blaðið - 09.03.2006, Síða 16

blaðið - 09.03.2006, Síða 16
Stjórnmálalíf Eftir Þórunni Sveinbjarnardóttur ÍARS 2006 bla6ið Hvern á nú að setja á skotskífuna? Framsóknar- skútan missti mannfyrirborð umhelgina. Það verða að teljast nokkur tíðindi þótt Framsókn hafi áður séð að baki erfða- prinsi með líkum hætti. Mig grunar að Flalldór Ásgríms- son sé ekki glaður í dag þótt hann reyni að bera sig karlmannlega. Formaður Framsóknarflokksins hefur á liðnum árum leitt tvo karla fram á stjórnmálasviðið svo að eftir hefur verið tekið. Árni Magnússon var settur í framboð í Reykjavík- norður og Björn Ingi Hrafnsson í Reykjavík-suður í alþingiskosning- unum 2003. Engum duldist að hér voru komnir frambjóðendur þókn- anlegir formanni flokksins. Árna gerði hann samstundis að ráðherra og tróð konum í flokknum um tær með eftirminnilegum hætti. Björn Ingi, aðstoðarmaður, var svo gerður að borgarstjórnarkandídat þegar fundin var sporsla við hæfi fyrir Alfreð Þorsteinsson. f dag mælist Framsókn með næstum því ekkert fylgi í borginni og Árni Magnússon er hættur, farinn. Sjaldan launar kálfur ofeldið. Stjórnmálastörfum getur fylgt mikið áreiti og álag. Það vita al- þingis-ogsveitarstjórnamennogfjöl- skyldur þeirra. Samkeppni á milli manna er oft hörð. Prófkjör bjóða t.d. upp á óskemmtilega hörku í sam- skiptum flokkssystkina, stundum með ömurlegum afleiðingum fyrir flokka og fólkið í þeim. í stjórnmála- störfum reynir oft meira á úthald og þolgæði en hugsjónir og stefnufestu. Ekkert af því sem hér er tínt til gerir stjórnmálin neitt sérstaklega aðlað- andi. Hálfgert skítadjobb, ekki satt? Jú, jú, ef maður einblínir á neikvæðu hliðarnar þá verður myndin ekki fal- leg en hún er að mínu viti heldur ekki rétt. Mörgum störfum fylgir mikið álag og áreiti. Flestu störf reyna á úthald og þolgæði. Og sums staðar, t.d. í efri lögum viðskipta- og fjár- málalífs, er hörð persónuleg sam- keppni á milli manna daglegt brauð. Það er kannski helst krafan um sýnileika og frammistöðu á opin- berum vettvangi - í þinginu, í fjöl- miðlum, á fundum og ráðstefnum - sem skilur starf stjórnmálamanns- ins frá öðrum. Þeirri kröfu fylgir tíðum álag og áreiti sem getur verið lýjandi. Það vill gleymast að starf í stjórn- málum, t.d. þingmennskan, gefur fólki einstakt tækifæri til þess að láta til sín taka á mörgum sviðum þjóðlífsins; að einbeita sér að mála- flokkum sem standa hjarta manns næst; að kynnast samfélaginu í raun upp á nýtt; að starfa með fólki úr öllum geirum samfélagsins að sameiginlegum verkefnum og mark- miðum. Þetta starf - sem að mestu fer fram utan þingsalarins - er kjarninn í starfi þingmannsins. Það sem gefur því mest gildi. Ég er þeirrar skoðunar að það sé í vissum skilningi forréttindi að starfa í stjórnmálum. í Bandaríkj- unum er talað um „public service" með jákvæðum hætti. Þar þykir það mikill kostur í fari manns (og á CV- inu hans) að hafa reynslu af störfum sem hafa það að markmiði að stuðla að almannaheill. Þingmennska er þar efst á lista en þátttaka í starfi foreldra- eða íþróttafélags er ekki síður talin mikilvæg í þessu sam- hengi. Ástæða þess að ég nefni þetta er að ég held að ímynd Islendinga af stjórnmálum endurspegli að ein- hverju leyti sjálfsmynd íslenskra stjórnmálamanna. Hún mætti vera betri. Það vill gleymast að trúnaður okkar er fyrst og fremst við kjós- endur þessa lands og stefnuna sem þeir veittu brautargengi með stuðn- ingi sínum. Sá trúnaður skiptir mestu. Á hann