blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 8
8 I FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 blaöiö
í starholunum
berist beiðni
um aðstoð
Engar ákvarðanir hafa verið
teknar um að senda íslenskt
björgunarlið á vettvang jarð-
skjálftans á eynni Jövu í Ind-
ónesíu. Skjálftinn mældist 6,3 á
Richter-kvarða og er þetta þriðji
stóri skjálftinn í Indónesíu á
einu og hálfu ári. Tala látinna er
um 5000 manns og er talið að sú
tala muni hækka enn frekar auk
þess sem tugþúsundir slösuðust.
Sólveig Olafsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Rauða Kross Islands,
segir að ekki hafi verið tekin
ákvörðun um að senda aðstoð
frá Islandi til Jövu. „Rauði kross-
inn er með mjög stórt teymi i
Aceh héraði og er því vel í stakk
búinn til þess að takast á við
hjálparstarfið."
Hún segir að hér á landi sé
teymi í startholunum ef á þarf
að halda, en enn hefur ekki
borist beiðni um aðstoð. „Komi
beiðni frá alþjóða Rauða kross-
inum munum við að sjálfsögðu
bregðast við henni.“
Sólveig segir að engin
ákvörðun hafi heldur verið
tekin um að hefja söfnun til
styrktar fórnalömbum skjálft-
ans. „Við metum það á næstu
dögum hvort, og hvernig því
verður háttað.“
Engin flóðbylgja kom í kjölfar
skjálftans en sérfræðingar álíta
að hann auki líkurnar á stóru
gosi úr Merapi eldfjallinu sem
verið hefur við það að gjósa slð-
ustu vikurnar.
Fyrsta fegurðarsamkeppni Tjéténa
Ríkisstjórn Tjéténíu reynir að koma lífinu í eðlilegt horf og heldur fyrstu fegurðarsam-
keppni lýðveldisins, þrátt fyrir mótmæli. 15 ára gömul stúlka bar sigur úr býtum.
Suður-rússneska lýðveldið Tjéténía
krýndi um helgina fyrstu fegurðar-
drottningu landsins eftir umdeilda
fegurðarsamkeppni. Nítján kepp-
endur á aldrinum 14-23 ára tóku
þátt í keppninni og var það fimm-
tán ára gömul stúlka, Zimara Dzha-
brailova, sem bar sigur úr býtum.
Hlaut hún að launum bifreið og
peningaverðlaun.
Mikill áhugi var fyrir keppninni
en margir keppendur sögðust hafa
átt erfitt með að sannfæra karl-
menn í fjölskyldum sínum um að fá
leyfi til að taka þátt. „Það tók mig
langan tíma að sannfæra þá um að
leyfa mér að vera með,“ sagði ein
keppendanna í viðtali við rússneska
sjónvarpsstöð. „I fyrstu þvertóku
þeir fyrir það en ég sagði þeim að
keppnin væri styrkt af ríkisstjórn-.
inni og viðhéldi siðum og venjum
tsjétsjensku þjóðarinnar.“
Engin baðfatasýning
Til að verjast mótmælum buðu
skipuleggjendur múslimskum
klerkum á æfingar, með það fyrir
augum að sannfæra þá um að allt
færi fram með siðlegum hætti.
Leyfi frá þeim var skilyrði fyrir því
að keppnin færi fram. Stúlkur sem
tóku þátt þurftu að vera einhleypar
og dómnefndin samanstóð af full-
trúum stjórnvalda. Stúlkurnar
komu ekki fram á baðfötum, eins
og gengur og gerist í flestum feg-
urðarsamkeppnum Vesturlanda, en
þess í stað þurftu þær að sýna fram
Sigurvegarinn Zimara Dzhabrailova dansar á sviðinu eftir að titillinn var f höfn.
Reuters
á þekkingu á tsjetsjnískum hefðum,
matargerð og listum.
Tjéténska ríkisstjórnin hefur að
undanförnu leitað ýmissa leiða til
að koma lífinu í þessu stríðshrjáða
lýðveldi í eðlilegt horf. Ramzan
Kaydrov, forsætisráðherra Tjéténíu,
sagði keppnina vera gott dæmi um
hversu miklar umbætur hafa orðið
í lýðveldinu. Tjéténskir aðskilnað-
arsinnar eru hins vegar ekki á sama
máli og hafa sagt keppnina hina
mestu hneisu fyrir Tsjéténíumenn.
