blaðið - 15.05.2006, Page 22
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2006 blaðió
30 I
Öruggur heimasigur Alonso
Heimsmeistarinn Fernando Alonso hafði algera yfirburði í kappakstrinum í Barcelona í gcer.
Fernando Alonso fagnaði öruggum
sigri á heimavelli í Barcelona í gær
en hann hafði algera yfirburði í
kappakstrinum frá upphafi til enda.
Michael Schumacher, sem hafði
unnið tvær síðustu keppnir, náði
reyndar að saxa aðeins á forskot
heimsmeistarans en sigurinn var
þó aldrei í hættu og endaði Alonso
18 sekúndum á undan Schumacher.
Liðsfélagi Alonson hjá Renault, Gi-
ancarlo Fisichella, hafnaði í þriðja
sæti.
Yfir 130 þúsund áhorfendur voru
á kappakstrinum og fögnuðu Al-
onso sem þjóðhetju undir lokin. Á
meðal áhorfenda var Jóhann Karl,
Spánarkonungur, sem spjallaði við
Alonso fyrir og eftir kappaksturinn
og virtist manna ánægðastur með
sigur landa síns. Um var að ræða
þriðja sigur Alonso á tímabilinu
og hefur hann nú 15 stiga forystu á
Schumacher.
Sætara en heimsmeistaratitillinn
Alonso sagði að sigurinn hefði verið
sætari en þegar hann vann heims-
meistaratitilinn í Brasilíu í fyrra.
,Þetta var stórkostlegt. Að sigra fyrir
framan fólkið mitt, mína stuðnings-
menn, er held ég það besta sem ég hef
upplifað á ferlinum," sagði Alonso,
en þetta var 12. kappaksturinn í röð
þar sem Alonso hafnar á verðlauna-
palli. „Ég naut hvers einasta hrings
í keppninni og þessi stund verður
ógleymanleg. Ég tel að við höfum
gert allt sem hægt var. Við vorum í
einhverjum vafa fyrir keppnina um
raunverulega stöðu okkar, aðallega
gagnvart Ferrari, en það gekk allt
Spánarkonungur fagnar Alonso.
upp. Ég var á léttari bíl en Michael
og nýtti það til að byggja upp for-
skot,“ sagði Alonso.
Það var annað hljóð í Michael
Schumacher. „Mótshelgin byrjaði
vel, en við misstum flugið í kapp-
akstrinum og það verður að skoða af
hverju það gerðist," sagði Schumac-
her. „Bíllinn var einfaldlega ekki
nógu góður og keppnisáætlun okkar
hentaði ekki þessu móti, þó allt
hafi gengið upp á Nurburgring. En
það er ennþá mikið eftir. Stigin eru
dýrmæt og ég tapaði bara tveimur
stigum til Alonso, en hafði áður náð
fjórum stigum. Þetta á eftir að skipt-
ast á víxl í þeim mótum sem eftir
eru,“ sagði Schumacher.
Leikmenn Liverpool fögnuðu innilega eftir að Jose Reina hafði varið þrjár vítaspyrnur og þar með tryggt liðinu sigur.
Auka skiptimann í framlengingu
Rick Parry, stjórnarformaður Liverpool, vill að liðum verði heim-
ilað að notafjórða skiptimann þegar leikirfara íframlengingu.
Ballack til
Chelsea í dag
Chelsea hefur boðað til blaða-
mannafundar í dag þar sem
tilkynnt verður að þýski lands-
liðsfyrirliðinn Michael Ballack
sé genginn til liðs við félagið.
Ballack, sem er 29 ára, fer frá
Bayern Munchen á frjálsri sölu
þar sem samningur hans við
þýsku meistarana er útrunninn.
Stjörnuframherjarnir Andriy
Shevchenko og Samuel Eto’o hafa
einnig verið orðaðir við Chelsea
en liðið ætlar að fá þrjá nýja leik-
menn fyrir næsta tímabil.
Ballack, sem varð þrefaldur
Þýskalands- og bikarmeistari á
fjórum árum hjá Bayern Munc-
hen, fékk óblíðar móttökur stuðn-
ingsmanna liðsins í síðasta leik
tímabilsins gegn Dortmund um
helgina. Mikill fjöldi púaði stöð-
ugt á fyrirliðann og þegar hann
skoraði eitt af þremur mörkum
liðsins fögnuðu honum fáir.
Ballack sagði í viðtali við fjöl-
miðla eftir leikinn að hann væri
ósáttur við stjórn Bayern sem
hefði egnt stuðningsmenn liðs-
ins gegn honum eftir að hann
sagðist vilja fara til Chelsea.
Rick Parry, stjórnarformaður Li-
verpool, segir að liðum ætti að vera
kleift að nota fjórða skiptimann í
leikjum sem fara í framlengingu.
