blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 15

blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 15
blaðið MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 SKOÐUN I 15 Úrslitsveitarstjórn- arkosninga 2006 Samfylkinqin Samanburður á fylgi 2002-2006 2002 atkvæði 2006 atkvæði mismunur breyting Kópavogur 3821 4647 826 21,6% Hafnarfjörður 5550 6418 868 15,6% Akureyri 1225 2190 965 78,8% Árborg 1412 1093 -319 -22,6% Akranes 956 821 -135 -14,1% Skagafjörður 225 392 167 74,2% Grindavík 481 500 19 4,0% Húnaþing vestra 127 150 23 18,1% Alls 13797 16211 2414 17,5% Eftir Skúla Helgason Samfylkingin bætir fylgi sitt verulega í stærstu sveitarfélögum landsins og vinnur mikla sigra í Hafn- arfirði, Kópavogi og á Akureyri. I Reykjavík vinnur Samfylkingin fjóra borgarfulltrúa í sínum fyrstu kosn- ingum í höfuðborginni. Samfylkingin eykur fylgi sitt um 17.5% í þeim sveitarfélögum þar sem flokkurinn bauð fram í eigin nafni bæði nú og fyrir fjórum árum. Sam- fylkingin bauð fram í fyrsta sinn á 5 stöðum á landinu og vann góða sigra í Sandgerði þar sem flokkur- inn fékk mest fylgi allra flokka, í Mosfellsbæ, nýja sveitarfélaginu í Þingeyjarsýslum og á Hornafirði. f Eyjafjarðarsveit vantaði aðeins 6 atkvæði til að Samfylkingin næði inn manni. Víða unnust góðir sigrar í sam- eiginlegum framboðum, einkum á Dalvík, Álftanesi, í Garði og Borgarbyggð. Hins vegar gekk miður vel þar sem Samfylkingin bauð fram með Framsóknarflokknum s.s. í Hvera- gerði, Reykjanesbæ, Garðabæ og Seltjarnarnesi. Samfylkingin tapaði fylgi á tveimur stöðum þ.e. á Akranesi, þar sem fyrrum þingmaður flokks- ins var bæjarstjóraefni Sjálfstæð- ismanna og í Árborg, þar sem við- búið var að erfitt yrði að halda því mikla fylgi sem vannst í síðustu kosningum. í Reykjavík fengu framboð aðild- arflokka R-lista samtals 47.07% eða rúmlega 4% meira en Sjálfstæðis- flokkurinn sem fékk 42,87%. Sjálfstæðisflokknum mistókst fjórðu kosningarnar í röð að ná meirihluta í borgarstjórn Reykja- víkur. f síðustu kosningum beið hann afhroð og það voru verstu kosningaúrslit í sögu flokksins í Reykjavík. Núna bætir hann aðeins við sig 300 atkvæðum frá 2002. Þessar kosningar sýna að það hefur orðið varanleg breyting á hinum pófitíska landslagi í Reykja- vík. Sjálfstæðisflokkurinn hefur minnkað verulega, er orðinn 40% flokkur í stað þess að vera 50-60% flokkur. Þetta er m.a. árangur Reykjavíkurlistans. Skýrustu skilaboð kosninganna í Reykjavík eru að kjósendur hafna hreinum meirihluta Sjálfstæð- ismanna. Samfylkingin er hins vegar í sókn og úrslitin eru byr í seglin fyrir komandi baráttu um landsstjórnina. Meðfylgjandi er tafla sem sýnir samanburð á kosningaúrslitunum 2002 og 2006 í þeim sveitarfélögum þar sem Samfylkingin bauð fram í eigin nafni þá og nú. Skúli Helgason Höfundur erframkvœmdastjóri Samfylkingarinnar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.