blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 1

blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 1
Þakmálun Húsamálun ísíma: 844-1011 eða á www.thakmalun.is PAKMÁLUN Frjálst, óháð & ókeypis! 100% eldbökun,100% ísl. ostur, 100%metnaður, 100% Rizzo" Sparibill með nó9 á s(num snœrum Aukablað um bíla íylgir Blaðinu ídag | SÍÐUR 17-24 118. tölublað 2. árgangur mámidagur 29. maí 2006 Meirihluti sjálfstæðismanna og frjálslyndra í burðarliðnum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson yrði borgarstjóri og Ólafur F. Magnússon forseti borgarstjórnar. Málefnaágreiningur sagður sáralítill og unnt að mynda meirihlutann á næstu dögum. Blaðið hefur heimildir fyrir því að fátt geti komið í veg fyrir að af meiri- hlutasamstarfi sjálfstæðismanna og frjálslyndra verði í Reykjavík. Gengið er út frá því sem vísu að Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson verði borg- arstjóri, en Ólafur F. Magnússon forseti borgarstjórnar. Mál manna er að lítið beri á milli flokkana um gerð niálefnasamnings og er talið að unnt verði að ganga frá samstarf- inu á næstu tveimur dögum. Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson er þó tal- inn vilja hafa vaðið fyrir neðan sig og hefur gefið til kynna við Vinstri hreyfinguna - grænt framboð að meirihlutasamstarf við þá komi vel til greina. Þegar eftir að fyrstu tölur í Reykjavík voru lesnar upp hófust óformlegar þreifingar milli fram- boðanna um hugsanlega samstarfs- fleti. Ljóst var að sjálfstæðismenn ættu auðveldara starf fyrir höndum en aðrir, því þeir gátu starfað með hverju hinna framboðanna. Erfið- ara myndi hins vegar reynast að berja saman meirihluta án þeirra, þar sem öll hin fjögur framboðin þyrftu að vera innanborðs. Eftir því sem Blaðið kemst næst ræddi Vilhjálmur við frjálslynda, vinstrigræna og framsóknarmenn í gær, en Samfylkinguna lét hann eiga sig. Fyrst mun hann hafa talað við Svandísi Svavarsdóttur, hinn nýkjörna oddvita vinstrigrænna. Tjáði hann henni að þeir væru fyrsti samstarfskostur sjálfstæðis- manna, enda meirihlutinn trygg- ari með hinum tveimur borgar- fulltrúum Vinstrigrænna en með einum fulltrúa hinna flokkanna. Munu vinstrigrænir hafa gefið til kynna að þeir útilokuðu ekki sam- starf fyrir fram, en á hinn bóginn er talið að þeim gæti reynst þrautin þyngri að sannfæra grasrótina í flokknum um samstarf við íhaldið. Eins nefndu menn að Ögmundur Jónasson, þingmaður, væri efins um það. Á það samstarf mun þó tæplega reyna, því í gær gengu þrír efstu menn á lista Sjálfstæðisflokksins, þau Hanna Birna Kristjánsdóttir og Gísli Marteinn Baldurssson auk Vilhjálms, á fund Ólafs F. Magnús- sonar og Margrétar Sverrisdóttur í gær. Sjálfstæðismenn vörðust allra fregna af fundinum, en hermt var að hann hefði gengið vel og að fram- hald yrði á viðræðunum í dag. Frjálslyndir eru sagðir hafa uppi nokkuð stífar kröfur, en heimild- armaður meðal sjálfstæðismanna taldi að þær yrðu lítil fyrirstaða. Þar væri afar fátt sem ekki mætti fallast á. Helsti ásteytingarsteinn- inn, sem nefndur hefur verið mun vera um aðkoma Orkuveitu Reykja- víkur að orkuöflun vegna álvers í Helguvík. Gera menn ráð fyrir að unnt verði að ná saman um þau mál án verulegra vandkvæða og ætti nýr meirihluti að vera starf- hæfur innan nokkurra daga. Vitað er að meðal sumra sjálf- stæðismanna eru efasemdir um samstarf við frjálslynda. Einn heimildarmanna Blaðsins taldi ótækt að meirihlutinn hengi á einum manni og minnti á að Ól- afur hefði oft farið eigin leiðir meðan hann var enn borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins. Til þess að mynda meirihluta þarf borgar- stjórnarflokkur sjálfstæðismanna þó aðeins einfalda samþykkt og þarf ekki staðfestingu annarra stofnana flokksins líkt og gerist við ríkisstjórnarmyndun. Borða úr ruslafötum Meðlimir jaðarhópsins „freeg- ans" gramsa í gegnum rusl í leit að æti til þess að mótmæla umhverfisspillingu, kapítalisma, kjötæti, neyslumenningu og só- un, en ekki sökum fátækt- ar. Þessi jaðarhópur hefur verið að breiða úr sér á Vesturlöndum. | SfÐA 26 Jackson þakkar aðdáendunum Michaeljack- son kom um helgina fram op- inberlega í fyrsta sinn síðan hann var sýknaður af ákærum um ___________________ misnotkun á börnum fyrir tæpu ári síðan. Jackson er staddur í Japan og var á laugar- dag viðstaddur verðlaunahátíð japönsku MTV-stöðvarinnar þar sem hann var heiðraður fyrir ævistarf sitt. í þakkarræðu sinni sagðist hann eiga aðdá- endum sínum allt að þakka. „Mig langar að þakka fólkinu sem trúði á mig. Ég trúi á ykkur,“ sagði Jackson. Hundruð aðdáenda Jacksons tóku á móti honum á flugvellinum í Tókíó og héldu á skiltum með fögrum orðum sem beint var til hans. Konungur poppsins hefur að mestu náð að forðast sviðsljósið frá því að réttarhöldunum yfir honum lauk í júní í fyrra. Hann fluttist frá Neverland-býli sínu í Kaliforníu og stofnaði heim- ili í Asíuríkinu Bahrein, þar sem hann hefur búið síðan. Jap- önsku þjóðinni vil ég þakka innilega. Ég elska ykkur mjög, mjög mikið. Þið eruð indæl, ör- lát og æðisleg," sagði Jackson enn fremur áður en rödd hans brast og hann klökknaði. Jack- son mun einnig funda með við- skiptaj öfr um og heimsækj a mun- aðarleysingjaheimili á meðan á heimsókn hans stendur.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.