blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 19

blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 19
blaðiö MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 MATURI 27 Prótein œttu að vera hluti af daglegri neyslu Prótein eru afar mikilvæg bygg- ingarefni líkamans. Hvort prótein örva vöxt nagla eða lina sára vöðva er háð því hverskonar prótein um ræðir. Prótein eru samsett úr am- inósýrum sem mynda mismun- andi keðjur. Sumar amínórsýrur myndast í líkamanum en aðrar fáum við úr mataræðinu. Jafnvel þó öll dýr og plöntur innihaldi einhverskonar prótein eru þau mis- munandi að gerð. Þau sem mikil- vægust eru mataræði manna finn- ast í kjöti, fiski og eggjum. Önnur prótein eins og þau sem finnast í hnetum og fræjum eru ekki eins hlaðin aminósýrum. Grænmeti- sætur geta þó fengið næg prótein í mataræði sínu ef rétt er raðað í Matur í bœjar- stjórnarmálin Ken Livingston, borgarstjóri Lund- úna, hefur í hyggju að kosta 3.87 milljónum punda á næstu þremur árum til þess að veitingasölumenn leggi áherslu á að selja matvæli sem ræktuð eru í nánasta umhverfi borg- arinnar. Þessi ráðahagur er hluti af Mataráætlun Lundúna sem einnig felur í sér að auka heilsunæmi matar, að draga úr neikvæðum um- hverfisáhrifum ræktunar matar og að að draga úr sóun. Um 25% viðskipta í Lundúnum snúast um mat og drykk og þriðj- ungur allra eyðslu telst einnig til þessara nauðsynja. 1 Lundúnum eru um 12.000 matsölustaðir, helmingru allra matsölustaða Bretlands, og þar er að finna afbrigði 60 ólíkra matar- hefða víðsvegar að úr heiminum. Þingmenn mótmœla McDonalds McDonalds keðjan hefur í hyggju að framleiða Heimsmeistaraborgara í tilefni að heimsmeistarakeppninni í fótbolta sem fram fer í Þýskalandi í sumar. Margir hafa orðið til að lýsa áhyggjum að þessum áætlunum McDonalds en borgarinn á að vera um 40% stærri en BigMac borgari. Likt og vanalega mun keðjan eyða umtalsverðum upphæðum í aug- lýsingar á þessari nýju vörulínu og hafa breskir þingmenn til að mynda varað við því að auglýsingar þessar muni hafa mest áhrif á yngstu kyn- slóðina. Um tuttugu þingmenn úr öllum bresku flokkunum hafa sam- einast um að þrýsta á keðjuna að hætta við þessar áætlanir sínar og leggja fremur áherslu á hollari vöru- línur sínar. Farðu alla leið ! 1X110110 lífsins með heilbriyðum lífsstíl máltíðir dagsins. Sumar plöntuteg- undir innihalda aminósýrur sem aðrar plöntur hafa lítið af og með réttri samsetningu má ná saman öllum helstu gerðunum. í reynd er mikilvægast fyrir grænmetisætur að borða sem fjölbreyttast yfir daginn. Næringarfræðingar mæla með því að próteinrík fæða nemi um 10- 15% allrar daglegrar neyslu. Karl- menn þurfa samkvæmt þessu 55.5 g af próteinum daglega og konur 45 g. Mikilvægi þess að neyta pró- teina daglega verður ekki ýkt því líkaminn getur ekki komið sér upp próteinforða og er því háður daglegri neyslu þeirra. Vissirþú að... Egg innihalda allar þessar mikil- vægu amínósýrur sem eru líkam- anum svo nauðsynlegar. Egg eru því hin fullkomna uppsretta pró- teina. Maður þyrfti þó að borða e i n átta egg dag- lega til að uppfylla próteinþörf lík- amans. Það er því mun skynsam- legra að blanda saman alls kyns ólíkum fæðutegundum til að ná í nauðsynleg pró- tein. Fiskneysla ætti að vera ofarlega álista.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.