blaðið - 29.05.2006, Qupperneq 16
16 IGARÐAR
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 blaftiö
Margir eitra garðinn meira en nauðsynlegt er
Hœgt er að nota sjóðandi vatn eða gróft salt til að koma í vegfyrirgrasvöxt.
Failegur garður þarfnast mik-
iliar umhirðu. Eitt af því sem
angrar marga garðeigendur eru
ýmiskonar óværur eins og lús og
maðkar sem sækja á tré og runna.
Áður en fólk rýkur til og eitrar er
þó mikilvægt að vita að eitrun er
ekki fyrirbyggjandi og því ekki
hægt að eitra fyrir maðk sem enn
er ekki kominn.
Auður Ottesen garðyrkjufræð-
ingur og ritsjóri Sumarhússins og
garðsins segir allt of marga ofeitra
garðinn hjá sér. „Þá eru dæmi þess
að einstaklingar sem ekki hafa næga
þekkingu á trjáplöntum taki að sér
að úða garða og úði þá meira en
góðu hófi gegni. Það eru fáir skrúð-
garðyrkjumenn sem eru í eitrun
en ganga þarf úr skugga um að við-
komandi hafi leyfi til eitrunar. Það á
alltaf að nota eitur sem nauðvörn en
permasekt er mikið notað eitur og
notað á víði, birki, reyni og hegg. Þá
sækir furulús og hvít lús á furu en
hún hjúpar sig ullarhárum og því erf-
itt að ná til hennar. Þess vegna þarf
eitrið að vera sterkara.“
Auður segir að nú sé tími sitka-
lúsarinnar og margir sem láti eitra
fyrir hana á þessum árstíma en hún
fjölgar sér mest á haustin og gerir þá
mestan usla.
„Áður en fólk rýkur til og eitrar
er mikilvægt að minnast þess að
lúsin og maðkurinn er fæða margra
fugla og því er verið að taka frá þeim
matinn. Minni plöntur eins og rósir
getur fólk eitrað sjálf en þá er mikil-
vægt að vera með hanska og grímu
en permasekt er notað á rósirnar.
Þegar líður á sumarið gerir álmlús
vart við sig en hún sækir eins og
nafnið bendir til á álm og vefur blöð-
unum utan um sig.“
Margar ieiðir til að losna við illgresi
Auður segir margar leiðir færar til
að losna við illgresi aðrar en að eitra
og nefnir sem dæmi að setja dagblöð
og sand í beð til að koma í veg fyrir
illgresi. „Þá getur verið gott ráð að
nota gasbrennara á gras sem stingur
sér upp á milli hellna eða á fífla í
beðum. Einnig má þar nota sjóð-
andi vatn eða gróft salt til að hindra
að gras vaxi þar sem þess er ekki
óskað. Það eitur sem mest er notað
er casaron eitur en það drepur ekki
Sumar tegundir eiturs drepa ekki aðeins
það sem er ofan jarðar.
aðeins það sem er ofan jarðar heldur
einnig það sem er niðri í jörðinni
eins og maðka.“ Auður segir að cas-
aron hafi verið bannað í Danmörku
og Svíþjóð vegna þess að það getur
borist í grunnvatn. „Það getur verið
varasamt að nota casaron til að
koma í veg fyrir gras á milli hellna
því alltaf er ákveðin hætta á að dýr
sleiki þær eða börn séu þar að leik.
Eitt gott ráð til að koma í veg fyrir ill-
gresi í blómabeðum er að setja kurl
í garðana en það endist í nokkur ár
og er m.a. selt hjá Skógræktarfélagi
Reykjavíkur og í blómabúðum. Best
er að setja um 7 cm lag af kurli en
undir það er gott að setja dagblöð og
sand.“
hugrun@bladid. net
VILTU SKJOL A
VERÖNDINA?
www.markisur.com
Dalbraut 3,105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
Salat-og kryddræktun
í heimagöröum
Salat og kryddræktun fer sífellt
vaxandi í görðum, sniðugt er að
búa til sinn eigin salatgarð eða
planta í allskonar löguð ker, kringl-
ótt, ílöng, hvernig sem er, bara að
fólk geti notið þess að gera garðinn
heimilislegan, teygt sig í næsta ker
til að ná í krydd á kjötið og salat
sem meðlæti. Best er þá að hafa
plönturnar sólarmegin, hálfskuggi
er einnig í lagi.
Nú er einmitt tíminn til að huga
að þessu, róta aðeins í moldinni og
bæta við lífrænum áburði, sem er
mikilvægur fyrir matjurtaræktun.
Fólk getur þá ráðið hvort það
vill kaupa tilbúnar salatplöntur og
krydd eða sá fyrir því sjálft. Flest
krydd vex úti og mjög sniðugt er
að blanda nokkrum tegundum
saman í ker
Forsáning eða sá beint út
Forsáning inni er auðveld og þægi-
leg byrjun með bæði krydd og sal-
atafræ. Þá er sáð í litla bakka eða
potta og plastpoki svo settur yfir
eða plastfilma með götum yfir til
að halda rakanum inni. Einnig er
HELGA STEINGRÍMSDÓTTIR
GARÐYRKJUFRÆÐINGUR
hægt að nota svokallaðar sáðtöflur,
sem þenjast út í vatni, hentar þá
að setja frá 5-10 fræ í hverja töflu,
og planta síðan beint í garðinn
eða kerið. Mælt er með því að sá
alltaf kryddi fyrst inni og setja
það svo út. Flest krydd lifir úti, og
dafnar vel, en einnig lifir það vel í
eldhúsglugganum.
Salati má einnig sá beint út í
góða mold, rétt undir yfirborð,
talað er um þrefalda þykkt fræsins.
Þá er því sáð í rásir, sem þarf þá að
grisja seinna.
Bil á milli salatplantna skal vera
um 20 cm, ef um litlar plöntur eða
fræ er að ræða þá er mikilvægt að
setja akrýldúk yfir fyrstu 1-2 vik-
urnar. Dúkurinn flýtir fyrir spírun
á fræjunum og verndar plönturnar
meðan þær eru að ná rótfestu.
Mikið úrval
Hér í Garðheimum er mikið úrval
bæði af spennandi kálfræjum og
salat- og kryddfræjum. En einnig
af tilbúnum salatplöntum og kál-
plöntum t.d. blaðsalat, rucola, ice-
berg, mizuna salat o.fl. og allir ættu
að geta ræktað blómkál, spergilkál
og rófur svo eitthvað sé nefnt. Til-
búnar kryddplöntur eru líka fáan-
legar sem þægilegt er að skella út
garð eins og timían, dill, kóríander
og svo mætti lengi telja. Orvalið er
alltaf að aukast svo fólk ætti ekki
að vera í vandræðum með að finna
eitthvað við hæfi.
MHG V E R S L U N 1
Dalvegur16a 201 Kópavogur Sími 544 4656 Fax 544 4657 mhg@mhg.is
©nusqvarna
• m^111
atvinnumanninn
í MHG versluninni
BHMA