blaðið - 28.03.2006, Side 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2006 blaðið
CASH &:'CARRY
Fleiri leita aðstoðar vegna spilafíknar
mbl.is | Þrír mannlausir bílar rákust
saman á Ásavegi í Vestmanna-
eyjum í síðustu viku. Tildrögin
voru þau, að sendibíl hafði verið
lagt í halla en ekki var hægt að
koma bílnum af stað sökum hálku.
Ekki vildi betur til en að bíllinn
rann af stað og lenti á bíl sem var
fyrir framan og hafnaði sá bíll á
enn öðrum mannlausum bíl. Allir
skemmdust bflarnir nokkuð.
Velta eykst á fast-
eignamarkaði
Alls voru 190 kaupsamningar vegna
fasteigna þinglýstir á höfuðborgar-
svæðinu vikuna 17. til 23. mars sam-
kvæmt samantekt Fasteignamats
ríkisins. Þar af voru 149 samningar
um eignir í fjölbýli og 24 um sérbýli.
Heildarvelta á markaðinum var
rúmur 5,7 milljarður og er um 1,5
milljarði króna meiri borin saman
við meðalveltu síðasdiðinna þriggja
mánaða. Þá nam meðalupphæð á
hvern samning um 30 milljónum
og hækkar um 3 milljónir borin
saman við meðaltal þessa árs.
Hjá SÁA greina menn mikla aukn-
ingu í þeim hópi fólks sem leitar til
samtakanna til þess að takast á við
spilafíkn sína. Pókerspil á Netinu
njóta sívaxandi vinsælda og um helg-
ina kynnti fyrirtækið bettsson.com
opnun íslenskrar útgáfu heimasíðu
sinnar þar sem íslendingum gefst
færi á að stunda alls kyns fjárhættu-
spil í gegnum Netið, þar á meðal
póker.
Áreiti frá auglýsingum
Sveinbjörn K. Þorkelsson á göngu-
deild SÁÁ sem hefur sérhæft sig í
spilafíkn segir ákveðið áhyggjuefni
hve vinsæl fjárhættuspil á Netinu eru
orðin. „Þetta hefur aukist mjög mikið.
Þetta bendir okkur enn einu sinni á
það að það þýðir ekki að horfa bara
til þess sem er að gerast hér heima,
en þá á ég við spilakassana, lottóið,
getraunir og þessháttar.“ Sveinbjörn
segir að þeir sem eru að reyna að
vinna bug á fíkn sinni verði fyrir
miklu áreiti frá þessum auglýsingum,
„en það er bara eitthvað sem þeir verða
að takast á við og reyna að sniðganga.“
Hann segir nýjasta dæmið, www.bets-
son.com vera dæmi um þá gríðarlegu
aukningu sem orðið hefur á fjárhættu-
spilum í gegnum Netið. „Það hlaut að
koma að því að einhver opnaði síðu á
Varhugavert fyrir þá
sem eru veikir fyrir
Sveinbjörn segir að það fyrirkomu-
lag að geta veðjað á Netinu varhuga-
vert fyrir þá sem veikir séu fyrir.
„Þarna eru menn einir við tölvuna og
auðvelt að gleyma sér.“ Sveinbjörn
segist ekki hafa sérstaka skoðun á
því hvort að svona starfsemi eigi
rétt á sér en hann hvetur þá sem
eru spilafíklar eða þá sem halda sig
eiga í vandræðum með fjárhættu-
spil að skrá sig ekki á svona net-
síður. „Þarna geta menn setið við
tölvuna óáreittir og þess vegna rú-
stað sínum fjárhag á stuttum tíma.
En fyrir þá sem hafa stjórn á þessu
og eru skynsamir í þessum málum
getur þetta verið skemmtilegt. Ég
tek því ekki afstöðu til þess hvort
þetta eigi rétt á sér eða ekki.“ Svein-
björn bendir þó á að hjá SÁÁ greini
menn aukningu í því að þangað
komi fólk til þess að leita hjálpar
við að vinna bug á fíkn í fjárhættu-
spil á Netinu. „Yngstu aídurshóp-
arnir eru spenntir fyrir pókernum.
