blaðið - 11.05.2006, Page 32

blaðið - 11.05.2006, Page 32
32 I MENNING PIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2006 blaðið Miðbœr í myndum Glatkistan Jón Þór Pétursson Karlinn á kassanum"-Sigurður Sveinbjörnsson stendur meö biblíu í hönd og þrumar Guðs orð yfir vegfarendum Lækjartorgs um miðjan fjórða áratug 20. aldar. Ljósmyndari: Karl Christian Nielsen. Þá er það komið á hreint. Míkhaíl Gorbatsjov er á leiðinni til Islands og mun halda stórfyrirlestur í Há- skólabíói í tilefni af því að nú eru tuttugu ár liðin síðan fundað var á Höfða. Þar mættu fulltrúar heims- veldanna, aðalritarinn Gorbatsjov og Reagan forseti, og það eina sem þeir komu sér saman um var áfram- haldandi getuleysi til að taka skyn- samleg skref í heimsmálunum. Miðasala að hetjast Eins og fram kemur i tilkynningu er fyrirlesturinn öllum opinn en það kostar inn á hann! Fólk þarf þó ekki að örvænta því miðasala fer í gang á allra næstu dögum og það er enginn annar en Einar Bárðar- son, umboðsmaður stúlknahljóm- sveitarinnar Nylon, sem flytur inn rokkbandið Gorbatsjov. Þetta er þó bara toppurinn á ísjakanum og Gorbatsjov flytur einungis fyrsta fyrirlesturinn í nýrri fyrirlestr- arröð sem nefnist Stefnumót við leiðtoga. Þjóðin bíður með öndina í hálsinum, hver verður næstur á dagskrá umboðsmannsins, ef til vill miðilsfundur með sjálfum Re- agan? Þá þyrfti Laugardalshöllina til að allir kæmust að. Háskólinn eða Nasa Ég er hissa á því að Háskólinn skuli ekki nota tækifærið og hrista af sér þá ímynd að þarna dvelji upp til hópa peningasnauðir treflar, mettir af hugsjón og með taubleijukrakka á arminum. 0 já, setja krakkaskratt- ann bara í pössun, fá sér sérsniðin jakkaföt, æfa þétt handtök og rúlla út rauðateppinu fyrir Gorbatsjov: Maðurinn sem batt enda á kalda stríðið er á leiðinni. Minningar eru dýrmætar en hingað til hefur verið lagður annar skilningur í það hug- tak. Háskólinn og Einar Bárðason eiga samleið, það fer ekkert á milli mála því nú eru minningarnar raunverulega dýrmætar og miðar á sýninguna ganga kaupum og sölum í skuggalegum portum víðs- vegar um borgina. Ég hef reyndar töluverðar áhyggjur af hljóðkerf- inu. Það er ef til vill betra að færa atburðinn yfir á Nasa við Austur- völl, þar er sándið í lagi. Hinn nýi Nordal Einar Bárðarson hefur með þessu framtaki sýnt fram á að hann er hinn eini sanni póstmódernisti íslands. Skil hámenningar og lág- menningar hafa máðst út, það er engin algild miðja til að staðsetja stigveldi upphafins veruleika. Einar hefur leyst upp gildin og nú er það eftirspurn/framboð eins og í flestu öðru. Ég heyrði einu sinni skarpan mann halda því fram að Sigurður Nordal hefði haft mest áhrif á íslenska menningu á fyrri hluta tuttugustu aldar og (haldið ykkur fast lesendur góðir) Hannes Hólm- steinn Gissurarson hafi verið maður síðari hlutans sem tals- maður frjálshyggjunnar (sem hafði jú sigur um síðir eins og Morgun- blaðið hefur keppst við að segja okkur á undanförnum árum). Eg held að ég hafi komið auga á mann fyrri hluta 21. aldar, hinn nýja Nor- dál, sem á eftir að leiða lýðinn á vit nýrra tíma. Það er enginn annar en Einar Bárðason. Nylon hefur verið iðin við að hita upp fyrir strákabandið Westlife. Þvílíkur endir á ævintýri að koma tilbaka og hita upp fyrir manninn sem hitaði upp kalda stríðið, stríðið sem aldrei var háð en er samt liðið. Tryggið ykkur miða strax. jon@bladid.net í tilefni af 25 ára afmæli Ljósmyndasafns Reykjavíkur færir safnið ljósmyndaeign sína nær íbúum og gestum borgarinnar. Á útisýningu á Austurvelli, Lækjartorgi og í Fógetagarði gefst áhorfendum kostur á að kanna þetta svæði í gegnum ljósmyndir frá liðinni öld og bera mannlíf og borgarmynd fortíðarinnar saman við Reykjavík dagsins í dag. Sýningin verður opnuð næstkomandi laugardag 13. maí kl. 15.00. Rokkstj ar nan Míkhaíl Gorbatsjov 1 irri Magnús Ólafsson tók þessa mynd árið 1932 af kindum á Austurvelli en þær biðu eftir skipsflutningi. SU DOKU talnaþrautir Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers niu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins 8 3 2 9 6 3 8 7 2 5 6 9 8 5 3 5 9 6 4 8 7 3 4 6 1 6 1 7 9 8 5 1 6 5UDDKLJ SHDP T5 ©6610015 Lausn siðustu gátu 9 3 1 2 4 5 6 8 7 4 5 8 6 7 9 2 3 1 6 7 2 8 1 3 9 4 5 5 4 7 1 6 8 3 9 2 1 6 9 3 5 2 4 7 8 8 2 3 4 9 7 5 1 6 7 9 4 5 2 1 8 6 3 2 8 6 7 3 4 1 5 9 3 1 5 9 8 6 7 2 4 unmiði) P-H-S-9 ♦RESTAURANT BAR

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.