blaðið - 04.05.2006, Side 2
2IFRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 blaðið
VELFERÐ UMHVERFI NYSKOPUN
^„Látum verkin tala
í málefnum aldraðra
og öryrkja.1
blaöiö^=
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang:frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
JQf Heiðskirt v ' : LéttskýjaðíiiJtr. Skýjaö ■ , Alskýjaö
Rigning, lítllsháttai
ir^^Rigning-t£i.Súld Snjókoma-á^s siydda Snjóél ^-»^S
Algarve 17
Amsterdam 22
Barcelona 20
Berlín 20
Chicago 12
Dublin 11
Frankfurt 22
Glasgow 14
Hamborg 19
Helsinki 12
Kaupmannahöfn 12
London 21
Madrid 21
Mallorka 23
Montreal 12
New York 14
Orlando 19
Osló 15
París 22
Stokkhólmur 13
Vín 16
Þórshöfn 09
Kennari!
BlaöiS/Steinar Hugi
Samræmdu prófin í grunnskólum landsins hófust í gær. I Snælandsskóla í Kópavogi þreyttu þessir krakkar próf í íslensku en í dag verð-
ur þreytt próf í ensku. Framundan eru sfðan próf í dönsku, samfélagsfræði og náttúrufræði. Törninni lýkur síðan með stærðfræðiprófi
lOmaf.
Vísar því á bug að Kópavogs-
höfn sé vinsæl smygleið
Yfirmaður tollsins í Hafnarfirði segir tollaeftirlit í Kópavogshöfn síst lakara þar en annars-
staðar. Hann undrast ummæli þess efnis að tollvarslan sé fámenn og eftirlitið þar veikt.
Tolldeildarstjórinn í Hafnarfirði mót-
mælir því harðlega að Kópavogshöfn,
sem heyrir undir hann, sé vinsæl
smygleið á fíkniefnum vegna þess
hve fáir vinni þar við tollgæslu. Hann
segir eftirlitið í Kópavogi síst lakara
en annarsstaðar. í sjónvarpsþætt-
inum Kastljósi á þriðjudag var haft
eftir dæmdum fíkniefnasmyglara, að
verulegt magn þeirra fíkniefna sem
hingað koma fari í gegnum Kópavogs-
höfn vegna þess hve tollgæslan þar
sé fámenn og eftirlitið því veikt. í Ka-
stjósinu kom einnig fram að tollverðir
sem talað var við hafi tekið undir
þessar fullyrðingar.
Enginn munur milli hafna
Friðjón Margeirsson, tolldeildar-
stjóri í Hafnarfirði er ekki alls kostar
ánægður með þessar fullyrðingar
og segir þær ekki eiga við nein rök
að styðjast. „Ég hef mjög mikið við
þetta að athuga,“ segir Friðjón. „Varð-
andi innflutning á eiturlyfjum er það
einfaldlega þannig að það er sérstök
deild sem sér um áhættugreiningu á
innflutningi til landsins. Þessi grein-
ing nær til alls innflutnings til lands-
ins en beinir augum sínum eðlilega
mest til þess sem kemur til höfuðborg-
arinnar. Þegar þessi greining gefur til-
efni til að athuga eitthvað sem kemur
inn í Kópavogshöfnina þá er það með-
höndlað á nákvæmlega sama hátt og
það væri að koma inn til Reykjavíkur,
það er enginn munur þar á. Þessi að-
ferð er það nýjasta í heiminum í dag
á þessu sviði enda er ómögulegt að
skoða allt sem kemur inn til landsins,
það segir sig sjálft.“
Ekkert stórt smygl tengst Kópavogi
Friðjón segist ekki skilja í starfs-
mönnum tollgæslunnar að fullyrða
svona án þess að hafa fyrir því neinar
sannanir. „Ef starfsmaður tollgæsl-
unnar telur sig vita af því að verið sé
að smygla dópi á tilteknum stað, þá
myndi ég ætla að hann væri skyld-
ugur til þess að gera einhverjar ráð-
stafanir í ljósi þess. Það segir sig sjálft.“
Friðjón bendir á að öll stór smyglmál
sem komið hafa upp hér síðustu miss-
erin hafi komið upp í Reykjavík. „Það
er líka eðlilegt þár sem lang stærsti
hluti innflutningsins til landsins
kemur þangað. Ég veit ekki til þess
að neitt af þessum stóru smyglmálum
sem komið hafa upp hafi tengst Kópa-
vogshöfninni á nokkurn hátt. “
Eins gott og hægt er
Eftirlitið er í mjög góðu standi í Kópa-
voginum að sögn Friðjóns. „Það er al-
veg út úr öllu korti að fullyrða það að
það sé einhver einn staður umfram
aðra þar sem dópinu sé hrúgað inn.
Ég veit eiginlega ekki hvað vakir fyrir
þeim sem segja svona. Ég er ekki að
segja að eftirlitið geti ekki verið betra,
en það er ekkert verra í Kópavoginum
en annarsstaðar, það er af og frá.“
Á morgun
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu Islands
Afturkallar
athugasemd-
ir vegna tón-
listarhúss
mbl.is | Ríkisendurskoðandi
dró í gær til baka athugasemdir
sínar við að þrír ráðherrar hafi
á síðasta ári sett stafi sína undir
leyfi til fjárskuldbindinga við
smíði tónlistarhúss, án samráðs
við Alþingi. Heimildin hafi verið
í fjáraukalögum fyrir árið 2005.
Þetta kom fram í fréttum RÚV.
Sigurður Þórðarson, ríkisendur-
skoðandi, skrifaði fjárlaganefnd
Alþingis bréf í gær þar sem fram
kom að í fjáraukalögum fyrir
árið 2005 hafi verið veitt sérstök
heimild til að ganga til samninga
um byggingu og rekstur húss-
ins. Því sé ekki hægt að draga
þá ályktun að stjórnvöldum
hafi ekki verið heimilt að ganga
til samninga um byggingu og
rekstur tónlistarhúss.
Sjötíu tonn af
osti og viðbiti
Ostur hefur lengi verið eftirsótt
álegg á íslandi og ljóst að ekkert
lát er á vinsældum hans, a.m.k.
ef marka má nýbirtar sölutölur
Osta og smjörsölunnar. Sam-
kvæmt þeim jókst sala á ostum
um 4,5% á fyrstu fjórum mán-
uðum þessa árs samanborið
við sama tímabil í fyrra. Þá var
einnig veruleg aukning í sölu
á hvers konar viðbiti og jókst
salan um 4,3%.
í magni talið jókst sala Osta
og smjörsölunnar um tæp 70
tonn milli tímabila eða úr 1.944
tonnum í 2.013 tonn.
Blaöiö/Steinar Hugi