blaðið - 15.05.2006, Qupperneq 18
26 I JÚRÓVISJÖN
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2006 blaöið
Konur eru allar „nice"
Kœrasti og umboðsmaður Silvíu Night segir að stórlistamenn eins og hún þurfi stöðugt að þola öfund annarra.
Eins og flestir vita á Silvia Night
suðrænan kærasta sem undanfarið
hefur vakið mikla athygli ásamt
stjörnunni. Sjálfur er hann dans-
ari, fyrirsæta og tískuhönnuður
en einnig athafnamaður og um-
boðsmaður Silvíu. Á blaðamanna-
fundum hér í Aþenu hefur hann
oftar en ekki svarað spurningum
fyrir dömuna og ef eitthvað fer
úrskeiðis er það yfirleitt Romario
sem tekur í taumana og ver sína
konu. Það var til dæmis hann sem
tilkynnti að ef einhver myndi voga
sér að horfa í augun á henni á blaða-
mannafundi síðastliðinn föstudag,
þá yrði sama manneskja borin út
og það varð úr.
Ég hitti Romario á Hótel Divani Cara-
vel, þar sem hann dvelur í forsetas-
vítu ásamt Silvíu Night. Það var ekki
auðvelt að nálgast hann og fá hann til
að koma í viðtal en eftir mörg símtöl
og langa bið, gaf hann sér að lokum
korter til að spjalla við Blaðið.
Hann kom of seint í viðtalið og tók
aldrei niður sólgleraugun á meðan
á því stóð. Pantaði sér litla kók og
lagði ríka áherslu á að ég þyrfti að
vera fljót þar sem hann væri mjög
tímabundinn.
Hvernig lýst þér á að vera kom-
inn til Aþenu, Romario?
,Mér líður vel hérna, þetta er falleg
borg og það er gott veður hér. Miklu
betra en á íslandi. íslenskt veður er
alger hryllingur... horrible. Grikkir
eru gestrisnir og gott fólk og okkur
Silvíu líður vel hérna í hitanum í
Aþenu. Ég vil líka taka það fram að
ég er mjög stoltur af því að fá að vera
hluti af íslenska hópnum. Þetta er
rosalega góður hópur og hæfileika-
ríkt fólk sem er að taka þátt í þessu
með okkur.“
Hvað finnst þér um uslann sem
Silvía er búin að valda?
Það kemur örlítið fát á Romario og
hann lætur eins og hann átti sig ekki
á þvi hvað verið er að spyrja um en
svo svarar hann, alvarlegur í bragði.
„Fólk er alltaf að reyna að halda aftur
af listamönnum. Þetta er vel þekkt.
Silvía er stærri en lífið sjálft og henni
er ekki ætluð nein meðalmennska.
Silvíu líkar ekki svona athygli. Fólk
er að reyna að koma okkur úr keppn-
inni af því hæfileikar hennar eru svo
af guðs náð. Hún er guðleg vera sem
stenst engan samanburð við venjulegt
fólk. Það er dæmigert af fólki eins og
Svíum, Bretum og Grikkjum að reyna
að skemma þetta. En við erum samt
að verða vön svona löguðu. Þetta
gerðist líka þegar við vorum í Tókío,
þetta gerðist þegar við vorum að ferð-
ast í Evrópu og þetta gerðist á íslandi.
Þetta er bara öfund og eitthvað sem
listamenn af hennar kalíber þurfa að
glíma við. Sjáðu til dæmis Madonnu
og aðra vini Silviu...“
Hvað œtlarðu að gera þegar hún
vinnur?
„Þá tekur við mikið samninga-
ferli við öll plötufyrirtækin sem
hafa óskað eftir fundum við mig og
stjörnuna.“
Þið hljótiðþá að vera tilbúin með
plötu?
Það kemur fát á Romario og svo
tekur við stutt kennslustund þar sem
hann segir mér frá tónlistarbrans-
anum og leggur áherslu á að í raun sé
bransinn þannig að tónlistin skipti
þar minnstu máli. Svo rekur hann á
eftir mér að fara að klára viðtalið, ít-
rekar hvað hann sé tímabundinn og
segir mig hrokafulla að vera ekki með
betri spurningar. Ég ákveð að reyna
að snúa athyglinni að honum sjálfum
en hann virðist ekki vera tilbúinn að
gefa mikið upp um sjálfan sig og for-
tíð sína.
Þú hefur þetta suðræna
útlit og segist líða vel hérna,
ertu kannski ættaður hér frá
Miðjarðarhafslöndunum?
„Finnst þér ég virka eins og ég sé
frá Miðjarðarhafslöndum.. .hahahah...
Nei, ég er frá Argentínu, Buenos Aires
í Argentínu í Suður-Ameríku, en ég
ferðast mikið.“
Svo skiptir hann um umræðuefni.
„Af hverju brosirðu ekki meira? Konur
eiga að brosa. Það er fallegt þegar
konur brosa... sjáðu, þegar þú brosir
þá horfa allir hingað. Svona á þetta að
vera. Þetta líkar mér. I like this...!“
Hvar hittust þið Silvía fyrst.
Hvernig kynntust þið?
, „Ég man það ekki, kannski London,
kannski París eða Milano. Ég var að
vinna einhvers staðar. Ég vinn víða
um Evrópu, eða...ég vann mikið um
Evrópu allt þar til ég fór til Islands, Is-
landia. En mér finnst samt kalt þar og
ess vegna kann ég betur við mig hér.
g verð samt að segja að mér finnast
íslenskar konur fallegar.“
Hvernig eru þær frábrugðnar
öðrum konum semþú hefur kynnst
áferðum þínum um heiminn?
„Þær eru ekkert frábrugðnar öðrum
konum. Konur eru allar eins. Nice.
Konur eru nice. En núna verð ég að
fara. Við erum að fara að æfa atriðið
og ég þarf að skipta um föt. Svo er ég
búinn með kókið mitt. Finished!“
Og með þeim orðum rauk Romario
í burtu. Það er spurning hvað Silvía
sér við hann...
margret@bladid. net
20lögog
20 karókí
útgáfur.
Geisladiskur með
iögunum úr Latahæ er
kominn í verslanir.
'»> t>n
Otoalur
>»u»n