blaðið - 04.05.2006, Síða 24
32 I MENWING
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 blaöift
Fyrrum eiginltona
leysir frá skjóðunni
Fyrrverandi eiginkona Sean Conn-
ery, leikkonan Diana Cilento,
hefur skrifað ævisögu sína sem
nefnist Nine Lives. Hún eyðir þar
talsverðu plássi í lýsingar á ellefu
ára hjónabandi sínu og Sean
Connery en hún yfirgaf hann loks
vegna ástar á handritahöfund-
inum Anthony Shaffer. Cilento
segir að þegar hún tilkynnti um
ævisagnaskrifin hafi Connery
samstundis hafið að skrifa sína
eigin ævisögu. Hann má vera
nokkuð órólegur því Cilento ber
honum ekki vel söguna.
Cilento segir frá því að Connery
hafi í upphafi sambands þeirra
samið ballett í klassískum stíl sem
hann kallaði Svartavatnið. Hann
hafði einnig ánægju af því að fara
með ljóð og mála myndir. Cilento
segir að frægðin hafi loks stigið
Connery til höfuðs. Hann hafi breyst
í karlrembu og orðið afar nískur.
Cilento og Connery gengu í hjóna-
band árið 1962 og eignuðust einn
son, Jason. Cilento vegnaði vel sem
leikkonu á þessum tíma og fékk Ósk-
arsverðlaunatilnefningu fyrir leik
sinn í Tom Jones, nokkuð sem vakti
öfund hjá Connery. Hann krafðist
þess að hún hætti kvikmyndaleik
og sneri sér að hlutverki húsmóður.
Hún gerði það.
Cilento lýsir því í bókinni þegar
Connery fylltist afbrýðisemi og
lagði hendur á hana. „Þetta gerð-
ist bara einu sinni en það var einu
sinni of oft,“ segir hún. Árið 1965
sagði Connery í viðtali við Playboy
VÖNDUÐ HÚSGÖGN
Diana Cilento. Fyrrum eiginkona Sean Connery hefur sent frá sér ævisögu þar sem hún
lýsir ellefu ára hjónabandi þeirra.
að hann sæi ekkert athugavert við
að berja konu, en tók fram að það
ætti ekki að berja hana á sama hátt
og karlmann. I viðtali við við Vanity
Fair árið 1993 sagði hann að sumar
konur vildu láta beita sig ofbeldi.
Orð hans vöktu mikla reiði en hann
sagði sjálfur að þau hefðu verið
tekin úr samhengi.
Connery hefur ætíð neitað að hafa
barið konu sína en hún segir að það
eina skipti sem hann beitti hana of-
beldi hafi haft hvað mest áhrif á að
hún ákvað að yfirgefa hann. Hún
segir að þau Connery hafi aldrei
rætt atburðinn sín á milli.
Sean Connery. Er að skrifa eigin ævisögu.
NÝJAR VÖRUR
Glatkistan
Jón Þór Pétursson
Kvartmíluhraði
Það er óhætt að fullyrða að gíf-
urlegar breytingar hafa orðið
á íslenskum fjölmiðlamarkaði
síðastliðin tíu ár og ástæðurnar
margvíslegar. Upplýsinga- og net-
væðing þjóðfélagsins hefur til að
mynda orðið til þess að hinir hefð-
bundnu ritmiðlar hafa þurft að
söðla hressilega um stefnu. Hefð-
bundnu fjölmiðlarnir hafa þannig
orðið þéttari og hraðari. Tíminn
til að vega og meta hefur í sifellu
verið skorinn niður, allt verður að
gerast strax, helst i gær. Ákveðnir
kimar sem marað höfðu á siðum
prentmiðlanna í hálfu kafi sukku,
fengu ekki lengur inni með sjón-
armið sín á formlegum vettvangi
fjölmiðla. Á þetta hefur verið bent
á undanförnum misserum, að
minnsta kosti hvað varðar þróun
hinna hefðbundnu ritmiðla. Æs-
ingurinn vegna breytinganna
hefur sett taugakerfi landsmanna
í uppnám og sjúkdómseinkenni
gera viða vart við sig.
Hrun æsingsins
Hraðinn hefur orðið til þess að
margir hafa ofþornað og lyppast
niður. Aðrir sjá í hvað stefnir og
reyna að hægja á sér áður en illa fer.
