blaðið - 28.03.2006, Blaðsíða 30

blaðið - 28.03.2006, Blaðsíða 30
30 I ÍPRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2006 blaöift Arnar Jón Agnarsson Leikmaður Fylkis í handknattleik Hugþrautin Hugþrautin er nýr vikulegur liður á íþróttasíðu Blaðsins. Tveir menn úr íþróttaheiminum mœtast í spurninga- einvígi og tengjast allar spurningarnar íþróttum á einn eða annan hátt. Regl- urnar eru einfaldar: keppendurnir fá sömu 16 spurningarnar og sá sem hefur fleiri rétt svör heldur áfram en sá sem taparfœr að velja næsta andstæðing sig- urvegarans. Takist einhverjum að sigra fimm keppnir í röð verður hann krýndur Hugþrautarmeistari og fær að launum veglegan verðlaunagrip. Konráð Olavsson Fyrrum landsliðsmaður í handknattleik 1. Hvaða þjóðir kepptu um þriðja sætið á nýafstöðnu Evrópumóti í handknattleik? A: Það voru Danmörk og Króatía. K: Voru það ekki Danmörk og Króatía? 2. Hvaðan af landinu er skíðakonan Dagný Linda Kristjánsdóttir? A: Akureyri K: Ég held að það sé Dalvík 3. Hver deildi markakóngstitlinum með Guðmundi Steinssyni á íslands- mótinu í knattspyrnu 1991? A: Það er einhver snillingur eins og Pétur Pétursson. K: Hörður Magnússon 4. Frá hvaða landi er golfarinn Vijay Singh? A: Er hann ekki frá Fiji-eyjum eða einhver andskotinn? K: Hann er fæddur á Indlandi en segjum að hann spili fyrir Bretland. 5. Með hvaða liði leikur Guðmundur Stephensen borðtennis? A: Hann keppir fyrir Malmö. Ég fylgist einmitt mjög mikið með sænskum borðtennis. K: Víkingi 6. Fyrir hvaða lið aka þeir Ralf Schumacher og Jarno Trulli í Formúlu 1 ? A: Ég ætla að segja Williams. K: BMW 7. Hvar voru Sumarólympíuleikarnir haldnir árið 1968? A: Los Angeles K: Það er árið sem ég fæddist, en ég bara man það ekki. Segjum Miinchen. 8. Hvað heitir knattspyrnustjóri portúgalska knattspyrnuliðsins Benfica? A: Koeman K: Það er einhver Hollendingur. Ég ætla að skjóta á Van Gaal. 9. Hvað heitir unnusta NBA-leikmannsinsTony Parker? A: Eva Longoria K: Ég hef ekki hugmynd um það 10. Hvaða liði mætir kvennalið Vals í handknattleik í undanúrslitum Áskorendakeppni Evrópu? A: Einhverju rúmensku liði. Man bara ekki hvað það heitir. K: Ég sá að þær komust áfram en ég man ekkert hvað liðið heitir. 11. f hvaða íþróttagrein keppti Larissa Latynina sem unnið hefur fiest verðlaun allra á Ólympíuleikum, alls 18 talsins? A: Fimleikum K: Segjum að hún hafi keppt í frjálsum íþróttum. 12. Hvað heitir forseti Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA)? A: Lennart Johnansson K: Það er einhver Svíi. Lennart Johansson. 13. Hvað heitir íþróttafélagið á Kópaskeri? A: Heitir það ekki bara Kópur? K: Ég segi bara Kópurinn. 14. Hvaða handknattleikslið þjáifar hin skapbráða Anja Andersen? A: Eitthvað danskt lið. Strandstrulle? Nei, ég man það ekki. Ég er ekki nógu vel að mér í kvennahandboltanum. K: Eitthvað danskt lið. Ég man samt ekki hvað það heitir. Ég giska bara á FC Köbenhavn. 