blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 10

blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 10
10 I FRÉTTIR MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 blaðið Palestínskir uppreisnarmenn á bækistöð- inni sem varð fyrir eldflaugaárás í gær. Páfi heimsótti Auschwitz í gær Fjögurra daga heimsókn hans til Póllands lauk í útrýmingarbúð- unum í Auschwitz, eftir gríðarlega vel sótta messu í Kraká í gær. Vatnsberinn. Nepalskur burðarmaður heldur á stærðarinnar vatnstanki í höfuðborg- inni Katmandú í gær. Fyrir að bera tankinn rúmlega kílómetra langa leið þénar maður- inn andvirði tæpra 200 íslenskra króna. Eldflauga- árásir í Israel og Líbanon Israelskar orrustuþotur gerðu árás á bækistöðvar palestínskra uppreisn- armanna í austurhluta Líbanon, í grennd við höfuðborgina Beirút, í gær. Líbönsk yfirvöld segja að eld- flaugum hafi verið skotið á herbúðir Alþýðufylkingarinnar fyrir frelsun Palestínu (PFLP). Árásin átti sér stað nokkrum klukkustundum eftir að ísraelskur hermaður hafði særst eftir að eldflaugum var skotið frá Líbanon að ísrael. Israelska her- stöðin er staðsett 20 kílómetra frá landamærum Israels og Líbanons. Israelsk yfirvöld saka stjórnvöld í Líbanon um að bera ábyrgð á árás- inni og eru að undirbúa opinbera kvörtun til Sameinuðu þjóðanna. .Ísraelsríki telur líbönsk stjórnvöld ábyrg fyrir öllum þeim árásum sem koma frá þeirra landsvæði," sagði talsmaður ísraelska hersins. Ekki er talið að nokkur hafi látist í árás- unum. I gær höfðu engin samtök lýst yfir ábyrgð á árásinni á ísrael en Hezbollah-samtökin og palest- ínskir uppreisnarhópar hafa áður lýst viðlíka árásum á hendur sér. Israelar hafa þá gjarnan svarað með loftárásum á móti, líkt og í gær. Benedikt XVI páfi hlaut afar góðar viðtökur þegar hann ávarpaði mannfjöldann í Kraká í gær. Reuters Rúmlega 900 þúsund manns söfnuð- ust saman í pólsku borginni Kraká í gærmorgun til að hlýða á messu Benedikts XVI páfa og biðja fyrir friði. Páfi brýndi fyrir ungu fólki að forðast að láta veraldleg gildi nú- tímans freista sín, hafa boðskap Jesú ávallt hugfastan og láta ekki bugast við útbreiðslu kaþólskrar trúar. Um er að ræða fyrstu heimsókn páfa á TILBOÐ! Mikið úrval af flísum 0 Veggflísar “ • Gólfflísar heimaslóðir forvera síns, Jóhann- esar Páls II, en sjálfur er Benedikt fæddur í Þýskalandi. Á laugardag heimsótti páfi heimabæ Jóhannesar, Wadovice, og sagði af því tilefni að hann vonaðist til að hann yrði tekinn í dýrlinga- tölu innan tíðar. Vöktu þau ummæli mikla ánægju meðal Pólverja. Bene- dikt lauk svo Póllandsför sinni í gær með heimsókn til Auschwitz, þar sem alræmdustu útrýmingabúðir nasista í seinni heimsstyrjöldinni voru staðsettar. Páfi flutti þar bænir á nokkrum tungumálum en deilt var um hvort það væri við hæfi að hann lyki messu sinni á þýskri bæn, eins og áætlað var. Margir gyðingar hafa haldið því fram að það sé móðgun við þá gyðinga sem létust í Auswitch að þýskur páfi messi á tungu nasist- anna á dánarstað þeirra. Talsmaður páfa, Joaquin Navarro- Valls, sagði að upphaflega hafi ekki verið gert ráð fyrir að farið yrði til Auschwitz en páfi hafi krafist þess að fara þangað. Vildi hann fá tæki- færi til þess að hitta eftirlifendur úr útrýmingarbúðunum og aðstand- endur þeirra gyðinga sem fórust þar. Þá heimsótti hann einnig fanga- klefa kaþólska prestsins Maximilian Kolbe, sem lést árið 1941 eftir að hann bauðst til að skipta við fanga sem hafði verið dæmdur til að svelta til dauða. Messan í Auschwitz fór fram við svonefndnan útrýmingar- vegg, þar sem þúsundir fanga voru skotnir til bana af nasistum. 