blaðið

Ulloq

blaðið - 11.05.2006, Qupperneq 24

blaðið - 11.05.2006, Qupperneq 24
24 I VIÐTAl FIMMTUDAGUR 11,MAÍ2006 blaðið BlaðiÖ/SteinarHugi Legg rœkt við viðkvœmnina „Alveg frá því ég fann fyrst fyrir leiklistarbakeríunni hef ég haldið að leiklistin skipti mig öllu máli í heiminum. Hún er mér afar mikils virði en nú nýlega finn ég að ég get kvatt hana tímabundið, sem ég er að fara að gera. Ég ætla að fara í háskóla og læra stjórnun og svo ætla ég að sjá hvert ég er leidd eftir það,“ segir Edda Björgvinsdóttir. Hún er þessar vikurnar á leikferð um landið með leikritið Alveg brilljant skilnaður en síðan taka við ný verkefni á skólabekk Afhverju lœra stjórnun? „Ég er bara svo stjórnsöm og frek. Ég er búin að fá nóg af því að stjórna ekki. Reyndar hef ég rekið ótalmörg leikhús og í tíu ár hef ég haldið námsskeið i stjórnendaþjálfun fyrir stjórnendur fyrirtækja. Mér finnst gefandi að tukta til hörkutólin sem eru í stjórnunarstörfum, kenna þeim, láta þá halda ræður og plokka af þeim steinsteypuna þannig að þeir noti sjarmann. Svo er ég líka með sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur þar sem ég hjálpa þeim að öðlast sjálfstraust og rísa á fætur. Áður en ég byrjaði með þessi námskeið þurfti ég að æfa mig í því að þora að vera ég sjálf. Það er erfiðast að vera maður sjálfur því þá koma í ljós allir vankantar manns. Ég var hrædd við það. Það tók mig langan tima að bjóða upp á mig eins og ég er og notast við reynsluna sem ég hef og námið sem ég á að baki. Leikari sem leikur sorgmædda manneskju, glaða manneskju, örugga manneskju eða hatursfulla verður að ganga í eigin tilfinningabanka. Hann verður að ná í tilfinningarnar og leggja þær á borðið og það er erfiðast af því maður vill halda sig til baka og fela sig. Það að leika er það sama og að vera einlægur. Þetta var eitt það fyrsta sem Pétur Einarsson sagði manni í Leiklistarskólanum. Ég skildi ekki hvað hann átti við fyrr en mörgum árum seinna.“ Með fiðrildi í maganum Hefur óttinn við að vera ekkifyndin á sviði einhvern tíma gripið þig? „Ég þjáist af honum í vinnunni. I hvert einasta skipti sem ég stíg á svið þá grípur köld kló um hjartað á mér og ég hugsa: „Guð minn góður, hvað ef fólkið sem er í salnum núna hlær ekki, hvað ef því finnst ég ekki fyndin? Hvað geri ég þá?“ Ég held reyndar að flestir gamanleikarar finni fyrir þessum óstjórnlega ótta. Færnin felst í því að takast á við þessa tilfinningu, ýta henni burt og grípa aðrar tilfinningar í staðinn sem eru áskorun, tilhlökkun og spennufíkn. í mörg ár hugsaði ég: „Hvaða fífl var ég að láta í það skína að ég hefði gaman af að fá fólk til að híæja? Af hverju gerðist ég ekki dramatísk leikkona því þar finnur maður ekki eins áþreifanlega fyrir því ef manni mistekst“.“ Af hverju gerðistu ekki dramatísk leikkona? „Það hvarflaði ekki að mér þegar ég fór í Leiklistarskólann að ég ætti eftir að verða gamanleikkona. Það var algjörlega fjarri mér, öfugt við Örn Arnason sem fór beinlínis í Leiklistarskólann til að verða gamanleikari. Sumt sem ég gerði vakti hlátur og svo var ég sett í fyndin hlutverk og það vakti meiri hlátur. Svo var ég allt í einu orðin gamanleikkona. Ekki er langt síðan önugur blaðamaður sagði í DV að gamanleikarar væru sífellt að kvarta undan því að gamanleikur nyti ekki virðingar. Við erum ekki alltaf að kvarta undan því. Hins vegar finnur maður fyrir ákveðinni lítilsvirðingu gagnvart gamanleik. Gamanleikarar þykja ekki jafn góðir leikarar eða jafn hæfileikaríkir og dramatískir leikarar. Þetta er afstaða sem ég varð strax vör við í Leiklistarskólanum. Áður en nemendur útskrifuðust voru þeir teknir á eintal. Kennari minn sagði grafalvarlegur við mig: „Áttaðu þig á því, Edda mín, þegar þú kemur út í lífið að þér hættir til að detta ofan í gamanleik!”. Það var eins og hann væri að segja: „Þér hættir til að vera mella“. Hannhefði átt að segja: Edda, þú hefur fágætan hæfileika, viltu rækta hann, fara vel með hann og vera stolt af honum, hvað sem hver segir, því allir alvörulistamenn um allan heim vita að það að vera góður gamanleikari þýðir að hafa stórkostlegt vald á dramatískum leik“.“ Einhvers staðar las ég að gamanleikarar vceru oft þunglynt fólk eða mjög alvarlega þenkjandi dags daglega. Heldurðu að þetta sé rétt? „Ég er alveg viss um að það er mikið til í þessu. 1 Alanon - fræðum er talað um barn alkohólistans sem leikur trúð til að leyna sorg sinni. Við gamanleikararnir erum oft barnið sem er trúðurinn og innan í trúðnum býr sorgin. Sjálf er ég óskaplega glaðlynd. Ég er afskaplega þakklát fyrir að vera það og lít á það sem guðs gjöf. Einu sinni hélt ég að allir vöknuðu að morgni með fiðrildi í maganum af tilhlökkun vegna nýs dags. Þetta gerist svo oft hjá mér. En það hafa komið tímabil í lífi mínu þegar fiðrildin hafa horfið og ég hef vaknað með sorg í hjarta. Ég varð svo glöð þegar fiðrildin komu aftur. Þau eru svo mikill dýrgripur.“ Mikil forréttindakona Hvað hefur verið erfitt? „Það var svartnætti á tímabili þegar ég var á fimmtugsaldri. Það var svo sem eitthvað sem hver einasta manneskja gengur í gegn um, skilnaður, missir ástvina og veikindi þeirra sem maður elskar. En ég get ekki annað en þakkað fyrir það líf sem ég hef lifað. Eitt sinn var tekið blaðaviðtal við mig og á forsíðu blaðsins stóð “Átakasaga Eddu”. Ég varð heiftarlega reið og gat ekki fyrirgefið þetta því það hafa svo sannarlega ekki verið nein átök í mínu lífi miðað við fjölmarga aðra í kring um mig. Ég er mikil forréttindakona. Ég á öll min börn heilbrigð og báðir foreldrar mínir eru á lífi og ég á mikið af góðum vinum. Ég er þakklát fyrir þetta allt því fullt af fólki er að glíma við alvöru sorg. Ég get ekki hugsað til enda þá hluti sem ég hef þurft að styðja vini mína í gegnum. Mér finnst ég svo sannarlega vera ofan á í lífinu.“ Léttar úlpur með —vErhllsfínii hettu. Ný sending við Laugalæk • sími 553 3755

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.