15. Hvað heitir heimavöllur skoska knattspyrnuliðsins Glasgow Rangers? A: Hef ekki hugmynd. K: Ég held ég hafi aldrei heyrt það. 16. Hvaða lið er nýkrýndur fslandsmeistari í hópfimleikum? A: Hlýtur að vera Gerpla eins og alltaf. K: Það var Gerpla. ,,Bjóst við meiri mótspyrnu" Arnar sigrar Konráð með átta réttum svörum á mótifjórum. ,Ég þekki einn sem hefur verið í sigurliði í Gettu betur og ég reyndi að tileinka mér taktana hans,“ segir Arnar Jón Agnarsson, Fylkismaður og nýbakaður sigurvegari í fyrstu Hugþrautinni. Hann stóð keikur eftir viðureignina og játaði því að hann hefði ekki ætlað sér annað en sigur. „Konráð er náttúrulega mjög leikreyndur þannig að ég bjóst nú við að þetta yrði jafnari og betri rimma. Hann má reyndar eiga það að hann var að eignast dóttur og ég óska honum til hamingju með það,“ segir Arnar og telur að það geti hafa haft áhrif á einbeitingu Konráðs. „Það er eina afsökunin sem mér dettur í hug fyrir hans hönd, því annars var þetta frekar slakt hjá honum," bætir hann við, en tekur fram að þrátt fyrir að Konráð hafi ekki verið sleipur í spurningunum sé hann engu að síður mikill snillingur. Dómaraskandall og dagsformið ekki í lagi „Þótt ótrúlegt megi virðast er líf eftir handboltann og ég er farinn að lesa um aðra hluti. Maður er farinn að byrja réttum megin á Mogganum," segir Konráð Olavsson, sem lagði handboltaskóna á hilluna fyrir nokkrum árum og starfar nú sem vörumarkaðsstjóri hjá Marel. Aðspurður hvort vörumarkaðsstjórnunin svipi að einhverju leyti til handboltans segir hann störfin á köflum vera nauðalík. „Ég er vörumarkaðsstjóri hjá Marel. Það er á köflum mjög líkt handboltanum. Þetta snýst allt um að vinna í hóp með öðru fólki, stefna í rétta átt og sigra að lokum.“ Konráð segist ekki hafa verið of sigurviss fyrir viðureignina. „Ég þekki Arnar mjög vel og átti satt að segja von á því að hann myndi rúlla mér upp því ég veit að hann fylgist ágætlega með. Það er engin skömm að tapa fyrir honum enda fluggáfaður og glæstur á velli,“ segir Konráð. Aðspurður hvað hafi farið úrskeiðis segist hann ætla að beita fyrir sig öllum klisjunum í bókinni: „Ég var vel undirbúinn og sýndi mikinn og góðan baráttuanda. En dagsformið var ekki í lagi og það voru dómararnir sem klúðruðu þessu!“ bjorn@bladid.net l'næstu viku... Þar sem Konráð tapaði fékk hann að velja næsta andstæðing Arnars. Ákvað hann að siga handknattleiks- manninum Patreki Jóhannessyni á Arnar og tók Patrekur að sjálfsögðu áskoruninni. Arnar um einvígið: „Ég býst við erfiðari og skemmtilegri keppni. Ef ég vísa til leikjanna milli Fylkis og Stjörnunnar í vetur þá hafa þetta verið erfiðar og blóðugar rimmur sem enda með því að Fylkir sigrar. Meira vil ég ekki segja um það.“ Patrekur um einvígið: „Jú, þeir eru vissulega búnir að vinna okkur í báðum leikjunum þannig að það er eðlilegt að hann taki það fram. En við erum með titil og það er það sem telur. Mér líst mjög vel á að mæta honum í spurningakeppni. Nú er bara að byrja að lesa.“ Rétt svör: 1. Danmörk og Króatia 2. Akureyri 3. Hörður Magnússon 4. Fiji-eyjum 5. Malmö 6. Toyota 7. Mexíkó 8. Ronald Koeman 9. Eva Longoria 10. CSTomisConstanta frá Rúmeníu 11. Rmleikum 12. Lennart Johansson 13. Snörtur 14. Slagelse 15. Ibrox 16. Gerpla LENGJAN LEiKIR DAGSINS Spilaðu á næsta sölustað eða á lengjan.is Gratkorn - LASK 2,35 2,55 2,35 Kapfenberg - Austria Amateure 2,45 2,60 2,20 Kufstein - Leoben 2,65 2,70 2,00 Kárnten - Austria Lustenau 1,90 2,75 2,80 Saudi Arabía - Pólland 2,60 2,65 2,05 Alloa - Stirling 3,00 2,80 1,80 Forfar - Raith 2,00 2,70 2,65 Greenock Morton - Dumbarton 1,25 3,65 5,70 Burnley - Southampton 1,90 2,75 2,80 Preston - Crewe 1,35 