blaðið - 15.05.2006, Side 30
38 I FÓLK
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2006 blaðið
OFRÍKI FJÖL-
SKYLDUFÓLKS
Smáborgarinn er sérstakur áhugamaður
um íslenska pólitík og fylgist með henni
af gríðar miklum áhuga. Ástæðan er
meðal annars að hann vill fyrir alla muni
verða vitni að næstu vitleysu stjórnmála-
manna - sjá í hvaða gæluverkefni þeir
setja milljarða króna eða hvaða vini sfnum
þeir troða í opinbert embætti. Þegar stórir
eða litlir „skandalar" eru gerðir opinberir í
fjölmiðlum landsins flýtir Smáborgarinn
sér í næsta heita pott borgarinnar. Þar
opinberar hann gríðarlega viðamikla þekk-
ingu sína á málefnum líðandistundarfyrir
öðrum pottverjum, hvort sem þeir hafa
áhuga á að hlusta eða ekki, og skeggræð-
ir nýjustu tíðindi. Þessar einstöku stundir
eru þær bestu og skemmtilegustu í annars
fábreyttu lífi hans.
Börnin kosta stórfé
Málið er að Smáborgarinn er piparkarl á
miðjum aldri og skoðanir hans mótast
mjög af þeirri staðreynd. Um þessar mund-
irfylgist hann með borgarstjórnarkosning-
unum i Reykjavík og áhyggjur hans aukast
stöðugt. Flokkarnir í borginni hafa nefni-
lega allir kynnt stefnu sína sem á misalvar-
legan hátt valda svefnleysi Smáborgarans.
Allir flokkar leggja gríðarlega áherslu á
fjölskyldumál í stefnuskrá sinni. Fram-
sóknarflokkur vill greiða barnafólki tugi
þúsunda á mánuði (eingreiðslur og senda
út frístundaávísanir til að greiða fyrir tólist-
arnám ormanna. Sjálfstæðisflokkurinn
vill fjölga „gæðastundum" fjölskyldunnar
hvað sem það nú þýðir. Smáborgarinn veit
fyrir vissu hver á síðan að greiða fyrir her-
legheitin, sem að sjálfsögðu kosta stórfé,
— hann sjálfur.
.
Kommon
Smáborgarinn er á þeirri skoðun að eng-
inn kjósi að veikjast - og efslíkt gerist eigi
samfélagið að koma til aðstoðar. Sama má
segja um það ef einhver missir vinnuna
- óskemmtilegt hlutskipti sem nauðsyn-
legt er að hjálpa fólki í gegnum. Börn velja
ekki sjálf að komast í heiminn - og eiga
því skýran og sjálfsagðan rétt á að ganga í
skóla og njóta fræðslu.
Fólk tekur hins vegar ákvörðun um
hvort það eignist barn eða ekki - og ef
það gerist óvart - þá er hreinlega ekki við
neinn annan að sakast en foreldrana sjálfa.
Nú er Smáborgarinn búinn að uppgötva
að þrátt fyrir að hafa passað sig f gegnum
tíðina og ákveðið að vera barnlaus þarf
hann með skattfé sínu að greiða fyrir tón-
listarnám gríslingsins í næsta húsi og fleiri
„gæðastundir" hjónanna og þriggja barna
þeirra hæðinni fyrir ofan. Kommon!
HVAÐ FINNST ÞÉR?
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
Stefnið þið á 90%?
„Eigum við ekki að segja að þetta sé bara orðið nokkuð gott.“
Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ hafa mælst meö yfirburðafylgi í skoðanakönnunum upp á síðkastið. Samkvæmt nýjustu
Gallup-könnun fengi flokkurinn 71 % atkvæða í komandi kosningum.
Hálshnykkir og slagœðarkeyrsla
Á föstudaginn voru rokktónleikar í Hinu húsinu þar sem böndin
Bones Brigadefrá Bandaríkjunum, I adapt, Fighting shit ogMorð-
ingjarnir stigu á stokk. Keyrslan var ífyrirrúmi í Hinu húsinu og
eflaust hafa margir vaknað með hálsríg daginn eftir.
