blaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 38
38IFÓLK
FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 blaðið
ÍBÚÐAVERÐ OG
NEYSLUBRJÁLÆÐI
Smáborgarinn er svo ánægður með að vera
búinn að kaupa sér sína fyrstu íbúð en það
gerði hann fyrir nokkrum árum. Að sama
skapi dauðvorkennir hann ungu fólki sem
er að kaupa sína fyrstu íbúð í dag. Hvernig
fer fólk að þessu? Þetta neyslubrjálæði sem
hefur gripið landann er svo sannarlega
brjálæði í fyllstu merkingu þessa orðs. Það
er ekki nóg fyrir okkur að búa i einfaldri
íbúð, við þurfum alltaf að kaupa það allra
flottasta. Hver er tilgangurinn? Er tilgangur-
inn kannski sá að virðast rík á yfirborðinu, að
geta sýnt nágrannanum, vinunum og öllum
öðrum hvað allt er flott og fínt heima hjá
okkur. Hvað varð um götótta sófa, ókláraðar
innréttingar og hurðarlaus herbergi eins og
sást á mörgum heimilum fyrir 10-20 árum. I
dag verður allt að vera fullkomið og allt þarf
að klárast ekki seinna en í dag.
Smáborgarinn heyrði síðast í dag af íbúð
sem seldist í Vesturbæ Reykjavíkur og sú
íbúð fór á tæplega fimmtíu milljónir. Ósköp
venjuleg íbúð af eðlilegri stærð. Þegar Smá-
borgarinn ólst upp á sínu bernskuheimili var
alltaf eitthvað sem átti eftir að gera. Setja
eldhúsinnréttingu, setja baðherbergishurð,
bílskúrshurð, mála húsið og svo mætti lengi
telja. (þau 20 ár sem Smáborgarinn bjó á
bernskuheimili sínu var alltaf eitthvað ógert.
Þannig var það þar til foreldrar Smáborg-
arans seldu húsið. I húsinu sem foreldrar
Sméborgarans búa í núna er margt sem þarf
að gera. Eins er margt eftir ógert í húsi Smá-
borgarans. Það er bara eitthvað svo vinalegt
að hafa eitthvað óklárað. Hvað ætti Smáborg-
arinn annars að gera í tómstundum sínum
ef ekki þyrfti að lappa upp á svalahurðina,
geymsluna eðaannað.
En aftur að háu íbúðarverði sem hlýtur
að vera kvalræði fyrir unga neytendur. Þrátt
fyrirað íbúðalán séu aðgengilegri þá hlýtur
samt að vera erfitt fyrir ungt fólk aö fjár-
festa í sæmilegri íbúð. Ágætis blokkaríbúð
i úthverfi kostar kannski tæplega tuttugu
milljónir, svo ekki sé minnst á 101 Reykjavík.
Þegar Smáborgarinn keypti sína fyrstu íbúð
þá fjárfesti hann í lítilli og sætri íbúð i mið-
bæ Reykjavíkur. Það hentaði prýðilega þar
sem Smáborgarinn var einmitt í Háskóla
Islands á þeim tíma og því var stutt að fara.
Sú íbúð var í fjölbýlishúsi, um 50 fm að
stærð og ágætlega útiítandi að öllu leyti. Ja,
ágætlega útlítandi fyrir ungan háskólanema.
Smáborgarinn keypti þá íbúð á litlar 4 millj-
ónir. 4 milljónir! Hvað ætli sú ibúð færi á í
dag? Smáborgarinn seldi íbúðina aftur um
fimm árum síðar og þá græddi hann fjórar
milljónir á henni. Því má ætla að í dag færi
sama litla íbúðin á rúmlega 10 milljónir, jafn-
vel 12 milljónir ef hún lítur mjög vel út. Þetta
ernáttúrlega bara klikkun!
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Brynjólfur Sveinsson, þúsundkall
Hvernig líst þér á að leggja niður krónuna?
„Við fyrstu sýn virðist mér það afar óþjóðlegt að velta því fyrir sér að leggja
niður krónuna, en hún er svo sem ekkert heilög og íslendingar hafa notað
aðra gjaldmiðla gegnum tíðina, suma þjóðlega eins og vaðmál og aðra al-
þjóðlegri eins og gull og silfur. Hinsvegar eru sárafá rök fyrir því að leggja
niður sjálfstæða peningamálastefnu og tengjast þeirri sem er rekin af evr-
ópska-seðlabankanum. Að minnsta kosti myndi ég ekki öfunda ráðherra
þjóðarinnar að hafa hemil á þenslunni í hagkerfinu og húnsæðismarkaðn-
um ef að við byggjum við sama vaxtarstig og er á evru-svæðinu. Hvað evr-
una varðar þá er hún hið mesta þarfaþing og hefur reynst ágætlega við að
kenna kaþólskum mönnum suður í löndum lútherskar dyggðir við stjórn
peningamála."
Valgerður Sverrisdóttir hefur áhuga á að skoða hvort Islendingar geti gerst aðilar að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu og
taka þar með upp evruna.
Jackson gerir 300
armbeygjur á dag
Poppkóngurinn Michael Jackson lifir góðu lífi þessa dagana í Mið-Austurlöndum og er
víst allur að braggast eftir erfið réttarhöld síðustu ára.
Jackson hefur búið í konungsríkinu Bahrain, þar sem hann er sérstakur gestur sonar
konungsins, frá því hann var sýknaður af ákærum um misnotkun á börnum.