þarf að einblína en ekki „prjálið og poppið“ sem á til að verða fyrirferðarmest í umræðunni um lífið í íslenskum stjórnmálum. http://www.althingi.is/tsv/ Þórunn Sveinbjarnardóttir M7 ftPRÓ-AH AFRÓSKÓLI Sigrúnar Grendal Spennandi námskejð í dansi og trommuslæUi Gerðu líkamsræktina að þinni bestu skemmtun. Frábærirtímarfyrir síunga og aðeins yngri. Án gríns Afró er fyrir alla - líka þig! 4 vikna námskeið hefjast þriðjudaginn 14. mars Byrjunar- og framhaldshópar Innritun í síma 561 5100 Trommunámskeiðin hefjast laugardaginn 18.mars Kennslustaðir: Baðhúsið (afródans), Betrunarhúsið (trommur) Nánari upplýsingar; www.isf.is Netfang: missgrendal@hotmail.com Símar:8496554 (Sigrún), 6910772 (Cheick) ICELAND SPA A IITNISS Kennararnir Sigrún og Cheick hafa stundað langt og strangt nám (afródönsum og trommuslætti í Gineu, Vestur-Afríku. Þau hafa kennt afró um árabil og staðið fyrir ýmsum uppákomum bæði á Norðurlöndunum og í Afríku. SÖLUMENN ÓSKAST Blaðiö Bæjarlind 14-16 201 Kópavogur Vegna aukinna umsvifa óskar Blaðið eftir sölumönnum í fulla vinnu. Um er að ræða skemmtilegt starf hjá fyrirtæki í örum vexti með skemmtilegu fólki. Góðir tekjumöguleikar fyrir gott fólk. Umsóknir sendist á atvinna@vbl.is Eftir Björn Inga Hrafnsson Pólitík er skrítið fyrirbæri og býsna algengt að menn fari fram úr sjálfum sér í samsæris- kenningum og vangaveltum yfir ákvörðunum og tíðindum sem eiga sér jafnvel ofureðlilegar skýringar. Ágætt dæmi um þetta er það kapphlaup sem nú er hafið meðal fjölmiðlafólks ogýmissa annarra um leitina að nýjum erfða- prins Framsóknarflokksins. Borgarfulltrúi Framsóknarflokks- ins, sem hefur kosið að draga sig út úr borgarmálunum, lýsti því yfir í gær að eftir brotthvarf Árna Magnús- sonar væri komin upp sú óþægilega staða að ekki lægi ljóst fyrir hver væri eftirmaður Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra sem formanns flokksins. Ég veit ekki betur en Hall- dór hafi margoft lýst því yfir að hann sé ekki á förum úr stjórnmálum og veit heldur ekki betur en ýmsir aðrir í forystusveit flokksins hljóti að koma til álita til framtíðar, svo sem Guðni Ágústsson varaformaður, Siv Frið- leifsdóttir ritari ogþingflokksformað- urinn Hjálmar Árnason. Aukýmissa annarra í þingflokki framsóknar. Finnur Ingólfsson var uppnefndur krónprins í Framsóknarflokknum og við brotthvarf hans var ekki lítið gert úr því að arftakinn hefði hætt og um leið hófst leitin að nýjum erfðaprins. Þegar Árni Magnússon varð ráðherra var hann umsvifalaust útnefndur erfðaprins Framsóknar- flokksins, ekki síst af andstæðingum flokksins, sem vildu með því etja saman fólki og búa til ímyndaðar inn- anhússerjur um völd og áhrif. Og hvað gerist nú þegar Árni Magnússon lætur af störfum af per- sónulegum ástæðum? Láta menn þar við sitja? Aldeilis ekki. Umræðan um arftaka Halldórs er þegar hafin og í fjölmiðlum í gær og í dag hefur verið farið yfir sviðið og nefnd ýmis nöfn til sögunnar. Þar á meðal mitt. Þá er þvi til að svara að ég tilheyri ekki forystusveit Framsóknarflokks- ins, sit ekki á Alþingi og er að auki aðstoðarmaður formanns flokksins og styð hann auðvitað heilshugar í hans störfum, auk þess sem ég hlaut skýrt umboð frá flokksfólki og öðrum stuðningsmönnum minum til að leiða lista Framsóknarflokks- ins í komandi borgarstjórnarkosning- unum og mun einbeita mér að því spennandi og skemmtilega verkefni. Mér er ljóst að umræðan um vænt- anlegan arftaka er ekki sist til þess fallin að