blaðið - 15.05.2006, Blaðsíða 1
Flugvöllinn V ^ J W/Œ&fU 0-r
áfram í Vatnsmýrinni. ■\W>
www.xf.is
www.f-listinn.is
Sumarið er tíminn
10 ára ábyrgð
Þakmálun
Húsamálun
beitaðu tiiboða
í síma: 844-1011
eða á www.thakmalun.is
Sérblað um
ttsku íylgir
Blaðinu
ídag
SlÐUR 17-24
Frjálst,
óháð &
ókeypis!
Metfjöldi
hjá Silvíu
Blaðamannafundar Silvíu
„Night" í Aþenu í gær var beðið
með mikilli eftirvæntingu. Uppá-
tæki dívunnar virðast hafa vakið
verðskuldaða athygli ytra því
metfjöldi blaðamanna mætti
á fundinn, þar sem hún var
klöppuð upp af fjölmiðlafólkinu
á staðnum.
Silvía hefur sent bréf til fjöl-
margra sjónvarpsstöðva víðs
vegar í Evrópu þar sem hún
rekur - ranglega - ættir sínar til
viðkomandi lands. Þegar Silvía
var spurð út í þetta á fundinum
svaraði
hún
einungis
með hæðnis-
fullu muldri.
Margrét Hugrún
Gústavsdóttir
fylgir stjörn-
unni og fylgi-
liði hennar
í Aþenu-
borg.
SfÐUR 26
OG 28
Tryggt vegna
„fótboltaveiki“
Hollenskt tryggingafyrirtæki
býður nú atvinnurekendum
að tryggja sig gagnvart mikilli
fjölgun veikindadaga í næsta
mánuði þegar heimsmeistara-
keppnin í knattspyrnu fer fram
í Þýskalandi.
Þegar Evrópukeppnin í knatt-
spyrnu fór fram í Portúgal árið
2004 fjölgaði þeim Hollend-
ingum um 20% sem tilkynntu
sig veika og þar með ófæra um
að mæta til vinnu. Undarlegt
þótti að fjölgun þessi varð ein-
ungis á leikdögum hollenska
landsliðsins.
BIM/FMi
Félagar I víkingafélaginu Hringhorna reyndu með sér í ýmsum fornum leikjum í miðbæ Reykjavíkur í gær. Tilefnið var opnun landnámssýningarinnar á horni Aðalstrætis og Túngötu.
Hér má sjá nokkra kappa í eyrnatogi sem mun hafa verið vinsæll leikur fyrr á tlð.
„Upplogin þvæla eins og
allt sem frá honum kemur"
Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í
Kópavogi, segir ekkert hæft í því
að hann hafi brotið vanhæfisreglur
stjórnsýslulaga í Gustsmálinu svo-
kallaða. Hann þvertekur fyrir að
með aðkomu sinni að málinu sé
það ónýtt og jafnvel ólöglegt eins
og Flosi Eiríksson, oddviti Samfylk-
ingarinnar, lét liggja að í grein í
Morgunblaðinu.
Fjárfestingafélagið KGR ehf.
hefur síðustu mánuði keypt upp
hesthús á svæði Gusts og á það nú
um 40% húsanna. Þessi uppkaup
sköpuðu titring innan félagsins og á
dögunum var undirrituð viljayfirlýs-
ing af hálfu bæjarstjórnar sem gerir
ráð fyrir því að bærinn gangi inn í
samninginn og kaupi húsin aftur af
KGR. Ennfremur er gert ráð fyrir
því að bærinn kaupi öll þau hús sem
eftir eru og reisi nýja aðstöðu fyrir
hestamannafélagið á Kjóavöllum.
Samfylkingin hefur gagnrýnt málið
harðlega og segir hún að með samn-
ingnum sé verið að verðlauna „upp-
kaupsmennina" svokölluðu með
því að greiða þeim 1,1 milljarð fyrir
sinn hlut í svæðinu. Gunnar Birgis-
son telst vanhæfur í málinu vegna
þess að eiginkona hans á hlut í einu
hesthúsi á svæðinu.
„Maður ansar ekki svona dellu,“
segir Gunnar Birgisson um vanga-
veltur um óeðlilega aðkomu hans
að málinu. „Þetta er bara upplogin
þvæla eins og allt sem kemur frá
þessum manni.“ Flosi er í grein sinni
að svara Gunnsteini Sigurðssyni,
bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins,
sem skrifaði grein í Morgunblaðið
þar sem hann greindi frá því að
forsvarsmenn Gusts hafi átt marga
fundi með bæjarstjóra og fleirum
vegna fyrirhugaðra breytinga á
starfsemi félagsins og flutning þess
á Kjóavelli. Flosi segir þessar upp-
lýsingar Gunnsteins benda til þess
að allt málið sé ónýtt og jafnvel
ólöglegt.
Oddvitar sátu í nefndinni
Gunnar Birgisson segir að hið rétta
í málinu sé það að hinn 13. mars
hafi verið gerður samningur um
flutning á Gusti upp á Kjóavelli.
„Og auðvitað tók ég þátt í öllum
þeim fundum.“ Síðan gerist ekkert
í málinu að sögn Gunnars fyrr en
kemur bréf frá hestamannafélag-
inu inn í bæjarráð þar sem eftir því
er óskað að bærinn komi með þeim
inn í kaupin á húsum KGR. „Þá er
komið á laggirnar nefnd um málið
sem í sitja allir oddvitar flokk-
anna. Síðan vinnst málið í nefnd-
inni og eigum við tvo fundi með
Gustsmönnum.“
Oddviti Samfylkingarinnar vitnar
í grein sinni í svar sem barst frá fé-
lagsmálaráðuneytinu um vanhæfi
sveitarstjórnarmanna. 1 svarinu
segir að sveitarstjórnarmaður sem
telst vanhæfur til meðferðar og af-
greiðslu máls sé einnig vanhæfur
við undirbúning og úrvinnslu
þess sama máls. Gunnar segist
hins vegar ekkert hafa komið að
undirbúningi eða úrvinnslu máls-
ins. „Mín eina aðkoma var þegar
erindi Gusts var vísað til oddvita
flokkanna. Ég vék af fundi þegar
uppkaupstillögur komu frá oddvit-
unum,“ segir Gunnar.