blaðið - 04.05.2006, Qupperneq 26
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 blaðiö
ÁLFABAKKA
sAÁffám*
SCARY MOVIE 4
SCARY MOVIE 4 YIP
FAILURE TO LAUNCH
FIREWALL
V FOR VENDETTA
WOLF CREEK
EI6HT BELOW
LASSIE
BAMBI 2 ísl. tal
WL 4-5-6-7-8-9-10
KL 4-6-8-10
KL 4-6-8-10:10
KL 5:45-8-10:20
KL8
KL 10:30
KL5:45
KL 3:45
KL4
KRINGLUNNI^—
sAAimm*
i«Si
-SÞ***'
SOUTYMOV1E4 KL6-&-1040
THE INSIDE MAN KL 5:30-8-10
FAILURE TOIAUNCH KL 6-8:15-10:20
KEFLAVÍK
SCAKY MOVIE 4 KL.8-10
FAILURE TO LAUNCH KL8
FIREWAU KL10
AKUREYRI
lUKCTKI -M|
mmáMi
SCARY MOVIE 4 KL 6-8-10
FAILURE TO LAUNCH KL8-10
SYRIANA KL 5:50
SCARY M0VIE 4 KL 6-7-8-9-10
FIREWAU KL 5:45-8-10:10
V FOR VENDETTA KL 5:40-8:15-10
THE MATADOR KL6-8
______________________________J
NÝTTÍBÍÓ
SmtiRH^ BÍÓ
•.v * RAUÐHETTA ENSKTTAI
RAUÐHETTA ENSKT TAL
kl.4,6,8og10
RAUÐHETTA (SLENSKT TAL
kl. 4og6
PRIME
W. 8og 10.30B116ARA
PRIMEílúxus
kl. 5.30,8 og 10.30 Bl 16 ARA
THE HILLS HAVE EYES
kl. 8og10.30BJ. 16ÁRA
ICEAGE2
kl. 4,6 og 8 ENSKT TAL
ÍSÖLD2
ki. 4 og 6 ÍSLENSKT TAL
WHEN A STRANGER CALLS
kl. 10 B.L 16 AfíA
REOTlBOGinn
RAUÐHETTA ENSKT TAL
kl. 6,8og 10
RAUÐHETTA fSLENSKT TAL
kl. 6
PRIME
kl. 5.30,8 og 10.30 Bl 16ÁRA
THE HILLS HAVE EYES
kl. 8 og 10.308.1.16ARA
WHEN A STRANGER CALLS
kl.6,8og 10 BJ.16ÁRA
INSIOEMAN
kl. 5.40,8 og 10.30 Bl 16ÁRA
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
kl. 4og6
FAILURE TO LAUNCH
kl. 4,6og8
RUNNING SCARED
kl. 8 og 10.20BJ.16ÁRA
LUCKY NUMBER SLEVIN
kl. 10BJ.16ÁRA
ÍSÖLD2
kl.4 ÍSLENSKT TAL
Hn/ i/.u tiju
□Tl Dolby JDD/
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
kl.6
INSIDE MAN
kl.8og10.25B.U6ARA
THE HILLS HAVE EYES
kl.lOBJ. 16ÁRA
ICE AGE2
kl. 8 ENSKT TAL
34 I AFÞREYING
Trylltur dans og hjartasár
Um helgina fór fram seinni helmingur tónlistarhátíðarinnar Vorblót (Rite ofspring) á Nasa
við Austurvöll. Heimstónlist hvaðanœva að var í boði ogferskir vindar blésu í andlitgesta.
KK og Blue Truck blúsuðu til að gleyma Blaíi6/lngó
Á laugardagskvöldið lék serbneska
sígaunahljómsveitin Kal og íslenska
hljómsveitin Stórsveit Nix Nolte.
Stórsveitin steig á stokk kl. 9.30 með
sinn tónlistarbræðing en það er varla
hægt að lýsa tónlistinni öðruvísi.
