blaðið


blaðið - 29.05.2006, Qupperneq 12

blaðið - 29.05.2006, Qupperneq 12
12 I DEIGLAN MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 blaöiö Gengið um dalinn í gciðum félagsskap Blaöió/Steinaor Hugi Útivistarræktin býður upp á reglubundnar gönguferðir um Elliðaárdal á hverju mánu- dagskvöldi kl. 18. Otivistarræktin, sem er félags- skapur innan ferðafélagsins Uti- vistar, stendur fyrir reglulegum gönguferðum um Elliðaárdal á mánudagskvöldum kl. 18. Lagt er af stað frá stóra brúna rafstöðvarhús- inu og gengið inn eftir dalnum. Áð er við Árbæjarlaug og síðan haldið aftur niður með Elliðaám að austan og lýkur gönguferðinni á sama stað og hún hófst. Gönguferðin tekur rúma klukkustund og hentar fólki á öllum aldri. Útivistarræktin stendur einnig fyrir gönguferðum um Öskju- hlíð og Skerjafjörð á fimmtudags- kvöldum á sama tíma. Á sumrin er jafnframt boðið upp á gönguferðir í grennd höfuðborgarsvæðisins á mið- vikudagskvöldum kl. 18:30. Allir eru velkomnir í göngurnar og er ekkert þátttökugjald. Hreyfingin og félagsskap- urinn skiptir mestu Gunnar Hólm, sem heldur utan um göngurnar á vegum Útivistar, segir að þær séu yfirleitt mjög fjölmennar og á síðasta ári hafi verið hátt í 5.000 þátttakendur í þeim. „Það er fólk á öllum aldri sem tekur þátt í þessu. Það er alltaf fastur kjarni og svo kemur fólk og fer eins og gengur,“ segir hann. Gunnar segir að hreyfingin og félagsskapurinn sé það sem mestu skipti í þessum göngum. „Þarna kemur fólk saman og hreyfir sig og spjallar saman. Þetta er vettvangur til að miðla upplýsingum, fræðslu og skemmtilegum ferðasögum," segir Gunnar og bætir við að þessar göngur hafi styrkt Útivist mikið og oft fari fólk í aðrar ferðir með félag- inu í kjölfar þeirra. Alltaf að uppgötva nýja staði Frá apríl og fram í september er boðið upp á gönguferðir á miðviku- dagskvöldum kl. 18:30. „Þá hittumst við á sama stað í Elliðaárdalnum en förum síðan á okkar eigin bílum út fyrir bæinn og göngum þar,“ segir Gunnar og bendir á að upplýsingar um gönguleiðir megi nálgast í ferða- áætlun félagsins. Að sögn Gunnars er mikið um áhugaverða staði og gönguleiðir í næsta nágrenni höfuð- borgarsvæðisins. „Ég er búinn að vera að ganga með Útivist í 20 ár og það eru alltaf nýir og nýir staðir sem ég er að koma á. Á Reykjanesinu og í kringum borgina er mjög mikið af skemmtilegum stöðum og leiðum til að ganga, miklu meira en maður ímyndar sér að óreyndu," segir hann. Ekki er boðið upp á formlega leiðsögn eða fræðslu í þessum mið- vikudagsgöngum eins og í flestum ferðum félagsins. Oftar en ekki eru þó einhverjir með sem þekkja sögu og staðhætti og miðla þeim fróðleik til samferðarmanna sinna. Nánari upplýsingar um Útivistar- ræktina má nálgast á heimasíðu Úti- vistar www.utivist.is. Fjölsykrur úr fléttum Doktorsvörn í lyfja- og efnafræði náttúruefna frá lyfjafræðideild Há- skóla Islands. í dag fer fram doktorsvörn við lyfjafræðideild Háskóla Islands. Þá ver Sesselja Sigurborg Ómarsdóttir, lyfjafræðingur, doktorsritgerð sína: Fjölsykrur úr fléttum - Ein- angrun, byggingaákvörðun og in vitro ónæmisstýrandi áhrif. Polys- accharides from lichens - Isolation, structural characterization and in vitro immunomodulating activity. Andmælendur eru dr. Hildebert Wagner, prófessor emeritus í lyfja- fræði við Háskólann í Munchen, og dr. Göran Widmalm, prófessor í lífrænni efnafræði við Háskól- ann í Stokkhólmi. Leiðbeinandi í verkefninu var dr. Elín Soffía Ól- Blalil/SteinarHugi Sesselja Sigurborg Ómarsdóttir ver í dag doktorsritgerð sína við lyfjafræði- deild Háskóia Islands. afsdóttir, prófessor við lyfjafræði- deild Hl. Dr. Þorsteinn Loftsson, deildar- forseti, stjórnar athöfninni sem fer fram í hátíðarsal, Aðalbyggingu og hefst klukkan 13. Rannsóknarráðstefna lœknisfrœðinema Rannsóknarráðstefna 3. árs lækna- nemaveturinn 2005-2006 ferfram í Hringsal Landspitala Háskóla- sjúkrahúss í dag og á morgun. Á fyrri degi rannsóknarráðstefn- unnar verða fluttir 18 fyrirlestrar 9:00 -10:20 Krabbameinslækningar, erfða- fræði og frumulíffræði krabba- meina. Fundarstjóri: Sigurður Ingvarsson 10:40 -11:20 Erfðafræði og frumulíffræði krabbameina. Fundarstjóri: Há- kon Hákonarson 11:20 -12:20 Lungna- og gigtlækningar 13:20 -15:00 Ónæmisfræði og meltingarsjúk- dómar. Fundarstjóri: Ingileif Jónsdóttir 15:20 -16:40 Hjartaskurðlækningar, gjörgæslu- lækningar, slysa- og bráðalækn- ingar. Fundarstjóri: Sigríður Ólína Haraldsdóttir Frekari upplýsingar um ráð- stefnuna og einstaka fyrirlestra er að finna á slóðinni www. hi.is/page/radstefna.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.