blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 14

blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 14
blaði Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson. Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber. ERINDISLEYSA í STJÓRNMÁLUM Niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna á laugardag hafa al- mennt ekki orðið til þess að skýra línur í hinu pólitíska lands- lagi. Ekki síst er ástæða til þess að staldra við einstaklega lélega kosningaþátttöku. Á liðnu ári var talsvert um það rætt að ný miðjusókn væri hafin í ís- lenskum stjórnmálum og þess sást stað í kosningunum nú. Auðvitað var blæbrigðamunur á flokkunum, en ætli þeir almennu kjósendur hafi ekki verið vandfundnir, sem gátu umhugsunarlaust skipað sér á bak við einn flokk öðrum fremur? Eða nokkurn þeirra? Þetta endurspeglaðist svo í dauflegri kosningabaráttu og auðvitað sýndu kjósendur kosning- unum ekki meiri áhuga en þeir skynjuðu hjá frambjóðendum. En það verður ekki heldur sagt að miðjumoðið hafi borið ríkan ávöxt fyrir framboðin, eins og skýrast sást í Reykjavík. Þrátt fyrir krappa vinstribeygju inn á miðju stjórnmálanna fengu sjálfstæðismenn þar ekki nema 2,62% meira fylgi en í síðustu kosningum, þegar þeir sóttu fram af fullri hörku upp hægri kantinn. Þær lyktir hljóta að verða Geir H. Haarde, formanni Sjálfstæðisflokksins, umhugsunarefni í aðdrag- anda þingkosninga á næsta ári. Hans vandi er þó léttvægur í samanburði við tilvistarkreppu fram- sóknarmanna. Halldór Ásgrímsson, formaður flokksins og forsætisráð- herra, er ósigurvegari kosninganna og á næstu mánuðum og misserum þarf Framsóknarflokkurinn að endurnýja erindi sitt eigi hann ekki að þurrkast út. Þar mun hinn óþreytandi Björn Ingi Hrafnsson vafalaust vera í lykilstöðu. Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingar, er einnig mikill vandi á höndum eftir þá útreið, sem flokkur hennar varð fyrir í höfuðvíginu Reykjavík. Bæði í forystusveit flokksins og meðal almennra flokksmanna kraumar óánægjan og formaðurinn þarf að veita viðun- andi svör eigi ófararirnar ekki að endurtaka sig að ári. Svandís Svavarsdóttir, oddviti vinstrigrænna, getur á hinn bóginn verið hreykin af árangri sínum, þó fráleitt sé að ræða um vinstribylgju líkt og sumir forystumenn flokks hennar hafa gert. Flokkurinn hafði þokast nær miðjunni í kosningabaráttunni og þar uppskar Ólafur F. Magnússon, oddviti frjálslyndra, raunar svipað óánægjufylgi hinu megin frá. Allt þetta miðjumoð bendir til erindisleysu frambjóðendanna; að markmiðin séu óumdeild og því gildi einu hverjir veljast til valdasetu. Sú ályktun getur reynst lýðræðinu hættuleg og þeirri óheillaþróun þurfa stjórnmáiamenn að snúa við. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík. Aöalsímí: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: Islandspóstur. FRJÁLST blaðið 14 I ÁLXT MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 blaðið -róLbG, Ról-eG i EtJGíNN EFE7? W TAlA óláf mm fg túí hpfa Sigrar og vonbrigði! Þótt belgíski stærðfræðingurinn Victor D’Hondt hafi legið í gröf sinni í meira en hundrað ár var það eigi að síður hann sem felldi Reykj- avíkurlistann nú um helgina, ekki Sjálfstæðisflokkurinn. Á Islandi er nefnilega notast við reiknireglu D’Hondts til að raða fulltrúum flokkanna í stólana eftir talningu atkvæða. En reglan hans Victors hyglir stórum flokkum umfram hið hlutfallslega á kostnað þeirra sem færri atkvæði hljóta. Tilgangurinn er að tryggja starfhæfan meirihluta i fjölmennum þingum þótt mjótt sé á munum í kosningum. Og þar sem þessi regla er líka notuð í fámennum kosningum á íslandi hefur D’Hondt getað tryggt Sjálfstæðisflokknum meirihluta borgarfulltrúa þótt flokk- urinn hafi ekki endilega hlotið meiri- hluta atkvæða. Raunar geta svo lítið sem 42% atkvæða dugað fyrir meiri- hluta falli atkvæði þannig. R-listinn felldi sig sjálfur Það var semsé gild ástæða fyrir Reykjavíkurlistanum, hann var svar við óheppilegu kosningakerfi. Sú ákvörðun R-lista flokkanna að bjóða fram í sitt hvoru lagi markaði því endalok meirihlutastjórnar Samfylk- ingar, Framsóknarflokks og Vinstri grænna. Þetta mátti öllum vera ljóst en þó læðist að manni sá grunur að