blaðið - 04.05.2006, Qupperneq 16
16 I FERÐALÖG
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 blaðið
Utanlandsferdir
hækka um allt aö 12%
Verð utanlandsferða hœkkar þegar krónan veikist en lækkar ekki við styrkingu hennar.
Á heimasíðu Neytendasamtakanna
ns.is kemur fram að margar ferða-
skrifstofur hafi tilkynnt viðskipa-
vinum sínum um væntanlegar verð-
hækkanir á pakkaferðum og sumar
hafi hækkað verð nú þegar. Iris ösp
Ingjaldsdóttir lögfræðingur hjá
Neytendasamtökunum segir mikið
um að fólk hringi og kvarti út af
hækkunum á utanlandsferðum.
Á ns.is hefur einnig verið gerð
könnun á verðlagsþróun pakka-
ferða undanfarin ár miðað við upp-
lýsingar sem fram koma í vísitölu
neysluverðs frá Hagstofu Islands.
Á árinu 2001 kom verðbólguskot
vegna veikingar krónunnar og
hækkuðu pakkaferðir á því ári um
13,1%. Þegar krónan tók að styrkj-
ast ári síðar skilaði það sér aftur
á móti ekki í lækkun pakkaferða
heldur héldu þær áfram að hækka.
íris Ösp Ingjaldsdóttir, lögfræð-
ingur hjá Neytendasamtökunum,
segir mikið um að fólk hringi og
kvarti út af hækkunum á utan-
landsferðum. „Fólk er oft á tíðum
búið að borga staðfestingargjald
og er ekki tilbúið að tapa því með
því að hætta við ferðina. Sumar
ferðaskrifstofur greiða þó staðfest-
ingargjaldið til baka ef hætt er
við ferðina innan við viku frá því
staðfestingargjaldið er greitt. Ég
veit dæmi þess að fólk sé að borga
allt að 12% hærra verð fyrir ferðina
Sóiarlandarferðin verður dýrari í ár en
fólk bjóst við þegar ferin var keypt.
en áður var gefið upp sem getur
verið á milli 20-30 þúsund krónur
fyrir fjölskylduferð." Iris segir að i
sumum tilfellum geti fólk sloppið
við verðhækkun með því að borga
ferðina upp fyrr en áætlað var
en það geti verið vandkvæðum
bundið þvi fólk hafi fé ekki alltaf á
reiðum höndum.
Gefa þarf upp forsendur
fyrir hækkunum
„Það er ekkert ólöglegt við að
hækka eða lækka verð á ákveðinni
vöru eða þjónustu en það þarf að
gera það með ákveðnum hætti,"
segir Iris. Á ns.is kemur fram
að rök ferðaskrifstofanna fyrir
hækkun nú séu fyrst og fremst
hækkun á erlendum gjaldmiðlum.
„Eðlilegt hefði verið að gerður hefði
verið samningur við hvern og einn
viðskiptavin ferðaskrifstofanna
þar sem fram hefði komi að verð
á ferðinni gæti breyst og gefa þá
upp þær forsendur sem geri það að
verkum."
íris segir að verðhækkanir eins
og þessar megi ekki koma neyt-
endum í opna skjöldu eins og nú
hafi gerst. Iris segir ennfremur að
bregðist ferðaskrifstofur ekki við
þessum athugasemdum frá Neyt-
endasamtökunum verið málið sent
til Neytendastofu sem muni þá
taka það upp.
hugrun@bladid.net
Nýja línan frá Prestigious er komin...
Z-brautir og gluggatjöld
Faxafen 14 108 Reykjavík Sími 525 8200 fax 5258201 z@z.is
Golfferðir til
Manchester
GB Ferðir munu bjóða 30% afslátt af
golfpökkum til Manchester ef bókað
er fyrir 15. mai. I boði verða pakkar
sem innihalda flug til Manchester
með flugvallarsköttum, þrjár nætur
með morgunverði og 3*18 holur á
Worsley Park Championship coures
og frítt aðgengi að heilsulind hótels-
ins. Verð er 59.900 krónur á mann
í tvíbýli. Dagsetningarnar sem eru
í boði eru: 12.-16. mai, 9.-12. júní og
16.-19. júní.
Tónleikaferð á
Nylon og Westlife
Netklúbbur Icelandair býður á næst-
unni upp á ferðir af ýmsum toga. I
maí verður farið á tónleika Westlife
ogNylon. Fáar poppsveitir hafa notið
jafnmikilla vinslælda og Westlife síð-
ustu árin en til þessa hefur hún selt
yfir 34 milljónir platna. Stelpunum
í Nylon hefur hlotnast sá heiður að
hita upp fyrir þessa farsælu popp-
hljómsveit. Verð á mann fyrir þessa
ferð er kr. 34.500. Innifalið er flug,
miði á tónleikana á Wembley og út til London 17. eða 18. maí en heim-
flugvallarskattur. Hægt er að fljúga koma er 19. eða 21. maí.
Stœrsta tónlistarhátið
í Norður-Evrópu
Hin vinsæla Hróarskelduhátíð
verður haldin í Danmörku 29. júní-
2. júlí en tónlistarhátíðin er ein sú
stærsta í Norður Evrópu. Á hverju
ári koma yfir 150 hljómsveitir fram
á hátíðinni frá fimmtudagi til sunnu-
dags. Netklúbbur Icelandair mun
bjóða upp á ferðir á tónleikana en
verð er 44.900 kr og er þá innifalið
flug báðar leiðir flugvallarskattur
og miði á Hróarskeldu.
A-liner
Fremst meðal jafningja
Aliner eða A-hús eru afar þægileg og vönduð að allri
gerð. Þau eru einangruð í hliðum og þaki og það tekur
innan við mínútu að reisa vagninn og gera hann kláran
Smá að utan, rúm að innan.
Opið
virkadaga 10-18
laugardaga 10-16
sunnudaga 12-16
Tryggðu þér A-hús
á gamla genginu
til 9. maí
LLINGSEN
Grandagaröi 2, sími 580 8500