blaðið - 28.03.2006, Síða 22
22 I ÝMISLEGT
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2006 biaöið
Ameríski draumurinn i hnotskum
Margir líta einungis á Ally McBeal sem sæta stelpu í stuttu pilsi og velta sér upp úr því
aö leikkonan sjálf gæti átt við átröskun að stríða en í eðli sínu er Ally hin eina og sanna
Kelley hetja.
Það er sennilega ekki ofsögum sagt að framleiðandinn David E. Kelley
sé að upplifa ameríska drauminn. Þegar hann var starfandi sem
lögfræðingur skrifaði hann handrit, flutti til Holly wood og þénaði
milljónir auk þess að giftast kvikmyndastjörnu. Þættir Davids eru
annálaðir fyrir gæði, skringilega persónusköpun og ádeilu á mikilvæg
samtíðarmálefni. David er Islendingum vel kunnugur enda skrifaði
hann og framleiddi þætti á borð við L. A. Law, Boston Legal, Ally
McBeal, The Practise og fleiri. Allir eiga þessir þættir það sameiginlegt
að vera pólitískir og taka á málefnum samfélagsins, sem er kannski
ekki furða ef litið er til bakgrunns hans en hann er einnig menntaður í
stjórnmálafræði.
í síðasta þætti Boston Legal var
ádeila á hvernig bandarískir stjórn-
málamenn geta hagað kjördæma-
skipan eftir
sínum eigin vilja. _ ~
Þetta er ekki ™ ™
í fyrsta né síð-
asta skiptið sem
má sjá einhvers
konar samfélags-
rýni í þáttunum.
í fyrri Boston
Legal þáttum
má siá umræðu
um Iraksstríðið,
málfrelsi, þjóð-
erniskennd
Bandaríkjamanna og margt fleira
þar sem sakborningur í þáttunum
hefur oftar en ekki brotið viðkom-
Það er sennilega ekki ofsögum sagt að
framleiðandinn David E. Kelley sé að upp-
lifa ameríska drauminn. Þegar hann var
starfandi sem lögfræðingur skrifaði hann
handrit, flutti til Hollywood og þénaði
milljónir auk þess að giftast kvikmynda-
stjörnu.
við Boston Legal því í L.A. Law þátt-
unum var fjallað um aðskilnað sí-
amstvíbura og líknardráp auk þess
sem Ally McBeal þættirnir tóku á
ýmsum málefnum líka.
Með stjórnmálafræði og
lögfræði í farteskinu
David E. Kelley fæddist 4. apríl 1956 í
Waterville, Maine. David nam stjórn-
málafræði við Háskólann í Prince-
ton auk þess sem hann fór í lögfræði
í Háskólanum í Boston. Kelley var
meðeigandi í lögfræðiskrifstofu
árið 1983 þegar hann skrifaði kvik-
myndahandrit sem var byggt á
reynslu hans sem lögfræðings. í
gegnum fjölskylduvin fékk David
sér umboðsmann sem kom hand-
ritinu á framfæri. Kvikmyndin var
framleidd árið 1987 undir nafninu
„Frorn the Hip“ og í henni léku meðal
annars Judd Nelson, Elizabeth Perk-
ins og John Hurt. Á sama tíma voru
framleiðendurnir Steven Bocho og
Terry Louise Fisher, sem voru þekkt-
astir fyrir lögregluþættina „Hill
Street Blues“, að skipuleggja nýja
sjónvarpsþáttaröð sem átti að gerast
og buðu honum til Los Angelas til
að ræða möguleg skrif hans í L.A.
Law. Fundurinn gekk það vel að
David var ráðinn sem skrifari og
eftir þriðju þáttaröðina var hann
orðinn að framleiðanda auk þess að
halda áfram að skrifa þættina.
Vinnualki en vel giftur
David flutti til Los Angeles eftir að
hann fékk vinnu við L.A. Law og
þættirnir slógu samstundis í gegn
þegar þeir voru sýndir á NBC árið
1987. Árið 1992 bjó David til sína
eigin sjónvarpsþáttaröð til að sýna
á CBS sem bar
nafnið Picket
Fences. Picket
Fences gerist
í Rome í Wis-
consin, sem er til-
búinn bær, og tók
á siðfræðilegum
málefnum eins
og líknardrápi
og klónun. Þætt-
irnir urðu fljótt
vinsælir enda
samanstóðu þeir
af einkennilegum söguþræði og sér-
vitrum persónum. Þáttaröðin var
sýnd á CBS í fjögur ár. Á sama tíma
og David var framleiðandi og skrif-
aði Picket Fences skrifaði hann líka
spítaladramað Chicago Hope, þátta-
röð sem var einnig sýnd á CBS. Það
er óhætt að segja að David sé vinnu-
alki og til að mynda skrifaði hann
samtals 40 þætti af Picket Fences
og Chicago Hope á nokkra mánaða
tímabili. Það sætir því undrun að
Kelley hafi tíma með fjölskyldunni
en hann giftist leikkonunni Mich-
elle Pfeiffer í nóvember 1993. Saman
eiga þau börnin Claudia Rose Kelley
og John Henry.