Stúlka sem sat mér við hlið sagði að
túba væri kynæsandi hljóðfæri en
heyra mátti í einu slíku hjá Nix Nolte.
Ég velti því fyrir mér og verð að vera
sammála. Það er eitthvað kynæsandi
við alltof stóran lúður sem virðist
vera betur heppnaður til þess að til-
kynna komu skipa en að vera hluti
af hljómsveit. Varði úr Varðamynd-
unum spilaði á strengjahljóðfæri og
þarna var fiðla og þarna var trompet
og trommur. Saman mynduðu þessi
hljóðfæri ótrúlega magnaðan aust-
rænan bræðing sem hefði verið fínt
á Balkanskagaættarmóti. Stórsveitin
var þétt á velli og ekki kílói ofaukið.
Sígauna sveitaball
Þegar Stórsveitin hafði lokið sér afvar
komið af hljómsveitinni Kal. Hljóm-
sveit sem eingöngu er skipuð karl-
mönnum af Romani-uppruna. Fyrr
í vikunni hafði ég fengið disk í hend-
urnar með Kal sem heitir einfaldlega
Kal. Sá diskur er nýkomin út og sá
fyrsti sem hlýtur alþjóðlega dreifingu
en hann hefur verið í efsta sæti World
Music Chart um nokkurt skeið. Það
sem einkennir diskinn Kal er hvernig
þeir flétta saman ólíkum straumum
og stefnum við tónlistarhefð Ro-
mani-sígauna. Jazzskotnir taktar, oft
undir drum&bass áhrifum, ég var
því býsna spenntur fyrir tónleikana.
Það verður að segjast strax að þeir
ullu ekki vonbrigðum. Keyrslan var
í fyrirrúmi og lýðurinn dansaði eins
og enginn morgundagur væri. Kal
voru reyndar ekki jafn fjölbreyttir á
sviði enda ekki með skarann með sér
til aðstoðar eins og á disknum en á
móti lumuðu þeir þó á ýmsum vel út-
færðum fléttum. Þá gaf að heyra og
sjá trommusóló, fiðlusóló, endalausa
keyrslukafla og jafnvel gamanmál á
milli laga. Allur flutningur var ótrú-
lega þéttur og hvað varðar að fá sal-
inn í lið með sér þá átti Kal vinning-
inn hvað bæði kvöldin varðar.
Frá bökkum Mississippi
Ég verð að viðurkenna að mér fannst
blandan vera svolítið furðuleg á
sunnudagskvöldið. Það var ekkert
að atriðunum sem slikum, langt
því frá, þau voru bara afar ólík. KK
var mættur á svæðið með blúshljóm-
sveitinni Blue Truck. KK sýndi það
og sannaði á þessum tónleikum
að hann er fagmaður fram í fingur-
góma. Þar að auki hefur hann fengið
með sér einvalalið hljóðfæraleikara.
Persónulega finnst mér stuðboltinn
KK alltaf hafa eitthvað meira fram að
færa en ballöðumaðurinn KK. Hvort
sem það er hás söngur, blúsuð gítar-
riff eða munnhörpuíeikur þá er KK í
essinu sínu.
Það er eitt sem maður verður að fá
á tilfinninguna á blústónleikum. Blús-
arinn verður að bera tilfinngar sínar
á borð og segja farir sínar ekki sléttar.
Ástin hefur venjulega leikið blúsar-
ann grátt og treginn verður að skína
í gegn. Á einum tímapunkti á tón-
leikunum sleit KK streng í gítarnum
sínum. Á meðan KK athafnaði sig við
að skipta um streng hóf hinn gítar-
leikarinn upp raust sína og svei mér
þá ef hann hljómaði bara ekki betur
en KK sjálfur. Tregi heimsins hvíldi
á herðum hans og í gegnum salinn
ómaði sú þrá hans að eiga stund með
stúlku einni. Harmurinn rak hann
síðan inn í dramatískt sóló. KK sló að
lokum á létta strengi þegar hann spil-
aði Kátir voru karlar á munnhörpu
og salurinn tók undir.