Síð pils fyrir Ijóta fætur
Kaydrov var spurður í sjónvarpsvið-
tali hvort hann myndi leyfa systur
sinni eða dóttur að taka þátt í slíkri
keppni. „Að sjálfsögðu myndi ég
gera það. Hún myndi hafa hefðir
okkar í hávegum og sýna hvernig
tjéténskum stúlkum ber að koma
fram,“ svaraði Kaydrov. Aðspurður
hvernig honum fyndist að stúlkur
ættu að klæðast svaraði Kaydrov að
þær ættu að klæðast síðum pilsum
likt og þær gera þegar farið er til
kirkju. „Reyndar má pilsið vera
aðeins styttra ef að stúlkan hefur
fallega fætur. En ef þeir eru ljótir
er best að pilsið sé sítt,“ bætti tísku-
frömuðurinn Kaydrov svo við.
Garðagöngur
Garðyrkjufélags
íslands sumarið 2006
Allar göngurnar hefjast klukkan 20:00.
Sharon fluttur á end-
urhæfingarstofnun
Ariel Sharon, fyrrum forsætisráð-
herra ísraels, hefur verið fluttur frá
sjúkrahúsi á sérstaka endurhæfing-
arstofnun í Tel Aviv. Sharon fékk
heilablóðfall í janúar og hefur verið
í dái síðan, þrátt fyrir að hafa geng-
ist undir átta aðgerðir. Yfirmaður
endurhæfingarstofnunarinnar
sagði við fjölmiðla að meðferð Shar-
ons yrði afar erfið sökum ástands
hans. Játaði hann því að ekki væri
búist við að Sharon vaknaði úr dá-
inu á næstunni.
Sharon, sem er 78 ára, er fyrrum
herforingi og barðist hann í
nokkrum stríðum í Mið-austur-
löndum. Hann tók við embætti for-
sætisráðherra 2001 og er á meðal
þekktustu stjórnmálamanna Isra-
els en er hataður af fjölmörgum
í arabaheiminum. Næstráðandi
Sharons, Ehud Olmert, tók við
völdum í janúar og var nýlega kjör-
inn forsætisráðherra.
ueuiers
fsraelskir sérsveitarmenn fylgja sjúkrabílnum sem flutti Sharon af Hadassah Ein Karem
sjúkrahúsinu f gær.
. 7. júní
Hafnarfjörður - mæting við Lækjarskóla. Samson Bjarnar Harðarson
landslagsarkitekt leiðir gönguna.
21.júní
Árbær - Elliðaárdalur - mæting við Árbæjarkirkju. Guðríður Helgadóttir
garðyrkjufræðingur leiðir gönguna.
5. júlí
Kópavogur - mæting við Digraneskirkju. Friðrik Baldursson garðyrkju-
stjóri Kópavogs leiðir gönguna.
19. júli
Miðbær Reykjavíkur - mæting í Hljómskálagarðinum. Samson Bjarnar
Harðarson landslagsarkitekt leiðir gönguna.
2. ágúst
Garðabær - mæting við Fjölbrautaskóla Garðabæjar. Sigurður Þórðar-
son verkfræðingur og frv. varaformaður Garðyrkjufélagsins leiðir göng-
una.
16. ágúst
Vesturbær Reykjavíkur - mæting við Neskirkju. Helga Thorberg og
Steinar Björgvinsson garðyrkjufræðingar leiða gönguna.
Síðasta gangan verður laugardaginn 2. september og hefst kl.
14:00. Heiðmörk og reitur Garðyrkjufélagins - mæting á stóra bíla-
stæðinu við Hraunslóð. Sumarbústaðaklúbburinn sér um gönguna.
Göngur út um land verða auglýstar á viðkomandi stöðum.
Tilboðsdagar 20% aflsáttur
Rafstillanleg rúm með 9 svæða pokafj.kerfi
frá kr. 148.800.-
rúmco
Langholtsvegi 111,104 Rvk. Simi 568 7900 • Opið virka daga 11-18 • laugardaga 11-14.
Erill hjá lögreglu
Talsverður erill var hjá lögreglunni í
Reykjavík á kosninganótt en mikið
var um ölvun í miðborginni. Lög-
reglan stöðvaði ellefu ökumenn
fyrir ölvun við akstur. Ein líkams-
árás var tilkynnt þar sem maður
var barinn i Hafnarstræti og var
hann fluttur slasaður á slysadeild.
Fjórir sem taldir voru hafa átt þátt
í árásinni voru handteknir skömmu
síðar. Nóttin gekk að mestu stór-
slysaiaust fyrir sig að sögn lögreglu,
en nokkuð var um pústra og ólæti.
Kosningavökur stjórnmálaflokk-
anna fóru að mestu vel fram og
þurfti lögreglan ekki að skipta sér
sérstaklega af þeim. Þá var ölvun
mikil í Kópavogi og Hafnarfirði.
Ölvað par var handtekið i Hafnar-
firði eftir að hafa verið á gangi með
þriggja ára gamalt barn sitt. Barn-
inu var komið fyrir hjá fjölskyldu
barnsins. Móðir barnsins var sleppt
eftir yfirheyrslur, en faðir barnsins
þurfti þó að gista fangageymslur.