blaðið - 28.03.2006, Blaðsíða 26
26 IKONUR
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2006 blaðið
Eðlilegt að upplifa sorgartimabil
Það er alltaferfitt að slíta sambandi, sama hver orsökin er, en það er mikilvœgt að leyfa sér að syrgja týnda ást.
komið
'y*
A.ú
i
Það er alveg sama hvað sagt er, það
er alltaf erfitt að jafna sig eftir sam-
bandsslit og það tekur alltaf ein-
hvern tíma. Hvort sem makinn lét
þig flakka, þú fékkst leið á bullinu í
honum eða þetta var ákveðið í mestu
samkennd þá er alltaf ákveðið ferli
sem þarf að ganga í gegnum til að
jafna sig á sambandsslitum. Hér eru
nokkrar leiðir sem gera ferlið von-
andi auðveldara:
&
i
LÍFSINS
ILBRigÐUM
FSSTIL
• íifym
Þú færö BeYu í verslunum Lyfju:
Garöatorgi - Grindavík - Keflavík - Selfossi - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni
Stykkishólmi - Borgarnesi - Eskifiröi - Egilsstööum - Reyöarfiröi - Seyöisfiröi - Hornafiröi - ísafiröi - Húsavík - Sauöárkróki - Blönduósi
IHleyptu því út og gleymdu því
• svo. Gerðu það sem þú þarft
að gera, gráttu, talaðu um hann út í
það óendanlega eða láttu blótsyrðin
flæða. Ef þú viðurkennir ekki til-
finningar þínar og tekur á þeim þá
munu þær einungis magnast og þú
gleymir þessu aldrei. Leyfðu þér að
vera sorgmædd, það er fullkomlega
eðlilegt í einhvern tíma. Að sama
skapi er nauðsynlegt að hætta að
syrgja eftir einhvern tíma. Ef þig
vantar ástúð eftir sorgartímabilið
þá er um að gera að hitta ættingja og
vini og knúsa þá sundur og saman.
Svo er gott að knúsa bangsa, púða
eða sængur á næturnar.
2Forritaðu hjartað upp á nýtt,
• ef svo má segja. Þú munt
ekki gleyma fyrrverandi fyrr en þú
getur séð hann í nýju Ijósi. Lokaðu
augunum og rifjaðu upp neikvæðar
stundir, eins og þegar makinn var
í fýlu, var illa útlítandi og illa lykt-
andi og svo framvegis. Með smá æf-
ingu ættirðu að geta kallað fram alls
kyns leiðinlegar myndir og þessar
truflandi tilfinningar hverfa smátt
og smátt.
3Skrifaðu upp lista yfir kosti og
• galla. Sambandsslit bjóða upp
á tilvalið tækifæri til að kynnast
sjálfum sér betur og hvernig sam-
band þú vilt. Skoðaðu hvaða kosti
þú hefur og hvaða galla. Hvað mis-
fórst í sambandinu og hvað var gott
Eftir sambandsslit er tilvalið að eyða tíma í sjálfan sig. Með því að gefa sjálfri þér tíma þá gætirðu kynnst frábærustu manneskju í heimi, sjálfri þér.
í því. Með smá sálarskoðun ættirðu
að geta byggt sjálfan þig upp og gert
næsta samband enn betra en það
síðasta.
4Stofnaðu skemmtiklúbb á
• laugardagskvöldum enda eru
helgarnar stundum einmanalegar
fyrir einhleypa. Byrjaðu að hringja
í vinina í byrjun vikunnar og skipu-
leggið eitthvað skemmtilegt fyrir
næstkomandi helgi. Það er svo
margt í boði utan þess að stunda
skemmtistaðina eins og bíó, skautar,
keila og svo mætti lengi telja. Fyrir
þá sem hafa áhuga á sjálfboðaliða-
vinnu er tilvalið að bjóða sig fram
á Vinalínu eða eitthvað annað sjálf-
www.lyQa.is
boðaliðastarf um helgar. Þannig get-
urðu mögulega hitt aðra með álíka
stórt hjarta og gefandi persónuleika.
5Með því að gefa sjálfri þér
• tíma þá gætirðu kynnst frá-
bærustu manneskju í heimi, sjálfri
þér. Gerðu allt sem þig hefur alltaf
langað til að gera en þú hefur slegið
á frest. Skráðu þig í leiklistarklúbb,
bókahring, farðu í skóla eða farðu í
framandi ævintýraferð út í heim.
6Passaðu þig á því að finna
• ekki annan maka, til þess eins
að komast auðveldar yfir hinn. Oft-
ast vill það gerast einmitt þegar þú
ert á viðkvæmasta skeiðinu og allt
í einu ertu ástfangin aftur. Reyndu
þá að sjá nýja makann fyrir, þá per-
sónu sem hann er en ekki sem lækn-
ingu á ástarsorg þinni. Ef þú ert í
sambandi til þess eins að jafna þig
á fyrra sambandinu er það einungis
tímabundin lækning, þú munt
finna fyrir sársaukanum aftur von
bráðar. Þú verður að vera alveg búin
að jafna þig á hinum aðilanum áður
en þú dembir þér í samband aftur.
99.................
Aldrei líta til baka.
Ekki falla í þá gryfju
að viðhalda Haltu
mér/Slepptu mér sam-
bandi svo mánuðum
skiptir. Ljúktu sam-
bandinu endanlega.
7Aldrei líta til baka. Ekki falla
• í þá gryfju að viðhalda Haltu
mér/Slepptu mér sambandi svo
mánuðum skiptir. Ljúktu samband-
inu endanlega. Ef fyrrverandi maki
hringir í sífellu, vill reyna aftur eða
vera bestu vinir til æviloka þá segðu
honum skýrt og greinilega hvernig
málin standa. Láttu fyrrverandi
fara fyrir fullt og allt og í framtíð-
inni þýðir ekki að sætta sig við neitt
annað en það allra besta. Þú átt það
skilið!