BlalMrikki
Gza og Dj Muggs munu heiðra fslendinga með nærveru sinni.
Gza og Dj Muggs á
leiðinni til íslands
Gza og Dj Muggs hafa tilkynnt
komu sína hingað til lands mið-
vikudaginn 31. maí næstkomandi
til að spila á 5 ára afmæli Kronik
Entertainment á Gauknum. Gza
og Dj Muggs eru án vafa með þekkt-
ari nöfnum innan tónlistargeirans
og hafa báðir selt milljónir platna,
GZA undir sínu eigin nafni og Wu
Tang Clan og Dj Muggs sem aðal
taktsmiður og plötsnúður Cypress
Hill. Báðar þessar hljómsveitir áttu
þátt í þeirri miklu uppsveiflu hip-
hopsins sem varð um miðjan 10. ára-
tuginn.
Nýlega gáfu þeir út plötuna
Grandmasters sem var án efa ein
af plötum ársins 2005 en hún þykir
minna mjög á gullaldarár Wu Tang
Clan og Cypress Hill.
HEYRST HEFUR...
Björn Bjarnason, borgar-
fulltrúi og dómsmálaráð-
herra, skrifar mikla ádrepu á
vef sínum
( w w w .
bjorn.is)
um kosn-
ingabar-
áttuna og
umfjöllun
fjölmiðla
um hana.
Hann mót-
mælir þar
umkvörtunum fjölmiðlunga
undan því að baráttan sé dauf-
leg og segir það nokkuð undir
fjölmiðlum sjálfum komið. Og
svo blæs hann til sóknar og
bendir fjölmiðlum á allnokk-
ur dæmi, þar sem þeir virðast
ekki hafa sinnt hlutverki sínu
með fullnægjandi hætti og lát-
ið reykvíska pólitíkusa komast
upp með misvísandi yfirlýsing-
ar, tvískinnung og beinar rang-
færslur. Það væri kannski ráð
að fá Björn í blaðamennskuna
aftur...
Mikil spenna og eftirvænt-
ing ríkir um það hvernig
Silvíu Nótt reiðir af í Söngva-
keppni
e v r -
ópskra
s j ó n -
va r p s-
stöðva,
ekki síst
ve g n a
hinnar
deilunn-
ar um
það hvað dívan megi syngja og
hvað ekki fyrir viðkvæm eyru
siðprúðra og sanntrúaðra Evr-
ópubúa. Á Prikinu segja menn
að þetta sé allt saman stórfelld
ráðagerð Gauks Úlfarssonar,
Svengalís Silvíu Nóttar. Hann
vilji að lagið verði dæmt úr leik
fyrir munnsöfnuð, en þannig
geti Evrópubúar ekki fellt lag-
ið úr leik með einföldum hætti
um leið og frægð Silvíu Nótt-
ar sem
bönnuð-
ustu söng-
drottn-
i n g u
Evrópu
e n n
aukist...
M e n n
þykjast
sjá nýjan tíma runninn upp
í menntamálum, því blöðin
eru uppfull af auglýsingum
frá stóru háskólunum tveim-
ur, sem einkum keppast við
að sannfæra upprennandi laga-
nema um ágæti sitt. Þykir það
til marks um breytta háttu hjá
Háskóla íslands undir stjórn
Kristínar Ingóifsdóttur, há-
skólarektors, en um leið telja
menn hilla undir frekari mark-
aðsátök í menntageiranum
með auknu vægi námsgjalda
hverju nafni sem nefnast...
Ellert B. Schram ritar grein
í Fréttablaðið á laugardag,
ágæta yfirlestrar. Athygli vek-
ur þá að í
átta orða
fyrirsögn
k e m u r
orðið „ég“
fyrirtvisv-
ar sinn-
um eða í
fjórðungi
hennar.
Sumum
finnst það kannski mikið en
Ellert er samt að taka sig á.
Síðasta grein hans var aðeins
með fjögurra orða fyrirsögn,
en samt voru tvö orðanna líka
„ég“, eða helmingur...
Við gleymdum nestinu.