Þeir byrja kannski að spila þetta í
góðra vina hópi heima við og fara
síðan að prófa sig áfram á Netinu.
Þeir sem eru að spila í þessu mega
fara mjög varlega því það er auðvelt
að ánetjast. Þegar menn eru farnir
að eyða umfram efni og reyna að
vinna upp tapið, þá eru þeir komnir
í hættu.“ Sveinbjörn bendir á að í
gegnum heimasíðu SÁÁ geti fólk
nálgast netsíu sem kemur í veg fyrir
að börn og unglingar geti tekið þátt
í veðmálum á Netinu. Vefslóðin er
www.gamblock.com
Bíldshöfða 5a
Óskum eftir duglegu og
kraftmiklu fólki til starfa
á Hlöllabátum
Nánari upplýsingar veitir Kolla
í síma 892 9846 eða á staðnum
eftirkl. 14.00.
Þrír mannlausir
bílar í árekstri
Trans-Atlantic og MasterCard
efna til ferðar til Mexíkó.
10.500 kr. afsláttur á hvern fjölskyldumeðlim
MasterCard korthafa 12 ára og eldri.
Einnig í boði
Ævintýraferðtil þriggja
landa á slóð Maya indlána i
Mexíkó, Blelizeog
Guatemala. Stórkostleg
náttúra og dýralíf.Töfrandi
regnskógasvæði.
Hverfum aftur [ tlma
• t 'jL. og rúmi
rt
Brottfarir: 25. maí og 8. júní
13 nætur (ath. takmarkað sætamagn)
4 og 5 stjömu lúxus hótel með allt
innifalið. ótakmarkaður matur og drykkir.
óáfengir og áfengir, öll afþreying,
skipulögð skemmtidagskrá og stórsýningar
(show) á hverju kvöldi.
Nánari upplýsingar:
www.transatlantic,
ir: á
“ A
Trans-Atlantic
S(mi 588 8900 • www.transatlantic.is
Pókerspilamennska á Netinu getur verið
varasöm.
íslensku. Ég var í New Orleans í fyrra
sumar á ráðstefnu þar sem mikið var
rætt um þessa aukningu á Netinu
ekki síst í tengslum við pókerinn.
Bandaríkjamennirnir töluðu um að
það forvarnarstarf sem unnið hafði
verið í skólum í nokkrum ríkjum
Bandaríkjanna hafi hrunið á einu
sumri þegar póker æði rann á menn.“
Galsi á Geirsnefi
Hundurinn Tímon var ákaflega sáttur við lífið og tilveruna þar sem hann lék sér við eiganda sinn á Geirsnefi um helgina. Þrátt fyrir
að hundar séu vanir því að elta uppi spýtur sem eigendur þeirra henda þá virtist þessi besti vinur mannsins láta sér það í léttu
rúmi liggja þó að þessu sinni væri plastílát utan af gosdrykk notað þess í stað.
Byltingar-
kennd nýjung
Umferðarstofa kynnti í gær
nýstárlega netþjónustu sem
þróuð var i samstarfi við Glitni.
Nýjungin gerir fólki kleift að
framkvæma eigendaskipti á
ökutækjum í gegnum Netið í
stað þess að þurfa að skila inn
hefðbundnu umsóknareyðu-
blaði. Eigendaskiptin fara hér
eftir fram með þeim hætti,
að viðskiptavinurinn fer inn
á heimasíðu Umferðarstofu,
www.us.is, þar sem eigenda-
skiptin eru skráð. í framhaldi
af því fer viðskiptavinurinn inn
á Netbanka Glitnis og gengur
þar frá staðfestingu á viðskipt-
unum og greiðslu. Hjá Umferð-
arstofu eru árlega færð 80-100
þúsund eigendaskipti á bif-
reiðum. Fyrstu vikurnar verður
aðeins boðið upp á þjónustuna
í gegnum Netbanka Glitnis, en í
tilkynningu frá Umferðarstofu
kom fram að stofnunin hafi
þegar sett sig í samband við
aðra banka og sparisjóði með
það að markmiði að þeir geti
einnig boðið sínum viðskipta-
vinum upp á þjónustuna.