallast dans.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Þrálát meiðsli og íslensk veðrátta.
Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú varst barn?
Kokkur
Mestu vonbrigðin á
íþróttaferlinum?
30. sæti í svigi á Andrésar andar leik-
unum 1986.
Mesta afrek innan vallar og utan?
Varð faðir og íslandsmeistari með
nokkura daga millibili og hvort
tveggja í fyrsta skipti. Það verða að
teljast mín mestu afrek.
Uppáhalds lið í enska boltanum?
Manchester United
Uppáhalds íþróttamaður
fyrr og síðar?
Jón Páll Sigmarsson
Ef þú þyrftir að skipta um
íþrótt, hvað yrði fyrir valinu?
Skíðaíþróttin yrði fyrir valinu ef það
væri þá hægt að stunda hana hér af
einhverju viti.
íslandsmeistaratitill eða
1. vinningur ílottói?
íslandsmeistaratitill verður ekki
metinn til fjár.
Hvaða persónu vildirðu helst
lokast inni í lyftu með?
Baldri Bett. Hann vann við lyftuvið-
gerðir þannig að hann ætti að geta
losað okkur úr prísundinni.
Hvaða dýri finnst þér
þú helst líkjast?
Fyrir tíu árum líktist ég bleikum fíl,
en núna líkist ég bara fíl.
Hvert myndirðu fara ef
þú ættir tímavél?
Aftur um hálfan sólarhring og aftur
uppí rúm zzzzzzz...
Hvað myndi bíómyndin um þig
heita og hver ætti að leika þig?
„The return of the pink elephant."
Hulk Hogan mundi fá heiðurinn
enda álíka bleikur og söguhetjan.
Hvernig myndi einkamála-
auglýsingin þín hljóma?
Ég veit það ekki.
Hver er tilgangur lífsins?
Að láta sér líða vel.
Hver viltu að lokaspurningin sé og
hvernig myndirðu svara henni?
Síðast þegar ég var spurður um til-
gang lífsins var næsta spurning á
eftir hvort ég svæfi með bangsa og
svarið er ennþá nei.
„Láttu Ronaldinho vera"
Frank Rijkaard sendir Abramovich tóninn
Frank Rijkaard, stjóri Barcelona,
notaði tækifærið eftir Evrópuleik
liðsins við Chelsea á þriðjudag og
sendi Roman Abramovich, eiganda
Chelsea, skýr skilaboð um að pen-
ingafjöll hans myndu ekki lokka
Ronaldinho til Chelsea. Hinn 25 ára
gamli Ronaldinho skoraði mark
Börsunga í leiknum, sem endaði 1-1
og tryggði Börsungum farseðilinn í
fjórðungsúrslitin.
„Ronaldinho er mjög ánægður í
Barcelona. Hér á hann svo mikið af
vinum og það elska hann allir. Pen-
ingar eru ekki það sem skiptir hann
mestu máli,“ sagði Rijkaard við fjöl-
miðla eftir leikinn. Barcelona greiddi
Paris St. Germain andvirði 21 milljón
punda fyrir Brasilíumanninn árið
2003 og hefur hann síðan verið
þyngdar sinnar virði í gulli. Kata-
lóníumenn urðu Spánarmeistarar
í fyrra eftir sex ára bið og eru um
þessar mundir með 10 stiga forskot í
deildinni.
Verðmiðinn 85 milljónir punda
1 samningi Ronaldinhos er ákvæði
um að hann megi fara sé eitthvað lið
tilbúið að greiða fyrir hann andvirði
85 milljóna punda, eða rúma 10 millj-
Ronaldinho leikur sér að Lampard og Terry.
arða íslenskra króna. Margir telja að
auðjöfurinn Abramovich muni ekki
víla fýrir sér að punga út þeirri upp-
hæð fyrir að fá besta leikmann heims
í raðir Chelsea.
Rijkaard hélt hins vegar áfram:
„Ronnie hefur engan áhuga á Chelsea.
Hann vill halda áfram að leggja sitt
af mörkum til Barcelona sem getur
náð í hæstu hæðir knattspyrnunnar."
bjorn@bladid.net
Skeytín inn
Enski landsliðsfyrirliðinn
David Beckham segist
ekki
hafa áhuga
á að verða
knattspyrnu-
stjóri þegar
knattspyrnu-
ferlinum
lýkur. „Það
hefur
einfaldlega
aldrei heillað mig og ég hef ekki
áhuga á því,“ sagði Beckham en
tók fram að hann nyti þess þó
að spila sjálfur.
Hinn þrítugi Beckham
segist fremur vilja snúa sér
að barna- og unglingaþjálfun
og eyða meiri tíma með íjöl-
skyldunni. Þá vilji hann sinna
hlutverki sínu sem sendifull-
trúi Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna af meiri kostgæfni.
1 sraelski landsliðsfyrirliðinn
Idan Tal hefur samþykkt
I að ganga til liðs við Bolton
frá Maccabi
Haifa í
sumar. Stjóri
Bolton, Sam
Allerdyce,
hefur þegar
hafist handa
við að styrkja
lið sitt fyrir næsta tímabil og
sagði hann Tal vera mikilvægan
þátt í því að efla miðjuna. Tal,
sem er þrítugur, lék áður með
Everton en yfirgaf Goodison
Park árið 2002 eftir misheppn-
aða dvöl.
Manchester City hefur
boðið stjóranum Stu-
art Pearce
að skrifa
formlega
undir
tveggja ára
samning
við liðið.
Samning-
urinn er
sagður færa Pearce rúmar 100
milljónir íslenskra króna í
vasann á ári. Hingað til hefur
Pearce starfað samkvæmt heið-
ursmannasamkomulagi sem
hann gerði við John Wardle,
stjórnarformann City.
Stuart Pearce tók við Manc-
hester City fyrir réttu ári og
hefur náð stórgóðum árangri
með liðið sem nú eygir von
um að ná sæti í Evrópukeppni
félagsliða fyrir næsta tímabil.
HM innanhúss í frjálsum
íþróttum hefst í
Moskvu á morgun og
stendur fram
á sunnudag.
íslendingar
eiga einn
fulltrúa á mót-
inu en það er
Björn Marg-
eirssonúr FH
sem keppir í
1500 metra hlaupi. Björn hefur
hlaupið best á 3:48,00 mínútum
á þessu ári en besti árangur
hans í greininni er 3:47,84 frá
árinu 2004, rúmum tveimur
sekúndum frá íslandsmetinu.
Björn hefur verið við æfingar
í Gautaborg, þar sem hann er
búsettur og stundar framhalds-
nám í verkfræði.