blaðið - 15.05.2006, Qupperneq 6
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2006 blaöiö
6 I FR
Túnfiskur ber
vers úr Kórani
Túnfiskur sem veiddur var í Ind-
landshafi í liðinni viku hefur vakið
gríðarlegan áhuga á meðal múslima
í Kenýa. Hefur fjöldi þeirra lagt á sig
umtalsvert ferðalag til að skoða fisk-
inn til að fá lesið vers úr Kóraninum
sem mun vera greypt í roð hans.
hans.
Fiskurinn, sem er 2,5 kíló að
þyngd, gengur undir nafninu
,undrafiskurinn“. Þykir þessi fundur
svo merkilegur að fiskurinn er nú í
vörslu sjávarútvegsráðuneytisins í
Kenýa.
Fiskurinn virðist í engu greina
sig frá félögum sinum en fisksal-
inn Omar Mohammed Awah tók
eftir því þegar hann meðhöndlaði
gripinn að arabískur texti sýndist
vera greyptur í roðið nærri sporð-
inum. Arabískir fræðimenn hafa
skoðað fiskinn og komist að þeirri
niðurstöðu að nærri sporði hans
sé að finna vers úr Kóraninum á
arabísku: „Guð er mestur allra þe-
irra sem gefa“. Hefur ráð arabískra
fræðimanna í Kenýa staðfest þessa
niðurstöðu.
I marsmánuði fundust tveir fiskar
í gæludýraverslun einni í Liverpool
á Bretlandi og var haft fyrir satt að
nöfnin Múhameð og Allah væru
greyptíroð þeirra.
VÍKURVAGNAKERRURNAR
þessar sterku
Allar gerðir a! kerrum
Allir hlutir til kerrusmíöa
Vikurvagnar ehf • Dvergshöföa 27
^SÍmi 577 1090 • www.vikurvagnar.is J
Um 26 þúsund Reykvíkingar hafa
ekki aögang að heimilislækni
Framsóknarmenn í Reykjavík vilja að borgin taki yfir rekstur heilsugæslunnar og gera þjón-
ustusamninga við lækna. Með því verði tryggt að allir íbúar njóti viðunandi þjónustu.
Marsibil J. Sæmundsdóttir segir frístundakort til barna og unglinga á aldrinum 5 til 18
ára mjög mikilvægt stefnumál Framsóknarflokksins.
Baráttan um sæti í borgarstjórn
Reykjavíkur á næsta kjörtímabili
stendur nú sem hæst. Þrátt fyrir að
fylgi Framsóknarflokksins í Reykja-
vík samkvæmt skoðanakönnunum
dugi ekki til að koma að manni er
Marsibil J. Sæmundsdóttir, sem
skipar þriðja sæti á lista framsókn-
armanna í Reykjavík, bjartsýn á
baráttuna.
„Við finnum mikinn meðbyr og
okkur er vel tekið hvert sem við
förum. Ég held að fólk sé almennt
ánægt með baráttu okkar og finn-
ist við hafa verið mest áberandi af
flokkunum hér í borginni,“ segir
Marsibil.
Innan um fjölmörg málefni á
stefnuskrá flokksins er að finna
nokkur sem vekja spurningar. Meðal
þess er áhersla á að allir borgarbúar
hafi aðgang að heimilislækni.
„f dag má áætla að miðað við fjölda
heimilislækna í borginni séu um 26
þúsund borgarbúar ekki skráðir
hjá heimilislækni. Þessu þarf að
breyta. Við viljum að borgin taki
yfir rekstur heilsugæslunnar, sem
og t.d. málefni aldraðra. Við viljum
í kjölfar þessa gera þjónustusamn-
inga við lækna um að sinna þessari
þjónustu. Með því teljum við að
þessi svokallaða nærþjónusta við
íbúa borgarinnar verði best tryggð,“
segir Marsibil.
Aðspurð um hvort að með þessu
sé ekki verið að gagnrýna störf
flokksfélaga hennar sem stýrt hafa
heilbrigðisráðuneytinu siðustu kjör-
tímabil segir Marsibil að svo sé ekki.
„Við vitum að það er gott fólk í ráðu-
neytunum sem vill leysa þennan
vanda ekki síður en við. Málið er
flókið og það eru allir af vilja gerðir
til að Ieysa vandann."
Ákvörðun á næsta kjörtímabili
Skipulagsmál hafa verið áberandi
í kosningabaráttunni. Tekist hefur
verið á um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar, samgöngumál, lóða-
mál og fleira. Framsóknarmenn
segjast hafa skýra stefnu í þessum
málaflokki.
„Það er alger eining innan borgars-
tjónarlistans um að Reykjavikurflug-
völl eigi að flytja á Löngusker. Með
því losum við land sem er 40 til 60
milljarða króna virði. Flutningur
vallarins á Löngusker kostar um
20 milljarða. Ég veit ekki hvort við
náum að flytja flugvöllinn á næsta
kjörtímabili, en við stefnum á að
ákvörðun um flutninginn verði að
baki þegar kjörtímabilinu lýkur. Við
viljum ekki að það verði tekin önnur
35 ár i að takast á um staðsetningu
vallarins."
Fleiri skipulagsmál eru sett fram,
meðal annars að valin verði svo-
kölluð ytri leið Sundabrautar, sem
verði fjórar akreinar í botngöngum.
Einnig er sett fram hugmynd um að
Miklabraut verði lögð undir Kringlu-
mýrarbraut og þannig losni borgar-
búar við ein hættulegustu gatnamót
landsins. Ennfremur að aðgengi
að Vatnsmýrinni verði tryggt með
Öskjuhlíðargöngum.
En er rými til að fara í allar þessar
framkvæmdir á næsta kjörtímabili?
