blaðið - 11.05.2006, Side 38

blaðið - 11.05.2006, Side 38
38 i FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2006 blaðiö SIÐASTA ORÐIÐ Nú á Smáborgarinn varla til orð! Er nú svo komið að fjölmiðlakóngurinn Jón Ásgeir Jóhannesson sé farinn að biðja sér vægðar gagnvart hinum smekklausu, ófyrirleitnu, tillitslausu og framhleypnu fréttamönnum landsins, já og þá ríkis- sjónvarpsins? Smáborgarinn stóð í þeirri meiningu að þar á bæ væru menn hafnir yfir allan vafa. Auðvitað hló Smáborgar- inn upphátt þegar hann las yfirlýsingu kóngsins. Bjálkinn og flísin og allt það. Það er auðlæsilegt á bréfi Jóns að hann notar DV til einhvers annars en lesturs. Það hlýtur þó að skjóta skökku við þegar Jón sem þeytist um götur Evrópu í þeirri von að geta brotið umferðarlög á sem flestum stöðum, án þess að nást, er farinn að hefja máls á því f fjölmiðlum að um hann gildi önnur lögmál en aðra borgara landsins. Smáborgarinn veltir því fyrir sér hvort sauðsvartur almúginn sem myndbirtur er á síðum DV, stundum ranglega, alltaf ósmekklega, og kaupir Bónusbrauðið, með fimm krónu utan- strandar-skatti, sé sammála þessu sjálfs- matiJóns Ásgeirs? Er almenningur almennt á þvl að um rfka menn hljóti að gilda önnur lögmál en um okkur almenning. Ekki sama Jón og Jón Ásgeir? Smáborgarinn svarar þess með gargandi nei-i fyrir sitt leyti. Það fer óheyrilega í taugarnar á honum þegar séra Jón biður sér vægðar á meðan al- múginn fær ekki nokkra vægð gagnvart blaðamönnum sérans sjálfs. Það er eitt- hvert Ijóðrænt réttlæti í þessu öllu saman, finnst Smáborgaranum. Smáborgarinn verður þó að vera alveg heiðarlegur og viðurkenna að það er auðvitað svolítið sérstakt hvaða menn og miðlar nálgast Baugsmálið og með hvaða hætti. Sú bláa slikja sem oft einkennir ákveðna tegund af fréttaflutn- ingi af Baugsmálum er auðvitað til enn frekara marks um það hversu lítið gildi almenningur hefur og síminnkandi. Það er spilað með okkur eins og hálfvita, með alls kyns uppslætti á báða bóga, og aug- Ijóslega reyntað hafa áhrif á okkur. Baugs- málið hefurverið rekið ífjölmiðlum jafnt sem réttarsölum frá upphafi og það ekki bara af öðrum aðilanum. Það er þó rétt að við almenningur áttum okkurá að við eigum alltaf síðasta orðið, f kjörklefanum og kjörbúðinni. HVAÐ FINNST ÞÉR? Silvía Nótt, (Silvia Night), stjarna Ætlar þú að breyta textanum? „Ég er Silvía Nótt. Það fokking segir mér enginn hvað ég á að fokking segja, eða gera.“ (Þýtt úr ensku.) Svante Stockselius, sem hefur eftirlit með Evróvisjón söngvakeppninni, segir Silvíu Nótt verða að sleppa ákveðnu blótsyrði úrtexta sínum ella eigi hún á hættu að verða vísað úr keppni. Silvía brást börnunum Þrátt fyrir að stórstjarnan okkar Silvía léti ekki sjá sig voru aðdáendur hennar ungu ekki algerlega vonsviknir þegar varaskeifa hennar mætti til að kvitta fyrir gyðjuna. Það iét þó enginn blekkjast af tiltækinu enda augljóst að þetta er alls ekki Silvía Nótt. Ungir aðdáendur Silvíu Nóttar létu sig ekki vanta á Essóstöðina á Artúnshöfða til að berja pop-dívuna augum og fá áritaðan diskinn með laginu, Til hamingju fsland. Beðið var f spenningi eftir stjörnunni sem auglýst hafði komu sína á bensínstöðina klukkan sex síðdegis. Britney ófrísk á ný Hin 24 ára gamla söngkona Britney Spears á von á sínu öðru barni einungis 8 mánuðum eftir að hafa eignast soninn Sean Preston. Þetta til- kynnti hún umheim- inum í þætti David Letterman. Þar með . lýkur margra mánaða spennu fjölmiðla sem flestir hafa verið á nálum gagnvart óviss- unni. Jafnframt kom fram í þættinum að Dav- id Letterman er ekki fað- irinn en Britney giftist Kevin Federline ár- ið 2004. Þetta ku vera fjórða barn Federline en auk Sean á hann tvö börnmeðfyrrum unnustu sinni, leikkonunni Shar Jackson. r eftir Jim Unger © Jim Unger/dlst by United Medla, 2001 7-20 HEYRST HEFUR... Mýjasta tölublað Mannlífs er í safaríkara lagi. Fyrir ut- ansérdeiliskjarn- yrt viðtal við Pál Magnússon, útvarpsstjóra, er þar að finna svörborgarstjóra- efna reykvísku framboðanna við ýmsum áleitnum spurning- um, sem gefa óvænta innsýn í frambjóðendurna með ýmsum hætti. Hvern hefði til dæmis órað fyrir því að Björn Ingi Hrafnsson vildi helst vera Hill- ary Clinton ef hann þyrfti að velja sér nýjan líkama af gagn- stæða kyninu? Ekki ersíðurfróð- legt að komast að því að Ólafi F. Magnússyni finnst He-Man úr Masters of the Univers vera skemmtilegasta teiknimyndapersónan... leira fróðlegt má finna þeg- ar hin hliðin á frambjóðend- unum er skoð- uð í hinu nýút- komna Mannlífi. Mörgum íhaldsk- urfinum hlýtur til að mynda að bregða við>að lesa það að Fídel Kastró er sá maður, sem Vil- hjálm Þ. Vilhjálmsson langar mest til þess að hitta. En svo getur náttúrlega verið að Villi vilji einfaldlega steypa honum afstóli... Enn athyglisverðara er þó að lesa um það í Mannlífi, að Dagur B. Eggertsson lítur á sjálfan sig sem samsvör- un við Davíð Oddsson, þeg- ar hann er spurður út í hvaða sögu- legu persónu hann líkist mest. Af hógværð segir Dagur þó að sér komi enginn í hug þegar hann hugs- ar um hrokkinhærðan stjórn- m á 1 a m a n n , sem vilji verða borgarstjóri 33 ára! Ekki er húmorinn minni þegar Dagur er spurð- ur um hvað sé verst í hans fari: „Ég get, þegar á allt er litið, lagt á vogarskálarnar og metið frá ýmsum ólíkum sjónarhornum, verið allnokkuð langorður"... Frambjóðendurnir eru allir spurðir um það í Mann- lífi hvort þeir hafi reykt hass. Allir nema einn kveða einfalt nei við, en Vilhjálm- ur Þ. Vilhjálms- son bætir þó við að sér hafi aldrei boðist það, þannig að lesand- inn veltir því fyrir sér hvort Villi væri kannski örlagahippi ef ekki væri fyrir þessa grá- glettni örlaganna. Við annan tón kveður hins avegar hjá Svan- dísi Svavarsdótt- - ur, sem hvorki vill segja nei eða já, heldur lætur í ljós vanþóknun á þvi að pólitíkusar séu látnir svara spurningum, sem varða siðferðileg álitamál úr einkalíf- inu... Brittney á von á sínu öðru barni. Ég fer ekki til tannlæknis

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.