Siðfræðilegur þáttur í
gamansömum tón
Þrátt fyrir þessa miklu vinnu var
sköpunarhæfileiki David 's ekki
uppurinn, langt í frá, því árið 1997
frumsýndi hann tvær nýjar þátta-
raðir: Ally McBeal og The Practice
sem, þrátt fyrir að vera gjörólíkar,
gerðust báðar í lögmannsfyrirtæki í
Boston. Ally McBeal tók á siðfræði-
legum efnum í gamansömum tón á
meðan The Practice tók á alvarlegri
málefnum með átakanlegum undir-
tón. Báðar þáttaraðirnar slógu sam-
stundis í gegn og unnu fjöldamörg
Emmy og Golden Globe verðlaun.
Árið 1999 varð David fyrsti framleið-
andinn til að vinna bæði Emmy og
Golden Globe verðlaunin sama árið,
önnur fyrir bestu dramatísku sjón-
varpsþáttaröðina (The Practice) og
hin fyrir bestu gamanþáttaröðina í
sjónvarpi (Ally McBeal).
Þættir Davids eru annálaðir fyrir góð gæði, skringi-
lega persónusköpun og ádeilu á mikilvæg samtíð-
armálefni. Allir eiga þessir þættir það sameiginlegt
að vera pólitískir og taka á málefnum samfélagsins,
sem erkannski ekki furða eflitið er til bakgrunns
Davids en hann er menntaður í stjórnmálafræði.
James Spader og William Shatner leika Alan Shore og Denny Crane sem eru óliklegir sálu-
félagar á meðal starfsmanna Crane, Poole and Schmidt.
andi lög og lögfræðingarnir færa rök í lögfræðifyrirtæki. Þeir leituðu því
fyrir rétti einstaklinga. Þessi samfé- að höfundum sem höfðu lögfræði-
lagsrýni er síður en svo einskorðuð legan bakgrunn, sáu handrit Davids
Hið fáranlega og hið hlægilega
Þrátt fyrir að allt sem Kelley snerti
verði að gulli þá er það ekki alveg
sannleikanum samkvæmt. Þær
myndir sem Kelley hefur skrif-
aði og framkallað, To Gillian on
her 37th birthday, Lake placid og
Mystery Alaska fengu ekki góðar
viðtökur og mjög misjafna dóma.
Þrátt fyrir nokkra slæma dóma eru
flest verkefni Davids vel heppnuð
og verðlaunafjöldi hans sannar það.
Þegar horft er á þætti Kelley má sjá
að persónurnar sem Kelley skapar
takast á við skömm, viðkvæmni, til-
finningalegan skort, hið fáránlega
og hið hlægilega
í lífinu mun
oftar en meðal- .........
manneskjan. En
persónurnar í
þáttum Kelley
takast líka á við
erfiðar siðfræði-
legar spurningar
og hollustu
og einstaka
sinnum koma
þau sjálfum sér
á óvart með því
að taka réttar
ákvarðanir.
En persónurnar í þáttum
Kelley takast líka á við
erfiðar siðfræðilegar
spurningar og hollustu
og einstaka sinnum
koma þau sjálfum sér á
óvart með því að taka
réttar ákvarðanir.
Heiðurs-
gesturinn er dauður
Kelley er með afkastamestu höf-
undum í sjónvarpi en sá boðskapur
sem handrit hans færa milljónum
áhorfendum víðs vegar um heiminn
er langt frá því að vera hversdags-
legur. Margir líta einungis á Ally
McBeal sem sæta persónu í stuttu
pilsi og velta sér upp úr því að leik-
konan sjálf gæti átt við átröskun að
stríða en í eðli
sínu er Ally hin
............ eina og sanna
Kelley hetja.
Ally, sem leikin
var af Calistu
Flockhart.ersér-
vitringslegur
lögfræðingur
aukþessaðvera
viðkvæmasti og
óöruggasti lög-
fræðingur sem
finna má.
............. Það er heldur
ekki ofsögum
sagt að Ally
er klaufi. Hún
segir iðulega ranga hluti á röngum
stöðum og ber þar helst að minnast
ræðu hennar í jarðarför þar sem
hún sagði; „það sem er málið með
jarðafarir er að heiðursgesturinn
er alltaf dauður.“ Þrátt fyrir að vera
rómantíker í eðli sínu er Ally ekki
enn búin að jafna sig á ástarævin-
týri sem lauk þegar hún var í skóla
og allir sem hún vinnur með vita af
því, líka fyrrum kærastinn.
Boston Legal segir sögur af at-
vinnu- og einkalífi hóps snjallra
en tilfinninglegra bældra lögfræð-
inga. Hraður söguþráður og svartur
húmor þáttanna kemur ekki í veg
fyrir að horfst er í augu við félagsleg
og siðferðisleg málefni á meðan per-
sónurnar brjóta í sífellu lögin eða
kanna hve langt er hægt að ganga
innan ramma laganna. James Spa-
der og William Shatner leika Alan
Shore og Denny Crane sem eru
ólíklegir sálufélagar á meðal starfs-
manna Crane, Poole and Schmidt.
David er giftur hinni fallegu Michelle
Pfeiffer en saman eiga þau tvö börn.
svanhvit@bladid.net
heimila og fyrirtækja
alla virka daga ■ |