blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 13

blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 13
blaðið MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 SKODUNI 13 Góð úrslit fyrir náttúruna Blaðiö/SteinarHugi Kosninganna 2006 verður ef til vill helst minnst fyrir þá hugarfarsbreyt- ingu í umhverfis- málum sem þær báru vitni og er vonandi varanleg. Hún kom ekki síst Vinstrihreyfing- unni - grænu fram- boði (VG) til góða en allir flokkar tóku þátt og niðurstaðan er sú að stóriðjan sé ekki ofarlega á vinsælda- listanum um þessar mundir. Ef flokkarnir taka úrslitin alvarlega mun það þýða kúvendingu í þeim efnum. Á landsvísu voru skilaboðin ansi loðin. Sjálfstæðisflokkurinn bætti stöðu sína en ekki eins verulega og kannanir gáfu til kynna. Eins fékk Framsóknarflokkurinn skell en heldur minni en búist var við og bætti við sig sumstaðar. Samfylk- ingin dalaði víða en bætti sumstaðar við sig og er áfram sterk víða um land. Frjálslyndir buðu óvíða fram og náðu bara tvisvar inn mönnum á F-lista en sóttu þó heldur i sig veðrið og náðu mjög góðum árangri í Reykjavík. Líklega hefur þar mest haft að segja kjörþokki Margrétar Sverrisdóttur sem var mjög sýnileg seinustu dagana. Árangur VG var víða glæsilegur. í Dalabyggð fékk flokkurinn 29,2% atkvæða. I Hafnarfirði fjórfaldaði hann fylgi sitt, fór úr 2,9% í 12,1%. I Dalvíkurbyggð fékk VG18%. Á Akra- nesi tvöfaldaði flokkurinn fylgi sitt, fór úr ríflega 6% í 14,3%. Á Akureyri tvöfaldaðist fylgið næstum, fór úr 8,7 til 15,9%. í Mosfellsbæ og á Húsa- vík fær flokkurinn 12-14% fylgi í fyr- sta sinn sem boðið er fram og var þó við ramman reip að draga á báðum stöðum, annars vegar ávísanaglaður bæjarstjóri en hins vegar álversæði. Þar til viðbótar komu ýmis smærri stökk. í Kópavogi og Árborg jókst fylgið um 3-4 prósentustig sem verður að teljast dágott. I Reykjavík fékk VG fjórum prósentustigum meira en í seinustu þingkosningum. Þar eru úrslitin sérdeilis ánægjuleg í ljósi þess að flokkurinn sótti hægt og örugglega í sig veðrið alla kosn- ingabaráttuna og náði þessu fylgi í krafti mun lægri auglýsingakostn- aðar en öll önnur framboð. Og þó að oddviti flokksins hæfi kosningabar- áttuna nánast óþekkt utan flokksins hafði hún í lokin unnið sér sess sem sá oddviti sem einna mest fylgi dró að sínum flokki. I Reykjanesbæ ákvað VG að bjóða fram nokkrum dögum fyrir kosn- ingar. í fyrstu könnun var fylgi list- ans 0,2%. Á þremur vikum tókst honum að sækja svo í sig veðrið að niðurstaðan var 5,3%. Það var meira en nokkur hefði getað spáð og sýnir hvað er hægt að gera. Einnig náði VG glæsilegum árangri í Hveragerði þó að ekki kæmist þar inn maður, enda bæjarfulltrúar aðeins sjö. Þar hefur flokkurinn einnig verið lítill fram að þessu en eftir þessar kosn- ingar verður ekki framhjá honum gengið. Ekki verður undan vikist að nefna vonbrigði kosninganna. Árið 2002 vann VG glæsilegan sigur í Skagafirði en núna tapaði flokkur- inn miklu fylgi, fékk aðeins 12% en seinast 20%. Það eru auðvitað engu minni vonbrigði fyrir flokkinn en úrslitin í Kópavogi voru fyrir Fram- sóknarmenn þó að skellurinn sé öllu minni. Flokkurinn fékk 14 sveitarstjórn- armenn kosna af hreinum VG- listum en seinast voru þeir fjórir. Enn fremur var hann áberandi víða í sameiginlegum listum sem gekk vel, t.d. á Álftanesi, ísafirði og Siglu- firði/Ólafsfirði. Það er ekki svo lítið afrek hjá stjórnmálaflokki sem varla var til á sveitastjórnarstiginu fyrir fimm árum að vera skyndilega orð- inn verulegt afl um allt land. Það er líka ánægjulegt að VG virðist víða á leið í stjórn, er t.d. þegar í viðræðum við aðra flokka á Akureyri, í Árborg og hér í Reykjavík. í Reykjavík voru skilaboð kjós- enda tvíræð. Sjálfstæðismenn bættu við sig en fengu þó næstminnsta fylgi sitt í Reykjavík frá upphafi. Fram sóknarmenn hafa ekki uppskorið minna í hálfa öld. Samfylkingin fékk mun minna fylgi en í alþing- iskosningunum 2003 og náði ekki einu sinni fylgi Alþýðubandalagsins eins þegar því gekk best. Einu sigur- vegararnir eru VG og Frjálslyndir sem samanlagt hafa þó aðeins þrjá borgarfulltrúa. Þannig að það er úr vöndu að ráða og hætt við að hinn nýi borgarstjórnarmeirihluti verði einkennileg skepna, Ekki auðveldar málið hversu loðin kosningabarátta flokkanna var í Reykjavík. En svona er lýðræðið. Gærdagurinn var almennt séð góður. Vonandi er hann þó aðeins upphaf að enn meira ævintýri á næ- sta ári. Höfundur er íslenskufrceðingur www.murinn.is Ármann Jakobsson Stelpur við gefum boltann til ykkar! Stelpudeildin á SKJÁEINUM frá 5. júní - 9. júlí Aila virka daga milli kl. 19 og 22.30 verður dagskráin tileinkuð stelpum. Nú nærðu SKJAE//VL//W í gegnum Digital ísland

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.