„Við erum að tala um að fara í
þessar framkvæmdir á ábyrgan
hátt. Við teljum að nú sé um verð-
bólguskot að ræða og ástandið muni
batna hratt á næstunni. Ef það þarf
hins vegar að forgangsraða þessum
verkefnum þá munum við gera það.“
Svigrúm til að fara í ýmis verkefni
Mikið hefur verið talað um fjöl-
skylduna í kosningabaráttunni og
þar eru framsóknarmenn engin
undantekning.
„Við leggjum mikið upp úr fjöl-
skyldumálunum. Þar er eitt mál
sem er skýrt og afgerandi sem er 40
þúsund króna frístundakort sem
við viljum að öll börn á aldrinum
5 til 18 ára fái. Foreldrar geti notað
þessa fjárhæð til að greiða fyrir tóm-
stundir barna sinna, tónlistarnám
eða annað listnám. Þetta er að okkar
mati mjög mikilvægt mál.
Við viljum ennfremur að foreldrar
9 til 18 mánaða gamalla barna fái 50
þúsund króna eingreiðslu á mánuði.
Þetta er hugsað sem tímabundin
lausn á vanda foreldra þessara barna
sem oft á tíðum finna ekki dagfor-
eldri. í framhaldi viljum við berjast
fyrir því að foreldraorlof verði lengt
í 12 mánuði og að börn komist inn á
leikskóla 12 mánaða," segir Marsibil.
En hvernig hyggst flokkurinn
greiða fyrir allt þetta?
„Margt af þessu er gert í samstarfi
við aðra. Það eru líka hlutir þarna
sem færa borginni tekjur, til dæmis
þær lóðaúthlutanir sem við höfum
lagt drög að. Það er alltaf þannig
að á hverju kjörtímabili er ákveðið
svigrúm til að fara í ákveðnar fram-
kvæmdir og verkefni - og við teljum
okkur gefa kjósendum skýr svör um
það sem við viljum leggja út í.“
Harðviðarpallaefni, Massaranduba
25 x 145 mm, lengd: 215 - 430 sm
HARÐVIÐARVAL
-þegar þú kaupir gólfefni
Krókhálsi 4 • 110 Reykjavík • Sími 567 1010 • www.parket.is
Ósammála um aðferðir
Borgarstjóri vill myndavélar í borginni til að draga úr hraðakstri.
Varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir þetta sýndarlausn.
Setja á upp sérstakar hraðamynda-
vélar á helstu hraðakstursstöðum
í borginni samkvæmt tillögu Stein-
unnar Valdísar Óskarsdóttur, borg-
arstjóra. Markmiðið er að draga úr
lögbrotum og auka öryggi vegfar-
enda. Gísli Marteinn Baldursson,
varaborgarfulltrúi, kallar þetta
sýndarlausn á vanda sem þarf að
taka miklu fastar á. Hann kennir
skipulagsleysi R-listans í umferð-
armálum um vaxandi vandamál í
umferðinni.
Eftirlit sem virkar
Samkvæmt tillögu Steinunnar Vald-
ísar Óskarsdóttur, borgarstjóra,
verður leitað samstarfs við lögregl-
una og ríkisvaldið um að koma
upp föstum hraðamyndavélum á
helstu hraðakstursstöðum í borg-
inni. Tillagan var samþykkt á fundi
borgarráðs síðastliðinn fimmtudag
en markmiðið er að draga úr lög-
brotum og auka öryggi vegfarenda.
Að sögn Steinunnar er hraðakstur
vaxandi vandamál í borginni. „Það
er verið að taka menn ítrekað, allt
upp í ellefu sinnum á 150 km hraða
inni í borginni. Þetta er stórhættu-
legt og það eina sem þýðir í þessu er
að beita sektum.“
Hraðamyndavélar hafa gefið góða raun
erlendis að sögn borgarstjóra.
Steinunn segir hraðamyndavélar
af þessu tagi hafa gefið góða raun er-
lendis og því sé vert að skoða þessa
leið gaumgæfilega. „Þetta er fyrst og
fremst eftirlit sem virkar. Erlendis
hefur svona kerfi gefið mjög góða
raun. Fyrir mér er þetta spurning
um að menn komist ekki upp með
það að haga sér svona og stefna lífi
og limum annarra í hættu.“
Einkennileg forgangsröðun
Gísli Marteinn Baldursson, varaborg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir
hugmyndirborgarstjóravera sýndar-
lausn á vanda sem að hans mati þarf
að taka miklu fastar á. Hann kennir
skipulagsleysi R-listans í umferðar-
málurn um vaxandi vandamál í um-
ferðinni. „Afrekaskrá R-listans í um-
ferðarmálum er ekki mjög glæsileg.
Það er aukning i árekstrum á götum
borgarinnar með tilheyrandi líkam-
legu og eignarlegu tjóni. Vandamál-
unum hefur verið leyft að hlaðast
upp og lítið verið aðhafst til að leysa
þau. Það hefur nákvæmlega ekkert
gerst í umferðarmálum í borginni í
áratug.“
Þá segir Gísli forgangröðun R-list-
ans í umferðarmálum vera skringi-
lega og frekar hefði hann viljað sjá
úrlausnir til að draga úr umferðar-
hraða inni í íbúðahverfum. „Ég hef
miklu meiri áhyggjur af hraðakstri
innan íbúðahverfa. Þar eru börn að
leik og mér finnst það vera forgangs-
mál að minnka hraða þar frekar en
að byrja á hraðbrautunum. Auðvitað
erum við sjálfstæðismenn hlynntir
öllum aðgerðum sem auka umferðar-
öryggi en mér finnst þessi forgangs-
röðun R-listans vera einkennileg."