blaðið - 28.03.2006, Blaðsíða 32
32 I MENNING
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2006 blaðiö
Bréf til Júlíu
í hverri viku fær Júlía, hin fræga
leikritapersóna Shakespeare
fjölda bréfa. Áritun á einhverjum
þeirra er einungis: „Til Júlíu, Ver-
óna“ en nægir samt til að koma
viðkomandi bréfi til skila. Bréfin
fara öll á sama stað,
Club di Giulietta í
Veróna, Ítalíu, þar
sem sjálfboðaliðar
svara þeim. Bréfin
hefjast öll á sama
hátt: „Kæra Júlía“.
Nú hafa tvær banda-
rískar systur, Lisa og
Ceil Friedman, valið
bestu bréfin og svör
við þeim til útgáfu í
bók sem kemur út í
nóvember.
Siðurinn að senda
Júlíu bréf hófst árið 1937
en þá fannst bréf á stað
sem sagður er vera graf-
hýsi hennar en árlega
leggur fjöldi manns
leið sína þangað og
heimsækir sömuleiðis
hús hennar. Fyrir utan
húsið er bronsstytta
af Júlíu. Ferðamenn
strjúka hægra brjóst
hennar en sá siður er
sagður boða þeim gæfu.
Árum saman festu ferða-
menn bréf til Júlíu við
húsið og notuðu til þess
tyggigúmmí. Á síðasta
ári var bann lagt við
slíku og póstkassa komið fyrir.
Félagsskapurinn Club di Giulietta
geymir um 50.000 bréf sem send
hafa verið til Júlíu. Friedman syst-
urnar fóru í gegnum um 5000 þeirra
og völdu 75 til birtingar. I einu bréf-
anna stendur: „Kæra Júlía. Þú ert síð-
asta von mín. Konan sem ég elska
meira en nokkuð annað í heiminum
hefur yfirgefið mig“. Annað hefst á
þessa leið: „Kæra Júlía, ég bý á þriðju
hæð. Foreldrar mínir leyfa kærasta
mínum ekki að heimsækja mig. Svo
ég verð að lauma honum
inn“. Eitt bréfanna er frá
Riccardo sem er tíu ára
og elskar „eldri“ konu,
sem er 14 ára og hann
hitti í Verona sumarið
áður. Hann spyr Júlíu
hvort hún hafi frétt af
henni. Árið 1967 skrif-
aði kona frá Louisiana
að eiginmaður hennar
væri í Víetnam og hún
væri orðin ástfangin af
besta vini hans. Árið
1972 skrifaði hermaður
frá Víetnam: „Ég er í loft-
varnarbyrgi. Ég heyri
sprengjur springa fyrir
utan og byssuskot. Ég
er 22 ára gamall og ég
er hræddur". Kona frá
Úkraínu skrifar Júlíu og
spyr: „Ég á 27 ára gamla
dóttur sem hefur aldrei
gifst en er að leita að kær-
asta“. Konan biður Júlíu
um hjálp.
Af einhverjum
ástæðum fær kærasti
Júlíu Rómeó sárafá bréf
meðan þau streyma til
hans heittelskuðu.
Rómeo og Júlía eftir Frank Dicksee. Júlía
hefur fengið um 50.000 bréf þar sem fólk
leitar ráða hjá henni.
99............
Fyrír utan
húsið er brons-
stytta afJúlíu.
Ferðamenn
strjúka hægra
brjóst hennar
en sá siður
ersagður
boðaþeim
gæfu. Árum
saman festu
ferðamenn
bréftil Júlíu
við húsið og
notuðu til þess
tyggigúmmí.
Á síðasta ári
var bann lagt
við slíku og
póstkassa
komið fyrir.
Svanurinn flýgur til Hollands
JPV útgáfa hefur gengið frá
útgáfusamningi við hollenska
útgáfufyrirtækið De Geus um út-
gáfu á Svaninum eftir Guðberg
Bergsson.
Svanurinn kom fyrst út 1991 og
hefur þegar komið út á tólf tungu-
málum og og alls staðar fengið fá-
dæma góðar viðtökur. Svanurinn
hlaut á á sínum tíma íslensku bók-
menntaverðlaunin og var árið 1997
tilnefnd til Bókmenntaverðlauna
Sænsku akademíunnar. Svanur-
inn hefur fengið einróma lof gagn-
rýnenda hvar sem hún hefur verið
gefin út og hefur fengið mikla um-
fjöllun í erlendum fjölmiðlum en
t.d. birtist um hana opnugrein í
Le Nouvel Observateur eftir Milan
Kundera þar sem hann segir
m.a. „skáldsaga sem skildi eftir
í mér langt, mjög langt bergmál
hrifningar.“
Hollenska útgáfufyrirtækið
De Geus er þekkt fyrir að gefa út
marga af fremstu höfundum sam-
tímans. Meðal höfunda þess eru
Roddy Doyle, Annie Proulx, Pat
Barker og Henning Mankell.
Söngelskir karlmenn
Raddbandafélagið er að undirbúa þátttöku á Norrænni tónlistarhátið og heldur tón-
leika í Digraneskirkju í næsta mánuði.
Raddbandafélag Reykjavíkur er
sönghópur skipaður hressum og
söngelskum karlmönnum. Félagar
sönghópsins eru ýmist söngmennt-
aðir eða með umtalsverða reynslu
af kórsöng en stjórnandi þeirra
er Sigrún Grendal. Þrátt fyrir
aðeins þriggja ára starfsaldur
hefur Raddbandafélagið tekið að
sér ýmis metnaðarfull verkefni.
Meðal annars má nefna þátttöku
í íslenskum menningardögum í
Búlgaríu á haustdögum árið 2004.
í vor er hins vegar stefnan sett á
Rússland!
Raddbandafélagið undirbýr nú
þátttöku í Norrænni tónlistarhátíð
Nordic Music Festival sem haldin
verður í st. Pétursborg á vori kom-
anda. Tónlistarhátíðin sem er haldin
fyrir tilstuðlan hins þekkta stjórn-
anda Kristofer Wahlander er nú
haldin í þriðja sinn en íslendingar
taka nú í fyrsta sinn þátt í hátíðinni.
I Pétursborg mun Raddbandafélagið
kynna íslenska karlakóratónlist auk
þess að stikla á stóru í fjölbreyttri
söngdagskrá sönghópsins.
Á vortónleikum Raddbandafélags-
ins 25. apríl nk. í Digraneskirkju
verður tónninn sleginn fyrir Rúss-
landsferðina þar sem nokkur rúss-
nesk lög munu prýða söngdagskrána.
SU DOKU talnaþrautir
Su Doku þrautin snýst um
að raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
6 7 8 5
6 9
3 4 7 5
4 9 3 6 5
6 2 9
8 5 3
8 5 2 6
4 2 9 7
2 4 1
SHDP- IS ©6610015
Lausn síðustu gátu
3 5 7 4 6 8 1 2 9
2 8 6 9 1 3 7 5 4
4 9 1 7 2 5 8 3 6
5 4 9 3 8 7 2 6 1
6 2 8 1 9 4 5 7 3
7 1 3 6 5 2 9 4 8
8 3 2 5 4 1 6 9 7
9 7 5 8 3 6 4 1 2
1 6 4 2 7 9 3 8 5