blaðið - 15.05.2006, Side 16
Hlil
Önnur bókin í bókaflokknum „Við ræktum"
er komin út. Tryggðu þér eintak í næstu
bókabúð eða í óskrift í síma 586 8005.
Sumarhúsift
og goröurinn
Sumarhúsið og garðurinn ehf,
Siðumúla 15,108 Reykjavík,
www.rit.is
ÁburöoruerRsmiöjon
Er garðurinn þinn
áburðarþurfi?
s h ■ m ■ wi mi ■
Útvegum fyrsta flokks húsbíla og hjólhýsi
af öllum stœrdum og árgerdum
16 I GiiRÐilR MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2006 blaöiö
Garðskálinn nýtist
vel til veisluhalda
Glatt á hjalla f afmæli sem haldið var í garðskálanum.
Helga Steingrímsfrá Garðheimum gefur góð ráð
Harðgerar
hengiplöntur
Margir eru með garðskála við
hús sín og má segja að þeir séu
millistig á milli stofu og garðs.
Sumarið á íslandi er ekki alltaf
eins en með garðskálum má nýta
kosti garðsins án þess að vera
úti í kuldanum. Það er eflaust
misjafnt hvernig fólk nýtir
garðskála sína og víst er að þá
er hægt að nýta á ýmsan hátt. Á
íslandi er sjaldnast svo hlýtt að
hægt sé að borða grillmatinn úti
þegar kvölda tekur og þá getur
verið notalegt að borða hann í
garðskálanum sem veitir hálf-
gerða útistemmningu.
Lára Elísdóttir býr á Egilsstöðum
og byggði hús sitt ásamt eigin-
manni sínum fyrir 17 árum. Þegar
húsið var byggt setti hún fram ósk
um útskotsglugga. Lára segir að
endirinn hafi orðið sá að um 12 fm
garðskáli var teiknaður við húsið
og er hægt að ganga beint inn í
hann að utan og úr stofu. „Það er
ekki gler í þakinu á garðskálanum
sem eykur notagildi skálans því
það verður ekki eins heitt í sól og
annars yrði. Upphaflega sá ég fyrir
mér ræktun matjurta og rósa í garð-
skálanum og byrjaði þá ræktun en
síðan sá ég að slíkar plöntur þurfa
mikla umhirðu og gafst því upp
á þeirri ræktun. Þegar rósirnar
fengu lús ákvað ég að henda þeim
frekar en að eitra fyrir þeim enda
var ég með unga krakka á þessum
tima og leið ekki vel með að eitra
innandyra.“
Lára segir að þrátt fyrir að
draumar um ræktun hafi ekki ræst
nýtist garðskálinn í afmælum og
öðrum uppákomum þegar gesti
ber að garði. „Yfir veturinn er ekki
jafn heitt í garðskálanum og ann-
ars staðar i húsinu og nýtist hann
því vel sem geymsla fyrir ýmis
matvæli eins og t.d. jólakökurnar
en í garðskálanum er aðeins gólf-
hiti.“ Lára segir að vissulega lengi
garðskálinn sumarið og hægt er
að njóta þess að sitja í honum. „Ég
nota garðskálann líka fyrir hluti
sem mér finnst ekki passa sem
stofustáss en er samt gaman að
hafa uppi eins og gamalt koffort óg
fótstigna saumavél."
hugrun@bladid.net
Nú er sumarið senn að koma, alla
vega í hugum flestra. Við vonum
að næturfrost og kuldi sé fjarlægur
okkur og upp streymi hlýindi og
aðstæður til að planta sumarblóm-
unum, sem við annað hvort erum
sjálf búin að rækta eða kaupa í næstu
gróðrarstöð. Ýmsar tegundir eru í
boði, misharðgerar, en öll viljum
við að sumarblómin okkar endist
sem allra lengst fram á haust.
Það er alltaf skemmtilegt að geta
haft fallegar hengiplöntur við inn-
ganginn hjá okkur eða úti í garði.
Þá skiptir máli að þær standist vel
íslenska veðráttu og nái að dafna í
gróskumiklar plöntur þegar Hða
tekur á haustið.
Falleg Snædrífa
Ein af harðgerustu hengiplöntunum
er Snædrífa, „Sutera cordata“, mjög
fínleg og falleg planta sem blómstrar
langt fram á haust. Hún er ýmist
með hvít, fjólublá eða bleik einföld
blóm og hentar jafnt í hengipotta
sem ker. Bleiki liturinn er nýkom-
inn í ræktun og á hann örugglega
eftir að falla vel í hið litskrúðuga
safn sumarblómanna. Snædrífan
blómstrar best sólarmegin en lifir
samt mjög vel í hálfskugga, er ein-
staklega vindþolin og lætur íslenska
veðráttu lítið á sig fá. Ekki er hægt
að taka fræ af þessari plöntu til rækt-
unar, hún er einungis ræktuð upp af
græðlingum.
Önnur harðger hengiplanta sem ég
vil nefna heitir Þúsund bjöllu blóm,
.Million bells“, einnig ræktuð upp
af græðlingum. Þúsund bjöllu blóm
er mjög lífleg og skemmtileg planta
sem breiðir vel úr sér í keri eða hengi-
potti. Hún er ræktuð í nokkrum
litum, fjólubláum, appelsínugulum
og bleikum. Það er svipað með hana
og Snædrífuna, hún er vindþolin,
blómviljug, langlíf og blómstrar
vel fram á haustið. Hún þolir hálf-
skugga, þó hún blómstri alltaf betur
í sól. Það er alltaf gott að gefa góða
næringu með plöntunum, það eykur
blómgun töluvert.
Vatnskristallar halda raka í pottum
Það er vinsælt að planta þessum
tveimur tegundum með sýprus,
eini eða einhverjum öðrum skraut-
runna í ker eða hafa þær stakar í
hengipotti. Hér verður maður að
láta hugmyndaflugið njóta sín og þá
er um óteljandi hugmyndir að ræða.
Ef plöntur eru settar i hengipotta
er nauðsynlegt að nota svokallaða
vatnakristalla, „Watering Crystals
Moisture Plus“. Þetta eru hvítir
kristallar sem maður blandar í litlu
magni við moldina og vökvar svo
vel yfir. Þá verða þeir að litlum gel-
kúlum og eru mjög sniðugir og hent-
ugir til að halda sem mestum raka
í pottinum. Plöntur i hengipottum
þorna tvímælaust mun meira en
plöntur í kerjum eða beðum. Einnig
hefur þessi notkun komið sér vel ef
fólk bregður sér i frí í stuttan tíma.
Kristalarnir halda rakanum í u.þ.b.
eina viku í senn.
beint frá Evrópu.
AIU eftir þínum óskum
endurnýja húsbílinn?
Verð frá 5.990.000,- Verð frá 1.550.000.- Verð frá 4.4500.000.-
Gott v&rð - pottþétt þjónustci
Opnunartími: Mún-fös.kl. 10-18 | Lau.&sun.kl. 12-16
iichi a
TomTychsen
Skútuhraun 2
220 Hafnarhrdi
Sími 517 93501 Gsm 821 9350
Fax 517 9351
tom@husbilagalleri.is
galierí
■
www.husbilagalleri.is