blaðið - 28.03.2006, Blaðsíða 4

blaðið - 28.03.2006, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2006 blaðið ' ■ * -ií V GuHsmiðia Óia i smáralind Breytingar í nýsköpun og atvinnuþróun Eimskip kaupir flutningafélag Eimskip, dótturfélag Avion Group, hefur skrifað undir vilja- yfirlýsingu um kaup á 50% hluta- fjár í breska landflutningafyrir- tækinu Innivate Holdings. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Avion Group hélt í gær. Kaupin verða fjármögnuð með eigin fé og lánsfé en sjálft kaupverðið er trúnaðarmál. Gert er ráð fyrir að formlega verði gengið frá kaupunum fyrir lok aprílmánaðar. Innovate er eitt stærsta fyr- irtæki Bretlands á sviði hita- stýrðra flutninga og er áætluð velta fyrirtækisins tæplega 15 milljarða íslenskra króna. Fyrir- tækið rekur nú 25 vörugeymslur á 11 stöðum á Bretlandseyjum ásamt 635 flutningabílum og hitastýrðum tengivögnum. Skulda 14 milljarða íslendingar skulda rúma 14 milljarða í meðlagsgreiðslur samkvæmt úttekt Innheimtu- stofnunar sveitarfélaga á stöðu meðlagsgreiðenda í landinu. I úttektinni kemur einnig fram að fjórði hver meðlagsgreiðandi á í miklum erfiðleikum með að greiða sínar skuldir. Meðlag með barni eru rúmar 17 þúsund krónur á mánuði og er nú greitt með um 22 þúsund börnum á landinu. Gert er ráð fyrir umfangsmikilli uppstokkun í opinberu stuðnings- kerfi nýsköpunar og atvinnuþró- unar samkvæmt stjórnarfrumvarpi sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra mun leggja fram á Alþingi á næstu dögum. Þetta kom fram á blaða- mannafundi sem ráðherrann hélt í gær. Sameina á starfsemi Byggða- stofnunar, Iðntæknistofnunar og Rannsóknarstofnunar byggingar- iðnaðarins í Nýsköpunarmiðstöð fs- lands sem verður með höfuðstöðvar á Sauðárkróki. Fjármagna verkefni f frumvarpi til laga um Nýsköpunar- miðstöð Islands sem ríkisstjórnin hefur samþykkt er gert ráð fyrir umfangsmiklum breytingum á op- inberu stuðningskerfi nýsköpunar og atvinnuþróunar. Gert er ráð fyrir því að Byggðastofnun, Iðntækni- stofnun og Rannsóknastofnun bygg- ingariðnaðarins verði sameinaðar í Nýsköpunarmiðstöð fslands með höfuðstöðvar á Sauðárkróki sem taka mun til starfa í byrjun næsta árs. Áfram verður þó gert ráð fyrir tæknirannsókna- og frumkvöðla- starfsemi á Keldnaholti í Reykjavík. Hlutverk Nýsköpunarmiðstöðvar- innarverðurm.a. að fjármagna verk- efni varðandi atvinnumál í gegnum tækniþróunarsjóð og byggðasjóð en einnig er áætlað að þangað geti ein- staklingar og fyrirtæki leitað upplýs- Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. inga og leiðsagnar við nýsköpun. Þá er áætlað að nýsköpunarsjóður atvinnulífsins verði áfram veigamik- ill þáttur í stuðningskerfi atvinnu- lífsins og frumfjárfesta í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. í frum- varpinu fær sjóðurinn heimild til að taka þátt í samlagssjóðum og sam- lagshlutafélögum og mun sjóðurinn fá um 1,5 milljarð króna af söluand- virði Símans til þessa verkefnis. f frumvarpinu er einnig lagt til að komið verði á fót þekking- arsetrum víða um land með það markmið að tengja saman starf- Blaöiö/Frikki semi háskóla, rannsóknastofnana, þekkingafyrirtækja og sprota- og nýsköpunarfyrirtækja. Öllum starfsmönnum þeirra stofnana sem lagðar verða niður verða boðin störf hjá Nýsköpunarmiðstöðinni. Að sögn Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, er með frumvarpinu verið að bregð- ast við breyttum atvinnuháttum þjóðarinnar og fjármagnsmarkaði. „Breytingarnar á síðastliðnum tíu árum hafa verið örar og víðtækar. Þau tæki sem ríkið hefur haft til Rændu bensinstöð Þrír menn voru handteknir í Hafn- arfirði í gær grunaðir um að hafa rænt Essó bensínstöð í Mosfellsbæ á sunnudag. Mennirnir hafa allir komið við sögu lögreglu áður. Með húfu og sólgleraugu Það var skömmu fyrir miðnætti á sunnudaginn að lögreglunni í Reykjavík barst tilkynning um að Viðskiptalögfræði á Bifröst rán hefði verið framið í Essó bens- ínstöðinni við Háholt í Mosfellsbæ. Ræninginn hafði komið inn á