Bróðir Jacko, Jermaine Jackson, sagði nýlega í viðtali við Larry King að bróðir sinn
hefði það mjög gott: „Hann gerir 300 armbeygjur á dag og fullt af magaæfingum. Hann
hefur þyngst og er í frábæru forrni.*1
Jermaine sagði einnig að fjölskylda þeirra væri ánægð með lífið og gaf í skyn að ný
tónlist væri á leiðinni.
Nálgunarbann á Hilton
Sá furðulegi atburður átti sér stað í Los Angeles í vikunni að nálgunarbann var sett á
partíprinsessuna Paris Hilton. Það eru ekki fáir karlmenn sem hefðu ekkert á móti því
að hafa hana nálægt sér en ekki athafnarmaðurinn Brian Quintana. Hún verður að
halda sér í um 70 metra fjarlægð frá honum.
Quintana sagði Hilton hafa hótað sér líkamsmeiðingum eftir að hann sagði
kærasta hennar, Stavros Niarchos, að hætta að hitta Hilton. Talsmaður Hilton
sagði henni til varnar að hún vildi ekki sjá Quintana og væri ánægð með að
þurfa að halda sig frá honum.
í anda Hollywood var smátt letur í nálgunarbannssáttmálanum sem
sagði bannið geta gilt um aðeins nokkurra metra fjarlægð væru þau fyr-
ir tilviljun í sama samkvæmi. Guð blessi Hollywood!
Brown handtekinn
Vandræðagemlingurinn Bobby Brown var enn og aftur handtekinn um
helgina. Hann var þó ekki að lemja eiginkonu sína, Whitney Houston, né
nota eiturlyf eins og hann var þekktur fyrir í gamla daga heldur var hand-
takan samkvæmt gamalli ákæru vegna hraðaksturs á mótorhjóli frá árinu
1992.
Brown var handtekinn í bænum Webster í Massachusetts-fylki, þar sem
hann var mættur til að horfa á 13 ára dóttur sína á klappstýrumóti. Tim-
othy Bent, varðstjóri, sagði Brown hafa verið mjög samstarfsfúsan. Leyfði
hann Brown að horfa á keppnina og treysti honum meira að segja til að
keyra sjálfur á lögreglustöðina eftir keppnina.
Brown var í varðhaldi í klukkutíma en var látinn laus eftir að hafa greitt
sekt sína sem var 40 dalir, eða um 2400 krónur.
eftir Jim Unger
5-21
O Jim Unger/dlst Dy Unlted Medla. 2001
Ekki vera svona fúll. Hann er búinn að bíða eft-
ir að þú reyktir hann í allan dag, litla skinnið.
HEYRST HEFUR...
Spjallborðið Málefnin (www.
malefnin.com) var opnað
aftur eftir hlé,
sem gert var
þegar þar var
birt slóð, sem
lá að meint-
um tölvupósti
Jónínu Bene-
diktsdóttur,
sem Baug-
smiðlarnir gerðu sér mat úr um
árið. Adam var þó ekki lengi í
Paradís, þar sem bilun virtist
hafa komið upp í gagnagrunni
vefjarins, þó ýmsir vænisjúk-
lingar netsins virðist hafa talið
meira að baki. í þessu máli öllu
er þó athyglivert að á spjallþráð-
um vefjarins Barnaland (www.
barnaland.is), sem rekinn er í
samstarfi við Morgunblaðið
(www.mbl.is) hafa slóðir að
tölvupóstunum meintu staðið
óhaggaðar...
Tölvupóstsmálið hefur
hleypt miklu lífi í umræðu
um spjallborð eins og Málefnin
þar sem unnt er að setja fram
skoðanir og hvaðeina í skjóli
nafnleysis. Skiptast menn mjög
í tvö horn hvað það varðar og
togast á málfrelsið og ábyrgðin.
Spurning er hins vegar hversu
lengi nafnleysið haldi. Heim-
ildir eru fyrir því að lögreglan
hafi fengið í hendur atburða-
skrár Máléfnanna og geti með
þeim rakið hvaðan efni, sem
varðar við lög, komi. Laganna
verðir munu hins vegar ekki
síður furða sig á því hve drjúg-
an tíma margir opinberir starfs-
menn hafi til maraþonskrifa á
Málefnin og eitthvað mun víst
hægt að rekja til einkafyrir-
tækja líka...
Sagt var frá því á þessum
stað í gær að sumum sjálf-
stæðismönn-
um í Reykjavík
hafi þótt deyfð
yfir sínum
mönnum svo
nærri kosning-
um, en þeir
eru víst ekki
einir um það. Þannig kvarta
strætóstjórar undan því að
Dagur B. Eggertsson hafi ekki
sinnt beiðni um fund með
efstu mönnum framboðanna í
Reykjavík og sömu sögu var að
heyra frá Sjálfsbjörgu á dögun-
um. Þegar hringt var í Ráðhús-
ið vissi enginn neitt um Dag
eða hvar hann var að finna og
voru menn helst á þvi að hann
hefði brugðið sér til útlanda...
Talsvert hefur verið rætt
um Taívansferðir íslenskra
þingmanna
að undan-
förnu, bæði
gerði Össur
Skarphéðins-
son þær að
umtalsefni á
blogg sínum
(ossur.hexia.
net) og sagðist helst aldrei vilja
fara þangað og yrði því fegnast-
ur þegar Peking-stjórnin næði
yfirráðum þar líka. DV tók síð-
an upp þráðinn og leiddi í ljós
að ekki hefðu allir boðað sig í
þingleyfi vegna ferðanna. Hitt
er svo annað mál að sjaldnast
heyrist múkk um Kínaferðir
þingmanna og embættismanna,
en varla mun nokkur þingmað-
ur eiga Kínaför eftir þó ekki sé
öllum ljós tilgangurinn...