í síðustu viku beið Dagblaðið Vísir
(DV) skipbrot. Blaðamennska þess
var vissulega umdeild og snörp og
svo virðist sem að fólk hafi ekki
almennt þolað álagið, blaðið naut
lítillar hylli og því hefur því verið
breytt i helgarblað, trúlega i svona
séð og heyrt stíl. Þetta er nákvæm-
lega vandinn við hraðann - kvart-
mílu spyrnubrautarinnar - það
brenna alltaf einhverjir yfir, kom-
ast ekki í mark, sitja á miðri braut
og hellast úr lestinni - deyja!
Hraðatakmarkanir
Rætt hefur verið að undanförnu
um að setja lög sem myndu tak-
marka hraða ungra ökumanna
sem eru taldir líklegir til að hafa
tileinkað sér hraða samtímans
af meiri innlifun en aðrir þegnar
þessa lands. Lögin myndu segja
til um hversu kraftmikla skruggu-
kerru hinn ungi ökumaður mætti
eiga, hversu hratt á móti örlögum
sínum þeir mættu ganga. Það
er víða verið að stíga á einhverja
andlegu bremsu eins og fjölmiðla-
lögin nýju gefa til kynna. Það virð-
ast nefnilega allir vera hræddir
við þennan hraða sem endalaust
er lofsunginn. Ef til vill eru bara
allir hræddir við að deyja.
jon@bladid.net
kr. 108.600.-
TUNGUSÓFI - SKEMILL FYLGIR
MICROFIBER ÁKLÆÐI
UTIR: UÓST (BEIGE OG UÓSBRÚNN)
ÚRVAL HÚSGAGNA Á VERÐUM SEM
KOMA ÞÉR ÞÆGILEGA Á ÓVART
kr. 119.900,-
MEGAN 3JA SÆTA HÆGINDASÓFI
ÍTALSKT LEÐUR
LITIR: DÖKKBRÚNN, UÓSBRÚNN
OG SANDLITAÐUR
kr. 84.900,-
PREMIUM SVEFNSÓFI
2JA SÆTA SVEFNSÓR MEÐ HEILSUDýNU
MICROFIBERÁKLÆÐI
kr. 34.900,-
BOSTON HÆGINDASTÓLL
MEÐ RUGGU OG HÁU BAKI
MICROFIBERÁKLÆÐI
FÆST IMÖRGUM LITUM
kr. 43.900.-
BOSTON HÆGINDASTÓLL
MEÐ RUGGU OG HÁTT BAK
ITALSKT LEÐUR
LITIR: DÖKKBRÚNN OG UÓSBRÚNN
RAFMAGNSNUDD
kr. 43.900.-
MEGAN HÆGINDASTÓLL
MICROFIBERÁKLÆÐI
RAFMAGNSNUDD
UTIR: UÓSBRÚNN
kr. 59.900,-
MEGAN HÆGINDASTÓLL
Italskt leður
RAFMAGNSNUDD
LfTIR: UÓSBRÚNN, DÖKKBRÚNN,
SVARTUR OG GULUR
> VtSAOGEURO
1 RAÐGRElÐSLURj
VISAl
- MAG1TÆ6AI AUORGANIt
SETl
HUSGAGNAVERSLUN
________OPNUNARTlMI: MÁNUD - FÓSTUD 11:00 -18:00 LAUGARDAGA 11:00 -16:00
SETT HÚSGAGNAVERSLUN • ASKALIND 2A - 201 KÓPAVOGUR - SlMI 534 1400 - WWW.SETT.IS
SU DOKU talnaþrautir
Su Doku þrautin snýst um
aö raða tölunum frá 1 -9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
5 2 3 8
3 4 8 1
4 7
6 8 7
6
9 1 4 5
9 2 1 7 5
6 8 9 1
4 9 3 2
SUDOKLi5HDP»IS ®66ioois
Lausn siðustu gatu
i 3 4 8 7 9 6 5 2
2 5 8 1 6 4 7 3 9
6 7 9 2 3 5 4 8 1
3 6 1 5 9 2 8 7 4
7 8 2 3 4 6 1 9 5
4 9 5 7 1 8 2 6 3
9 1 3 4 8 7 5 2 6
8 2 6 9 5 1 3 4 7
5 4 7 6 2 3 9 1 8