bens- ínstöðina og sagst vera með hníf þó vopnið hafi ekki sést. Hrifsaði hann til sín peninga úr afgreiðslukassa áður en hann hvarf á brott með bíl sem beið hans fyrir utan. Engin meiðsli urðu á fólki á meðan á ráninu stóð en maðurinn var að sögn vitna með húfu og sól- gleraugu. Talið er að ræningjarnir hafi haft einhverja tugi þúsundir króna upp úr krafsinu. Leit að mönnunum upphófst um „Þegar ég kom út á vinnumarkaðinn eftir námið í viðskiptalögfræði fann ég vel hversu frábæran undirbúning ég hafði fengið þar. Lausnir raunhæfra verkefna, gerð misserisverkefna, hópastarf með fólki á mismunandi aldri og með mismunandi bakgrunn, tækifæri til skiptináms erlendis, öflugt og skemmtilegt háskólasamfélag; allt veitti þetta mér fyrirtaks grunn til að ná árangri í mínu starfi. Það er engin spurning; nám við Viðskiptaháskólann á Bifröst er ein sú besta fjárfesting sem ég hef lagt út í." Frekari upplýsingar: www.bifrost.is imi 433 3000 Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, Skatta- og lögfræðisviði Deloitte hf. BSI viðskiptalögfræði 2004 VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN BIFRÖST Stjórnenda- og leiötogaskóli i 88 ár NJOTTU LIFSINS með HEILBRlfiÐUM LIFSSTIL að standa við bakið á atvinnulífinu og efla það eru orðin úreld og þess vegna er farið í þessa vinnu.“ Skref í rétta átt Soffía Lárusdóttir, formaður Sam- bands sveitarfélaga í Austurlands- kjördæmi, tekur undir orð Valgerðar og segir þær breytingar sem lagðar eru fram í frumvarpinu vera skref í rétta átt. Hún bendir sérstaklega á uppbyggingu á svæðisbundnum þekkingarsetrum og segir þær geta skipt höfuðmáli fyrir sveitarfélögin. „Það hefur sýnt sig að sérhæfðar landsstofnanir nýtast oft bara sínu nánasta umhverfi. En með því að byggja upp þekkingarsetrin sam- hliða Nýsköpunarmiðstöðinni þá munu þau hafa það hlutverk að vera drifkraftur í byggðarþróun á við- komandi svæði.“ Soffía bendir þó á að mikið liggi undir að vel verði staðið að uppbygg- ingu þekkingarsetra. „Þetta byggist mikið á því að vel verði staðið að uppbyggingu á þessum þekkingar- setrum. Það er lykilatriði því annars verður ekki til það afl sem þarf að vera á hverju svæði fyrir sig.“ leið og lögreglunni barst tilkynn- ing um ránið. Um tveimur tímum seinna eða um eittleytið aðfaranótt mánudags stöðvaði svo lögreglan í Hafnarfirði bifreið sem í voru þrír menn vegna gruns um aðild að mál- inu. Mennirnir voru handteknir á staðnum og færðir á lögreglustöð til yfirheyrslu. Að sögn lögrelunnar í Reykjavík eru mennirnir allir á tvítugsaldri og hafa áður komið við sögu lögreglu. Yfirheyrslur yfir þeim stóðu enn yfir þegar Blaðið fór í prentun í gær. Svifryk yfir hættumörkum Svifryk mældist yfir heilsu- verndarmörkum á höfuðborg- arsvæðinu í gær samkvæmt tilkynningu frá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar. Slíkt gerðist einnig dagana 22,23 og 26 mars. Samkvæmt veðurspá er útlit fyrir að veður verði áfram þurrt og kalt sem og að lítill raki verði áfram í andrúmsloftinu. Því er áframhaldandi hætta á að svifryksmengun verði mikil í Reykjavík næstu daga. Viðmiðunarmörksvifryks eru 50 míkrógrömm á rúmmetra á sólarhring en síðastliðinn fimmtudag fóru klukkustundar- gildin yfir 400 míkrógrömm og ífyrrinóttyfir 600. Vaxtaákvörð- unar að vænta Peningamál Seðlabankans verða gefin út næstkomandi fimmtudag. Á sama tíma er einnig að vænta frétta af vaxta- ákvörðun bankans. Greiningar- deild Landsbankans spáir því að Seðlabankinn hækki stýrivexti um 50 punkta en að mati bank- ans er þörf á enn meiri hækkun ef vel á að vera. „Við teljum að réttast væri fyrir Seðlabankann að hækka stýrivexti nú þegar um 75 til 100 punkta en gerum þó ein- ungis ráð fyrir að hækkunin verði 50 punktar,“ eins og segir í frétt á vefsíðu bankans. Telur Landsbankinn að hækkun um 75 punkta myndi ýta undir þá trú að Seðlabankinn væri „raun- verulega að reyna að fylgja eftir yfirlýstu verðbólgumarkmiði,“ eins og það er orðað.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.