3,35 4,75 Milton Keynes Dons - Brentford 2,80 2,75 1,90 Arsenal - Juventus 2,20 2,60 2,45 Carlisle - Lincoln City 1,45 3,10 4,25 Rochdale - Barnet 1,75 2,80 3,15 Dagenham Redbridge - Crawley Town 1,50 3,00 4,00 Halifax - Woking 1,50 3,00 4,00 Kidderminster - Grays Athletic 2,35 2,60 2,30 Tamworth - Exeter 2,55 2,65 2,10 Hamilton - Stranraer 1,55 3,00 3,70 Cowdenbeath - Elgin 1,25 3,65 5,70 Benfica - Barcelona 3,00 2,80 1,80 KR - UMFN 2,00 8,60 1,40 Detroit - Dallas 1,40 8,60 2,00 LA Clippers - San Antonio 1,85 8,10 1,50 Skeytin inn Ruud van Nistelrooy mun að öllum líkindum verða í byrjunar- liði Manchester United þegar liðið tekur á móti West Ham annað kvöld. Nistelrooy hefur þurft að verma varamannabekkinn undan- farna fimm leiki en stjórinn Alex Ferguson hefur lofað því að gera breytingar á liðinu frá sigurleiknum gegn Birmingham á sunnudag. „Það er erfitt að breyta til þegar liðið er á sigur- braut og satt að segja finnst mér að maður eigi ekki að gera það. En það eru tveir erfiðir leikir framundan og því finnst mér þörf á því að fríska aðeins upp á liðið,“ sagði Ferguson og átti við yfirvofandi viðureignir við Bolton og Arsenal. Michael Owen, sókn- armaður Newcastle, segist fullviss um að hann verði búinn að ná sér af meiðslum sínum fyrir HM í sumar. Owen ristarbrotnaði sem kunnugt er í leik gegn Totten- far «1 hamÁgamlársdag (. ' ~ i °8 þuTfú1 kjolfarið --- að koma fyrir skrúfu I i ■ í faeti hans. í síðustu viku þurftu læknar svo að skipta um skrúfu og verður hann því frá lengur en búist var við. „Ég ætti að geta byrjað að spila eítir fjórar vikur. Þá er enn nægur tími til að komast í leikform og fara að skora mörk,“ sagði Owen og bætti við að hann vonaðist til að ná að leggja sitt af mörkum til Newcastle áður en tímabilið væri á enda. „Félagið og stuðningsmennirnir hafa verið mér frábærir og mig langar mjög að launa þeim það.“ Aston Villa hafa staðfest að í samningi Milans Baros, sóknarmanns liðsins, sé ákvæði um að honum sé frjálst að fara frá félaginu sé eitthvað lið til- búið að greiða 7 milljónir punda fyrir hann. Er það sama upphæð og Villa greiddi fyrir leikmann- inn á síðasta ári en Baros skrif- aði undir fjögurra ára samning við liðið. Steve Stride, talsmaður Aston Villa, lýsti því hins vegar yfir að stuðningsmenn þyrftu engar áhyggjur að hafa. „Við erum alls ekki að leitast við að selja Milan og hann hefur alltaf sagt að hann vilji vera áfram hjá okkur,“ sagði Stride. Sol Campbell verður ekki með Arsenal þegar liðið tekur á móti Juventus í fjórðungsúrslitum Meistara- deildarinnar í kvöld. Meiðsli sem hrjáð hafa I Campbell undan- ! farna tvo mánuðu I tóku sig upp á ný á æfingu liðsins og gengur hann því ekki heill til skógar. Arsene Wenger, stjóri Ar- senal, sagði meiðslin hins vegar ekki vera alvarleg og líklega yrði Campbell tilbúinn í slaginn þegar liðið mætir Aston Villa um næstu helgi. Þá greindi hann frá því að Freddie Ljungberg væri einnig meiddur og yrði ekki með. Leiktíma á tveimur leikjum í DHL-deild karla í hand- knattleik hefur verið breytt. Um er að ræða leik lR og FH og viðureign HK og Hauka. Leikirnir áttu að fara fram næst- komandi föstudagskvöld en hafa verið færðir á laugardag vegna ársþings HSÍ. deildarinna 1 I

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.