blaðið - 04.05.2006, Side 8

blaðið - 04.05.2006, Side 8
8IFRÉTTIR FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 blaöiö Talibanar styrkja stöðu sína Óttast er að tíðar sjálfsmorðárásir og aftökur í Afganistan í vetur séu til marks að talibönum vaxi á ný ásmegin í landinu og undirbúi enn frekari árásir til þess að steypa nú- verandi stjórn af stóli. Liðsmönnum talibana hefur fjölgað í dreifbýlum héruðum í suðurhluta landsins og bendir aukinn íjöldi þeirra til að átök í landinu munu versna á kom- andi mánuðum. Talibanar eru í auknu mæli að ná Uruzgan-hérrað- inu á sitt vald og herma fréttir að áhrifþeirra fari ört vaxandi í Kanda- har og Helmand. Óttast er að aukin áhrif þeirra í suðurhluta landsins, áhrif sem fara vaxandi með hverri viku sem líður styrki raddir þeirra Afgana sem telja að ríkisstjórn Hamid Karzai, forseta, sé ófær um að treysta stöð- ugleikann í landinu. Ljóst er að afganski herinn og lögreglusveitir landsins eru ekki í stakk búnar til þess að halda talibönum í skefjum á svæðinu, miðað við núverandi ástand og skipulag. Afganskir her- menn, sem eru í fremstu víglínu í baráttunni gegn talíbönum, hafa krafist þess að forsetinn fjölgi her- mönnum á svæðinu. Bandaríska blaðið New York Times hefur eftir afgönskum embættismönnum að þeir óttist að ástandið versni þegar bandarískir hermenn draga sig frá suðurhluta landsins og sveitir á vegum NATO taka við hlutverki þeirra. Þeir efast um að hersveitir skipaðar Bretum, Kanadamönnum, Austurrikismönnum og Hollend- ingum hafi þrek til að berjast við talibana vegna stuðnings almenn- ings við veru þeirra í landinu. Þeir telja að brotthvarf bandarískra her- manna búa til ákveðið tómarúm á svæðinu sem vígamenn talibana munu notfæra sér til þess að styrkja stöðu sína enn frekar. Allt frá innrás Bandaríkiamanna og bandamanna þeirra í Irak árið 2003 hefur minna borið á fréttum af ástandinu i Afganistan í fjölmiðlum á Vesturlöndum. Þrátt fyrir að tekist hafi að koma á laggirnar ríkisstjórn í stað talibanastjórnarinnar sem féll 2001 hefur hún alla tíð haft veik tök á stjórn landsins. Óljóst er með öllu hvort að núverandi stjórnskipan haldi velli. Á dögunum birti banda- ríska tímaritið Foreign Policy lista yfir þau tíu ríki sem eru líklegust til þess sökkva ofan í dý stjórnleysis og var Afganistan í níunda sæti íistans og hækkaði um eitt sæti milli ára. Fátt bendir til þess að þeirri þróun verði snúið við í bráð. Þrátt fyrir að margt hafi áunnist í Afganistan undanfarin ár eru alvar- leg hættumerki á lofti. I skýrslu sem rannsóknarstofnunin Council on Foreign Relations í Bandaríkjunum kemur fram að sérfræðingar telja að skipulag vígamanna talibana sé betra en það var árið 2001 og að staða þeirra sé sífellt að styrkjast í héruðum þar sem miðstjórnvald stjórnarinnar í Kabúl er veikt. Einnig benda þeir á að leiðtogar talibana séu mjög meðvitaðir um að fari áhugi alþjóðasamfélagsins á ástandinu í Afganistan minnkandi muni það skapa öryggistómarúm sem verður til að styrkja stöðu þeirra ennfrekar. Avion hefur starf- semi í Þýskalandi Flugfélagið Star Europe, sem er dótt- urfélag Avion Group, hefur hafið starfsemi í Þýskalandi. Félagið hefur fengið útgefið flugrekstrarleyfi frá þarlendum flugmálayfirvöldum eftir aðeins þrjá mánuði, en samkvæmt tilkynningu frá félaginu í gær tekur yfirleitt 12 til 18 mánuði að afla slíks leyfis. Félagið verður með þrjár Airbus 320 flugvélar í rekstri sumarið 2006 og áætlað er að fjölga vélum umtals- vert á næstu árum. Flogið verður til áfangastaða í Suður- og Austur-Evr- ópu auk Mið-Austurlanda. f sumar verður flogið frá fjórum stöðum í Þýskalandi, en þeir eru Dusseldorf, Frankfurt, Köln og Stuttgart. Fjölskyldugreiðslur Greiðslurtil foreldra barna 9-18 mánaða x Ertu með? Leysa þarf vanda foreldra 9-18 mánaða barna frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til leikskólinn hefst, með mánaðarlegum 50.000 kr. beingreiðslum. Slíkar greiðslur tryggja aukið val foreldra og börnum aukið öryggi. Blaöil/SteinarHugi Fallegt við Geysi Þrátt fyrir aö hinn heimsfrægi Geysir sé hættur að spúa vatni í bili er iitli frændi hans Strokkur ennþá í fullu fjöri. Ferðamenn hvaðanæva úr heiminum koma tii að berja dýrð- ina augum, eins og þessir þýsku túristar gerðu á dögunum. 3U33I tónLeiKaröÐ á nasa SÖGURAF LANDI Tónleikar 4. maí Miðasala í verslunum OgVodafone og á NASA alla virka daga frá kl. 13.00 til 16.00 og í sími 51 11302 www.nasa.is Húsið opnar kl. 20.00. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 í fangelsi fyrir kynferðisbrot mbl.is | Tæplega þrítugur karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í þriggja ára og sex mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart stjúpdóttur sinni og vin- konu hennar. Var maðurinn einnig dæmur til að greiða stjúpdóttur sinni 1,5 milljónir króna í miska- bætur og hinni stúlkunni eina milljón króna. Brotin gegn stjúpdótturinni voru framin á tímabilinu frá miðju ári 2000 fram til októberloka 2004. Brotin gegn hinni stúlkunni voru samkvæmt ákæru framin á tímabil- inu júní til október 2004 en dómur- inn taldi með hliðsjón af. Maðurinn neitaði sök, en í dómi héraðsdóms segir, að framburður mannsins sé ótrúverðugur en framburður stjúpdótturinnar afar trúverðugur. O H- O Z) I Guggu ráð: Hjá okkurfœrðu útsæði, xW áburð. yfirbreiðslur og öll 7 verkfæri sem til þarf o GARÐHEIMAR Heimur skemmtilegra hugmynda og hluta Stekkjarbakka 6 • Mjódd • Sími: 540 33 00 • www.gardheimar.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.