blaðið - 04.05.2006, Side 4
4IFRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 blaöiö
Sófar & stólar
Mikið úrval
Leður & ofin áklæði
Ótrúlega margir litir
Stærsta litla búðin á íslandi
Yfir 10.000 möguleikar
NVR OG ÖFLUGRI SAVAGE X 4,1
Tómstundahúsið • Nethyl 2 • S. 587 0600 • www.tomstundahusid
Milljónkrónu-
mömmur
Bandaríska þekkingarfyrirtækið
Salary.com gaf í gær út árlega
skýrslu sína um markaðsverðmæti
þeirra verkefna sem heimavinnandi
mæður þurfa að sinna. Samkvæmt
könnuninni myndi hinn almenni
vinnumarkaður borga meðal-
mömmunni hátt í tíu milljónir
króna í árslaun fyrir vinnuframlag
sitt sé tekið mið af fjölþættum
verkefnum og fjölda vinnustunda.
1 rannsókninni töluðu sérfræð-
ingar fyrirtækisins við fjögur
hundruð heimavinnandi mæður og
greindu hvaða verkefni þær sinna
í viku hverri og hversu margar
stundir fara í hvert og eitt þeirra. Af
þessum viðtölum loknum komust
þeir að því að starf heimavinnandi
húsmæðra felst meðal annars í
framkvæmdastjórn, ræstistörfum,
kennslu og eldamennsku. 1 ffam-
haldi að því margfölduðu þeir
vinnustundirnar við hvernig einka-
markaðurinn metur þessi störf og
fengu út verðmæti hins sanna vinnu-
framlags heimavinnandi húsmóður.
Jók Betty Crocker verðmætasköpun
bandariskra húsmæðra?
Fjölmargir hafa krafist þess á undanförnum vikum að ríkið lækki álögur á eldsneyti til að mæta hækkandi eldsneytisverði.
Blalil/Stemar Hugi
Lækkun eldsneytisgjalds
myndi hafa óveruleg áhrif
Ríkið þarf að lækka álögur á eldsneyti verulega til að það hafi áhrif á verðbólguna.
Lækkun eldsneytisgjalds mun hafa
lítil áhrif á verðbólguna að mati
Gylfa Magnússonar, dósents við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla
Islands(HI). Hann segir ríkið þurfi
að lækka álögur sínar á eldsneyti
verulega ef þess á gæta í verðbólgu-
mælingum. Fyrir liggur tímabundin
framlenging á lækkun olíugjalds á
dísilolíu og þá hafa þingmenn Sam-
fylkingarinnar krafist þess að bens-
íngjaldið verði einnig lækkað til að
mæta vaxandi verðbólgu.
Mslá
Eldsneyti hækkar um 18%
Árni Mathiesen, fjármálaráðherra,
lagði fram frumvarp á Alþingi sfðast-
liðinn þriðjudag þar sem gert er ráð
fyrir að tímabundin lækkun á olfu-
gjaldi um 4 krónur verði framlengd
til áramóta. Markmið með frum-
varpinu er m.a. að bregðast við óhag-
stæðri þróun á heimsmarkaðsverði á
dísilolíu.
{ kjölfarið lagði Samfylkingin
það til að bensíngjaldið verði einnig
lækkað tímabundið samhliða fyrir-
hugaðri lækkun olíugjaldsins. Telja
þingmenn flokksins að slík lækkun
geti dregið úr vaxandi verðbólgu
og létt undir fjárhag heimilanna í
landinu.
I gær hélt eldsneytisverð áfram að
hækka þegar Olís og Skeljungur hækk-
HUSGAGNA
wnraia
Bæjarlind 16 - Kópavogi
S: 517 6770
USA
Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. IS0 9001 gæðasta&li
VTEKNOS
y/ Innimálning Gljástig 3,7,20
y/ Verð frá kr. 298 pr.ltr.
yS Gæöa málning á frábæru verði
■/ Útimálning
/ Viðarvörn
/ Lakkmálning
/ Þakmálning
/ Gólfmálning
/ Gluggamálning
"ÍSLANDS MÁLNING
Sérhönnuð málning fyrir fslenskar aðstæður.
Sætóni 4/Sími 5171500
SAVAGE
0 ■ fsÍMÍSiSíeýÆ í
Dýnur með stillanlegri mýkt.
Mýktinni breytt hvenær sem er
með einum takka.
Hún með mjúka & hann með
harða, samt sama dýnan.
Nuddstólar frá
USA
Ekki bara
titringur
Góður nuddstóll
frábær eftir erfiðan vinnudag
3 gerðir & nokkrir litir
Besta verðið
uðu lítraverð á bensíni og dísilolíu um
tæpar tvær krónur. Ákvörðun þeirra
kemur í beinu framhaldi af hækkun
Olíufélagsins frá því á þriðjudaginn.
Algengt litraverð á bensíni er nú um
128 krónur í sjálfsafgreiðslu og kostar
lítrinn af dísilolíu um 123 krónur.
Eldsneytisverð hefur nú hækkað
um rúm 18% á einu ári samkvæmt út-
reikningum Hagstofunnar.
Takmörkuð áhrif
Gylfi Magnússon, dósent við við-
skipta- og hagfræðideild HÍ, segir
matsatriði hvort ríkið eigi að aðhaf-
ast eitthvað yfir höfuð til að spyrna
gegn vaxandi eldsneytisverði. „Elds-
neyti vegur í vísitölu neysluverðs og
hefur þannig áhrif á verðbólgumæl-
ingar. Það er hins vegar alltaf mats-
mál hverju sinni hvernig haga ber
sköttum og gjöldum hins opinbera
á einstökum vörum og óvíst hvort að
lækkun á eldsneytisgjaldi muni hafa
veruleg áhrif á verðbólguna."
Gylfi bendir á að ríkið þurfið að
lækka gjöld á eldsneyti verulega sé
markmiðið að draga úr verðbólgunni.
„Þessi lækkun sem verið er að ræða
um er ekki af þeirri stærðargráðu
að hún skipti neinum sköpum fyrir
almenning. Áhrifin á heildarmynd-
ina eru frekar takmörkuð og það þarf
að leita til einhverra aukastafa í verð-
bólgumælingum til að meta áhrifin.“
Áhyggjufullir ættingjar farþega um
borð I armensku farþegavélinni sem
fórst yfir Svartahafinu á miðvikudag
fara yfir farþegalista vélarinnar.
Mannskætt
flugslys við
strönd Svarta
hafsins
Allir farþegar og áhafnarmeð-
limir armenskrar farþegaflug-
vélar, samtals 113 að tölu, létu
lífið þegar hún steyptist ofan
í Svartahafið rétt sunnan við
Rússland í gærmorgn. Yfir-
völd í Rússlandi segja ástæðu
slyssins vera slæmt veður og
að enginn grunur sé um að
hryðjuverk hafi verið framið.
Vélin var að tegundinni
Airbus A-320 og var 1 eigu arme-
níska flugfélagsins Armavia.
Vélin hvarf af ratsjá aðfararnótt
miðvikudags og brotlenti í
hafið þegar áhöfn vélarinnar
reyndi nauðlendingu í slæmu
skyggni í nágrenni borgar-
innar Sochi, sem er vinsæll
ferðamannastaður í Rússlandi.
Áhöfn var að gera aðra tilraun
til þess að lenda vélinni.
Yfirvöld í Moskvu segja að
26 Rússar hafi verið um borð
í vélinni og er talið að hinir
hafi verið Armenar. Þjóðarsorg
hefur verið lyst yfir í Rússlandi
og Armeníu vegna slyssins.