setja einhverp kandídat á skotskífuna svo hann geti orðið sam- eiginlegt skotmark sem flestra. Við framsóknarmenn eigum því ekki að taka þátt í slíkri umræðu; við eigum þrjá góða forystumenn sem bera ábyrgð á því að sigla skútunni farsæl- lega fram á veg. http://www.bjorningi.is/ Stígðu fram Óskar Bergsson Eftir Össur Skarphéðinsson Björn Ingi Hrafnsson, að- stoðarmaður for- sætisráðherra, grætur ekki átakanlega sárt á vefsíðu sinni yfir brottför Árna Magnús- sonar úr stjórn- málum. Það er þvert á móti ein- sog úr sálardjúpunum ómi eitthvað áþekkt hálfkæfðu andvarpi fjarlægs feginleika. Rokkarnir eru ekki þagnaðir. Þráð- urinn sem spunninn var úr þeli gær- dagsins er strax farinn að teygja sig inn í fréttamiðlana. Við sáum það í kvöld að á meðal þeirra sem nú eru reifaðir sem hugsanlegir formenn Framsóknar á eftir Halldóri Ás- grímssyni er...já einmitt, Björn Ingi Hrafnsson! Hvernig ætli Halldóri Ásgríms- syni líki það? Varla hefur það verið partur af ráðningarsamningi hinna ungu fjölmiðlainanna í Stjórnarráð- inu að ýta undir það hjá kollegum á fjölmiðlunum að Halldór sé kominn á síðasta snúning. Varla heldur að næsti formaður Framsóknarflokks- ins verði hugsanlega hans eigin aðstoðarmaður! Svo það getur ekki verið að þessi partur athyglisverðrar fréttar í RÚ V eigi sér nokkurt faðerni í grennd við Stjórnarráðið. Þetta er hættulegur spuni hjá stuðningsmönnum Björns Inga. Hann vantar enn nokkur prósent upp á að landsýn sé í baráttu hans fyrir að komast i borgarstjórn. Hann er með flokkinn i Reykjavík í upp- námi. Anna Kristinsdóttir borgarfull- trúi hefur sagt sig úr lögum við Björn Inga sem kollvarpaði henni - og það eina sem þau eru sammála um síð- ustu dægrin er að það hafi verið áfall fyrir Framsókn að missa Árna Magn- ússon úr stjórnmálum. Þar hafa þau rétt fyrir sér. Það síðasta sem aðstoðarmaður for- sætisráðherra þarf er vottur af grun hjá kjósendum um að hann stefni á önnur mið en borgarstjórn. Ég held hins vegar að í brúnni í Stjórnarráð- inu séu mehn farnir að undirbúa nýja siglingu. Það er engin tilviljun að Halldór Ásgrímsson - formaður í krappri stöðu - notaði ekki ferðina fyrst Árni fór og setti bæði Siv og Jónínu Bjartmarz inn í ríkisstjórn- ina. Tvær vaskar konur, sjóðandi af löngun. Báðar hæfar. Báðar búnar að vera í löngum þæfingi innan flokks við forystuna og það sem þær köll- uðu sjálfar drengjabandalagið. Mín spá er sú, að fyrir kosningar verði reynt að koma Jónínu í aðra bit- haga, veifa fyrir framan hana sendi- herrastöðu ef Geir er til í dansinn, hugsanlega öðru - og sjá hver niður- staðan verður þegar hún metur kosti sína. Björn Ingi er varamaður hennar. Hann skytist þá rakleiðis inn á þing fyrir kosningar, og ætti gjörunnið prófkjör fyrir höndum. Björn Ingi átti sömuleiðis briljant kosningabar- áttu og hver segir að hann gæti ekki velt Jónínu í prófkjöri til þings? Hún hlýtur að skoða þann möguleika ef boðið berst. Þegar stuðningsmenn Björns Inga ýta því að þjóðinni að hann hafi áhuga á öðru og stærra en borgar- stjórn Reykjavíkur - því það var inni- hald spunans í kvöld - þá eru þeir líka að segja um leið, að Björn Ingi ætli að hafa hratt á hæli og stoppa stutt í borgarstjórn - nái hann á annað borð kjöri. Það þýðir í reynd að í vor kjósa menn ekki um Björn Inga sem efsta mann á lista Framsóknar - heldur þann sem á eftir kemur. Stígðu fram, Óskar Bergsson. www.althingi.is/ossur

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.