blaðið - 15.05.2006, Síða 20
28 I JÚRÓVZSJÓM
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2006 blaöiö
Á stjörnuslóðum
Margrét Hugrún skrifarfrá Aþenu
Ast og hatur
Silvía annað hvort elskuð eða hötuð í Aþenu
Það er víst engum ofsögum sagt
að hún Silvía Night er búin að
gera allt vitlaust frá þvi að hún
kom hingað til Aþenu. Eins og
flestir vita olli hún gífurlegum
usla á blaðamannafundi sl
föstudag þegar hún lét lífvörð
sinn fjarlægja blaðakonu af fund-
inum, fyrir það eitt að hafa horft
í augun á sér.
í kjölfarið spruttu upp miklar um-
ræður á vefsíðunni esctoday.com
næsta sólarhringinn og á meðan
blaðamannafundir flestra kepp-
enda fengu að meðaltali tuttugu
og fimm umsagnir, höfðu tæplega
þrjúhundruð manns tjáð sig um
framferði Silvíu Night. Nánast
mátti skipta skoðunum fólks í tvo
flokka, með eða á móti, en þannig
hefur þetta yfirleitt alltaf verið með
Silvíu. Á síðunni mátti m.a. lesa
þessar athugasemdir.
Maria Petrosa
„Silvía er svooo fyndin! Hún er ótrú-
leg! Ef þið takið henni alvarlega
þá eruð þið klikkuð. Ef hún væri
ekki í Grikklandi núna þá myndi
ekkert gerast. Hún lýsir upp keppn-
ina. Ég elska hana persónulega og
spái því að hún eigi eftir að ná í
lokakeppnina.“
Antony Err
„Þessi kona er alveg mögnuð. Hún er
að gera stólpagrín að sjálfhverfum
og hæfileikalausum stjörnum nú-
tímans sem kunna að spila með
fjölmiðla og öðlast óverðskuldaða
frægð í kjölfarið. Silvía veit að um-
tal er það sem selur og þess vegna
reynir hún að vekja eins mikið
umtal og hún getur. Það sem mér
finnst fyndnast er að sjá hvernig
allir falla fyrir þessu. Þéssi gella er
snillingur!“
Chronis P
„ísland fær eitt stórt núll frá mér í
ár. Silvía er svo dónaleg og lagið
hennar svo ömurlegt að það ætti að
henda henni út. Hún kallaði sviðs-
mennina hæfileikalausa og bölvaði
þeim. Hún er bara ís-kúkur sem
ætti að fara heim til sín!“
Konstantina
„Silvía er drottning blótsyrðanna.
Eftir hverju er herra Svante Stock-
selius að bíða? Af hverju sendir
hann hana ekki heim? Eigum við
að hneigja okkur fyrir henni? Það
verður að fara að taka á þessu!“
Á æfingunni í gærkvöldi kvað þó
við annað hljóð í hennar skreytta
skrokki. Hún var öll hin prúðasta
og kallaði hljóðmennina hvorki
hæfileikalausa né viðvaninga þó
þeir hefðu kannski getað gert betur.
Ætli það hafi verið til að róa Svante
Stockselius sem var nánast búinn
að reka hana eftir síðustu æfingu?
Blaðamannafundinn hóf Silvía
með því að sýna kynningarmynd-
band um sögu frægðar sinnar. Þar
kemur fram hvernig hún vann
Edduverðlaunin, var kosin kyn-
þokkafyllsta konan o.s.frv. og í lok
myndbandsins rymur Romario
líkt og kynnir fyrir ameríska
spennumynd „And with her man
by her side, she will now conquer
the wooorrrlllldddd".
Blaðamennirnir fögnuðu ákaft
og innilega eftir að hafa horft á
myndbandið en þeir þurftu þó að
klappa svolítið lengi því hún lét
bíða aðeins eftir sér. Svo kom hún
trítlandi inn á pallinn með Pepe,
Romario og lífverðina sér við hlið.
Hennar fyrsta verk var að lesa
upp yfirlýsingu þess efnis að fólk
væri að reyna að skemma fyrir
henni núna líkt og svo oft áður. Þar
væru á ferðinni aðrir öfundsjúkir
keppendur. Hún bað þá að taka það
til sín sem ættu það því hún ætlaði
sér ekki að nefna nein nöfn, svo
sagði hún drottningarlega „Shame
on you, shame on you,“ líkt og Mi-
chael Moore á Oskarsverðlauna-
afhendingunni 2003 þegar hann
skammaði Bush forseta.Fram-
undan er nú stíf dagskrá hjá dív-
unni. Meðal annars borgarstjóra-
partí í kvöld sem verður spennandi
að sjá hvernig fer...
Lordi segir frá því
hvernig lagið varð til
Efmaðurgerir það sem maður elskar að gera þá verður það gott.
Heljarmennið Lordi frá Finnlandi
sagði blaðamönnum frá því í gær
hvernig lagið hans varð til. „Við
sömdum þetta lag fyrir nokkrum
árum í sumarbústaðnum mínum.
Við byrjum alltaf með einhverri lag-
línu og svo þróast þetta út frá því. En
ef maður gerir eitthvað sem maður
elskar að gera þá kemur alltaf eitt-
hvað gott út úr því,“ svo bætti hann
því við að honum þættu fyrstu þrjár
mínútur lagsins vera þær bestu.
Lordi er ekki bara fyrir tónlist
heldur er hann líka mikill kvik-
myndaunnandi. „Uppáhalds mynd-
irnar mínar eru Evil Dead 2, Hellra-
iser-myndirnar allar og Alien serían.
Svo er ég líka hrifinn af myndunum
Nightmare on Elm Street og endur-
gerð gömlu myndanna Texas Cha-
insaw Massacre og The Hills Have
Eyes.“
Að lokum deildi hann því með
blaðamönnum hvað honum finnst
gott að fá sér í kvöldmat. „Ég
borða bara venjulegan mat eins og
aðrir: kettlinga, engisprettur og
köngulær."
Svipmyndir frá Afienu
Frá æfingu á atriði Silvíu í gær.
Hér fær ungur grískur Eurovision aðdáandi eiginhandaráritun frá Siggu Beinteins. Skjöldur Eyfjörð er sérlegur hársnyrtir
Silvíu Night. Hér stendur hann tilbúinn með
hárskraut fyrir drottninguna.
Hin gríska Eri er mikill aðdáandi (slands. Gaukur Úlfarsson, Sölvi Blöndal og Ylfa Geirsdóttir eru öll um borð í Eurovision skipinu
Hún er sjálfboðaliði hjá Eurovision og sótti hennar Silvíu Night í ár. Gaukur er maðurinn á bak við þættina um Silvíu, Sölvi var með í
sérstakiega um að fá að snúast f kringum að útsetja lagið og Ylfa er aðstoðarkona yfirstílistans.
Silvíu Night.
Það eru ekki margar konur sem hafa risavaxna lífverði í því að halda á gervinöglunum á Þrátt fyrir andstyggileg ummæli Siivíu
meðan hún límir þær á, en Silvía Night er samt ein þeirra. Night um hollensku keppendurna voru
þær perluvinir þegar þær hittust fyrir utan
höllina í gær.