Sekkjapípusalsa
Síðasta númerið á Vorblótinu að
þessu sinni (ég gef mér að það verði
haldið aftur, vona það að minnsta
kosti) var hljómsveitin Salsa Celtica
frá Skotlandi. Hvorki fleiri né færri
en 11 manns eru í hljómsveitinni full-
skipaðri sem var mætt á svæðið. Rétt
eins og með hljómsveitina Kal hafði
ég fengið nýjasta disk hljómsveit-
arinnar í hendur rétt fyrir tónleik-
ana. Diskurinn heillaði mig ekkert
sérstaklega til að byrja með, afskap-
lega hefðbundin salsatónlist og mér
fannst vanta einhvern háska í tónlist
sem þekkt er fyrir tilfinningahleðslu.
Salsa Celtica sýndi aftur á móti á tón-
leikunum á sunnudaginn að salsa er
fyrst og fremst dans- og stemnings
tónlist. Það var allt annað að hlýða á
hljómsveitinal því andrúmslofti sem
skapaðist á Nasa. Sekkjapípuleikar-
inn fór á kostum og urðu áheyrendur
þess heiðurs aðnjótandi að fá að hlýða
á gítarriffið úr gamla AC/DC slagar-
anum „Thunderstruck" á nikkuna.
Hver slagarinn á fætur öðrum fylgdi
í kjölfarið og taugakippir fóru að gera
vart við sig í ólíklegustu útlimum.
Mikill er máttur slíkrar tónlistar.
jon@bladid.net
Hvað erað gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði
líðándi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net.
12.15 - Fyýirlestur
Unnur Steingrímsdóttir: Hvort
ertu fugl, hús eða fiskur?
Lögberg stofa 101
18.00 - Leikrit
Nemendaleikhús. Nú skyldi ég
hlæja...
Þjóðleikhúsið
Midi.is | Nú skyldi ég hlæja, væri
ég ekki dauður! er byggt á fjöl-
mörgum þekktum og minna
þekktum íslenskum þjóðsögum
þar sem mætast tröll, draugar,
huldufólk og þorparar. Sumar
þeirra eru bráðfyndnar, aðrar
draumkenndar og sumar hverjar
eilítið skelfilegar.
19.30-Tónlist
Rauð tónleikaröð. Sinfóniu-
hljómsveit íslands
Háskólabíó
Miðasala á midi.is
20.00 - Leikrit
Átta konur
Þjóðleikhúsið
Miðasala á midi.is
20.00 - Leikrit
Hungur
Borgarleikhúsið
Miðasala á midi.is
21.00 -Leikrit
Litla Hryllingsbúðin
Leikfélag Akureyrar
Miðasala á midi.is
22.30 - Sýning
UPPISTAND
Borgarleikhúsið
Miðasala á midi.is
tTJ^ágjrjii' Lyj
ú fy/í/iiu
Eigum við að láta drauminn rætast ?
Hafðu samband við okkur og við látum verð af því.
7; w
Glæsilegt einbýlishús með sundlaug í nýrri
hluta La Marina.
{ húsinu eru 3 svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Góðlóðalltí kringumhúsiðmeðsundlaug. Húsið
er á mjög góðum stað nálægt verslunum og veit-
ingastöðum í nýrri hluta La Marina.
Verð á eign 299.500€
Glæsilegt cinbýlishús á 2 hæðum.
Á neðri hæð hússins eru 2 svefnherbergi, stór
stofa, eldhús og baðherbergi. Á efri hæðinni er
stórt herbergi, baðherbergi, solarium og útisturta.
Húsið er 4 ára gamalt og mjög vel með farið með
sameiginlegri sundlaug.
Verð á eign 189, 000€
Þjónusta
Sjáum um allan frágang á lánum og öðrum pappírum
varðandi kaup á húshæði á Spáni. Útvegum leiguhúsnæði,
akstur til og frá flugvelli, farseðla til og frá Spáni, bílaleigubíla