margir vinstri menn hafi ekki áttað sig á þessari stöðu. Ef Reykjavíkurl- istinn hefði boðið saman /ram nú sem áður hefði D’Hondt gamli lík- lega tryggt þeim meirihluta í borgar- stjórn þrátt fyrir að fá aðeins ríflega 47% atkvæða: Kannski að menn muni þetta næst. Ný pólitísk stjarna Samfylkingin kemur vissulega löskuð út úr kosningum í Reykjavík en sjálstæðismenn eru ansi skrám- aðir líka. Sú tíð virðist liðin að Sjálf- stæðisflokkurinn í Reykjavík fái fleiri atkvæði í borgarstjórnarkosn- ingum heldur en þingkosningum. Meðal annara tíðinda er að Frjáls- lynda flokknum tekst að reka flein á milli R-lista flokkanna og Sjálf- stæðisflokks og ætlar að festa sig í sessi fyrir komandi þingkosingar. (Raunar er nafn flokksins argasta rangnefni því vandfundir eru stjórn- lyndari og íhaldssamari flokkar). Sætastur er sigur Vinstri grænna og leiðtogi þeirra Svandís Svavars- dóttir er óumdeilt stjarna þessara kosninga. Afhroð Framsóknar Hinar breiðu línur eru raunar ekk- ert sérstaklega skýrar í þessum kosn- ingum en þó má ljóst greina nokkra sveiflu til vinstri. Samfylkingin og Vinstri grænir bæta almennt einir við sig fulltrúum í stærstu sveita- félögum landsins. Stóru tíðindin eru hins vegar hroðalegt afhroð Framsóknarflokksins hringinn í kringum landið. Framsóknarflokk- urinn hefur misst stöðu sína sem kjölfesta í íslensku stjórnmálalífi. Kletturinn í hafinu er sokkinn í sæ og er nú orðinn smáflokkur á pari við systurflokka sína á hinum Norð- urlöndunum. I Reykjavík er Fram- sóknarflokkurinn langminnstur flokkanna fimm og fær aðeins helm- ing þeirra atkvæða sem flokkurinn fékk í síðustu þingkosningum. Vinsælir ieiðtogar styrkjast í sessi Annað einkenni þessara kosninga er að vinsælir og sterkir leiðtogar út um landið eru að styrkja sig veru- lega í sessi, svo sem Lúðvík Geirsson í Hafnafirði og Árni Sigfússon í Reykjanesbæ. Þessir menn fara nú með himinskautum og virðast vera að spila í allt annarri og efri deild en flestir keppinautar þeirra. Höfundur er dósent í stjórnmálafrœði Klippt & skoríð klipptogskorid@vbl.is Kollega klippara á Morgunblaðinu, sem kastar þar staksteinum úr gler- húsi eftir þörfum, vakti athygli á því á kjördag að Hrafn Jökulsson hefði ritað grein til stuðnings Vilhjálmi Þ. Vilhjálms- syni og skorað á alla góða jafnaðarmenn að kjósa hann. Auk þess að vera skákfröm- uður er Hrafn fyrrverandi ritstjóri Alþýðublaðsins og fyrrverandi varaþingmaður Alþýðuflokksins. Taldi staksteinastjórinn lík- legt að margir jafnaðarmenn færu að ráðum Hrafns, sem klippari þekkir út affyrirsig dæmi um. ( lokin varpaði hann hins vegar fram óvæntri spurningu, sumsé hvort hinn góði vinur Hrafns, Össur Skarphéðinsson væri ef til vill á leið yfir ganginn í þinghúsinu þar sem hann kynni að ganga í hóp sjáltstæðismanna, sem væri vitaskuld lógísk endastöð á pólitískri vegferð hans, sem hófst yst til vinstri fyrir margt löngu. Pessi spurning kom ekki alveg úr tóma- rúmi, þvtsögusagniraf þvítaginu hafa heyrst í auknum mæli undanfarnar vikur. Össur mun ekkert gefa út á sögur af þessu tagi, en hitt er opinbert leyndarmál að honum þykir nýi formaðurinn hafa sett sig heldur út á kant í flokknum. Hann hefur þó ekki látið það mjög á sig fá og er síst minna áberandi á vettvangi stjórnmálanna nú en þegar hann var formaður Samfylkingarinnar á meðan Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þykir nánast jafnósýnileg og kollegi hennar Geir H. Haarde. En þessi möguleiki, að Össur geti farið yfirtil íhaldsins, er síst talinn veikja stöðu hans í Samfylkingunni. f komandi prófkjöri flokksins ( Reykjavík muni enginn keppa við hann um sæti af ótta við að stuða hann frekar. Wæstu daga mun sjálfsagt deila um hver sé hin stóra niðurstaða kosn- inganna. Stjórnmálafræðingurinn og eðalkratinn Ólafur Þ. Harðarson benti á það á kosninganótt, að talið um tvo turna í íslenskri pólitík ætti ekki við rök að styðjast. Samfylkingin gæti ekki lengur haldið því fram að hún keppi við Sjálf- stæðisflokkinn að stærð og tilraun hennartil aðreynaað fá vinstri menn annarra flokka til liðs við Sam- fylkinguna sem eina mótvægið við Sjálfstæðis- flokkinn hefði misheppnast.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.