Þetta sagði hann eftir bikarúrslita-
leik Liverpool og West Ham sem
fram fór um helgina en leikurinn fór
í vítaspyrnukeppni. í framienging-
unni voru fjöimargir leikmenn illa
þjáðir af krampa og Marlon Hare-
wood, sóknarmaður West Ham, gat
vart gengið sökum meiðsla. Bæði lið
höfðu þá notað alla þrjá varamenn
sína.
„Það er vert að skoða það að leyfa
liðum að nota fjórða skiptimann
þegar leikir fara í framlengingu.
Það myndi þýða að þetta snerist
ekki eins mikið um heppni,“ sagði
Parry. Áðurnefndur Harewood
fékk ákjósanlegt marktækifæri á
síðustu mínútu framlengingar, í
stöðunni 3-3, en skot hans fór víðs
fjarri markinu enda þurfti hann að
beita meidda fætinum. „Aumingja
Marlon Harewood átti frábæran
leik, en í framlengingunni var
hann ekkert nema farþegi. Þannig
á náttúrulega ekki að útkljá stór-
leiki," sagði Parry.
Hann sagðist hins vegar með öllu
mótfallinn því að úrslitaleikir sem
enduðu með jafntefli yrðu leiknir
á ný, eins og gert var áður í ensku
bikarkeppninni. „Þegar ég horfa á
dagatalið sé ég ekki hvernig það ætti
að vera hægt. Vítaspyrnukeppnir
eru taugatrekkjandi og maður vor-
kennir alltaf þeim sem tapa þannig.
En óneitanlega eru þær líka frábær
skemmtun og mikið drama,“ sagði
Parry.
Skeytin inn
Pascal Chimbonda, varn-
armaður Wigan, kveðst
vera hæst-
ánægður með að
hafaveriðvalinn
í franska lands-
liðshópinn en
Raymond Dom-
enech, landsliðs-
þjálfari Frakk-
lands, tilkynnti
hópinn í gær. Chimbonda hefur
aldrei verið viðloðandi franska
landsliðið áður og þótti valið því
koma verulega á óvart. Wigan
keypti hann frá Bastia síðasta
sumar fyrir 500 þúsund pund
og hefur hann staðið sig frábær-
lega á tímabilinu. Var hann m.a.
valinn í úrvalslið deildarinnar,
en nú hefur Chimbonda farið
fram á að vera seldur til stærra
liðs, stjóranum Paul Jewell til
mikillar gremju.
Pegar fjölmiðlar inntu
Chimbonda eftir við-
brögðum við valinu
kvaðst hann vera í skýjunum,
en notaði einnig tækifærið til að
mæra Wigan og vildi með því
eflaust létta þá miklu spennu
sem ríkt hefur milli hans og fé-
lagsins eftir að hann fór fram
á að verða seldur. „Mig langar
að þakka Paul Jewell og liðs-
félögum mínum hjá Wigan
fyrir alla hjálpina í vetur. Ég
er mjög stoítur af því að leika
fyrir Wigan. Ég hafði kost á því
að fara í janúar en ég vildi vera
áfram og hjálpa Wigan á fyrsta
tímabili sínu i úrvalsdeildinni.
Það borgaði sig svo sannarlega,
bæði fyrir mig og félagið,“ sagði
Chimbonda.
Franski sóknarmaðurinn
Nicolas Anelka, sem
leikur með Fenerbache í
Tyrklandi, var hins vegar ekki
á meðal þeirra sem Domenech
valdi í landsliðshópinn. Er
þetta í þriðja skiptið sem horft
er framhjá Anelka við val á
franska landsliðshópnum fyrir
HM. Anelka var lykilmaður í
liði Arsenal sem vann tvennuna
tímabilið 1997-1998 en komst
ekki í gegnum niðurskurð úr 28
manna undirbúningshópi fyrir
HM í Frakklandi 1998, sem gest-
gjafarnir unnu sem kunnugt er.
Árið 2002 ákvað Roger Lemerre,
öllum að óvörum, að velja Dji-
bril Cisse í stað Anelka fyrir HM
í Suður-Kóreu og Japan.
David Beckham ætlar sér
að halda áfram að vera
fyrirliði enska landsliðs-
ins eftir heimsmeistaramótið
í Þýskalandi, en er óviss hvort
hann muni leika á HM 2010.
Beckham, sem er 31 árs, hefur
leikiðvelmeðReal
Madrid á tíma-
bilinu og segist
sjaldan hafa verið
í betra formi. „Ég
veit ekki hvernig
fæturnir á mér
verða eftir fjögur
ár og enn síður hvort landsliðs-
þjálfarinn hefur áhuga á að fá
mig þá,“ sagði Beckham um
hvort hann yrði með á mótinu í
Suður-Afríku 2010. „Ég geri mér
grein fyrir því að þetta gæti verið
síðasta heimsmeistaramótið sem
ég tek þátt í en það breytir engu
um viðhorf mitt til leikjanna,“
sagði Beckham ennfremur.