25-70°/o afsláttur HARÐVIÐARVAL I -þegar þú lcaupir gólfefni Krókhálsi 4 110 Reykjavík • Sími 567 1010 * www.parket.is Henti sonum sínum af svölum Maður á fertugsaldri fyrirfór sonum sínum fjögurra og átta ára gömlum, með því að henda þeim fram af svölum á 15. hæð hótels í Miami á Flórída. Að því búnu stökk maður- inn sjálfur. Líkt og synir sínir lést maðurinn samstundis. Eiginkona mannsins kom að honum þar sem hann var að stökkva og sá svo að lík sona hennar lágu á jörðinni mörgum hæðum fyrir neðan svalirnar. Eigin- konan sagði þau hjónin hafa átt í erf- iðleikum í hjónabandinu en engar vísbendingar liggja fyrir um hvað orsakaði gjörðir mannsins. Calvin Hill fyrir herrétt mbl.is | Bandarískur hermaður, sem ákærður hefur verið fyrir að myrða tvítuga konu á Keflavíkurflugvelli á síðasta ári, verður dreginn fyrir herr- étt. Robert D. Bishop Jr., yfirmaður bandaríska flughersins í Evrópu, skrifaði á föstudag undir tilskipun þess efnis og verður herrétturinn í Bolling herstöðinni í Washington- borg. Ekki hefur verið ákveðið hve- nær réttarhöldin fara fram. Calvin Hugene Hill, sem var í 56. björgunarsveit | Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli, var ákærður fyrir að stinga Ashley Turner, tvítuga konu sem einnig var flugliði varn- arliðsins, til bana. Að sögn blaðsins Stars and Stripes, málgagns Banda- ríkjahers, er upphaf málsins rakið til þess að Hill var grunaður um að hafa stolið peningum frá Turner með því að nota bankakort hennar til að taka út úr hraðbönkum. I kjölfarið var Hill ákærður og átti yfir höfði sér að fara fyrir herrétt. Hill sætir einnig ákæru fyrir fleiri brot, svo sem að yfirgefa varnarstöð- ina án leyfis og hindra framgang rétt- vísinnar. Hill getur átt yfir höfði sér dauðarefsingu ;verði hann fundinn sekur um morðað yfirlögðu ráði. Alnæmis- lyfjagjöf eftir stunguárás Tæplega 30 manns sem urðu fyrir stunguárás í Berlín á föstudag gang- ast nú undir alæmislyfjameðferð eftir að í ljós kom að eitt fórnarlamb- anna var smitað af HIV. Árásarmaðurinn var ölvaður xó ára strákur sem hóf að stinga fólk þar sem verið var að fagna opnun nýrrar lestarstöðvar í borginni. Fimmtán hlutu alvarlega áverka og eru fjórir en á gjörgæslu. Auk þeirra hlutu níu til viðbótar minniháttar áverka en þeir eru einnig að taka inn lyfið prophylaxis. Sérfræðingar segja að líkurnar á að smitast af eyðni vegna stungusárs séu innan við 0,3% og lyfið prophylaxið á að geta minnkað þær líkur verulega. Árásarmaðurinn er f haldi lögreglu og á yfir höfði sér þungan dóm. Upplýsingar og skráning á netinu: www.ulfljotsvatn.is Sparkleikir - Frumbyggjastörf - Ædol - Útilíf - Kassabílaakstur - Sund - Fyrir stráka og stelpur 8-12 ára - skipt í hópa eftir aldri Krassandi útilífscEVÍntyri - fjör og hópeflisandi! INNRITUN ER HAFIN - OpiS virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.is.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.