blaðið - 29.05.2006, Page 30
38 i
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 blaðið
AÐ KJÓSA EÐA
EKKl
Smáborgarinn fór að kjósa á laugardag,
eins og meginþorri kosningabærra
manna. Það hvarflaði þó vissulega að
honum að sleppa því bara að kjósa, enda
er Smáborgarinn á því að það segi mun
meira að mæta ekki á kjörstað heldur en
að skila auðu. Þá sendir maður þessu blað-
urliði mun skýrari skilaboð en ella. Þetta
gerði Smáborgarinn í síðustu kosningum
og fékk bágt fyrir frá vinum og vanda-
mönnum sem höfðu ekki nokkurn skiln-
ing á því hversu mikill skellur er fólginn
í dvínandi kosningaþátttöku. Liði sem
hefur verið alið upp við það að kosninga-
rétturinn skipti öllu máli. Je, je.
Nó jæja. Smáborgarinn ákvað að kosn-
ingarnar nú væru mun meira spennandi
en síðast og að nú örlaði aftur á skýrum
valkostum, þó vissulega væru allir aðrir
á því að sjaldan hefði miðjumoðið verið
meira. Það er þó líklega vegna þess að í
fyrsta skipti i mörg ár gat Smáborgarinn
sagt með sanni að verið væri að kjósa um
eitthvaðsem máliskipti. Allirflokkarlétu
sig leikskólamálin varða með meiriháttar
hætti og reyndu að berja sér á brjóst fyrir
áhuga á framtíðinni, á börnunum. Jafn-
vel láglaunastéttirnar, sem skipaðar eru
konum að mestu, komust í slaginn, Smá-
borgarinn er einnig mikill áhugamaður
um að bæta kjör umönnunarstétta svo
það jók áhugann á kosningaþátttöku.
Smáborgarinn fór því með börnin sín
til að kjósa og kenna þeim undirstöðuat-
riðin i lýðræðisfyrirkomulaginu. Það fór
hins vegar ekki betur en svo að útverð-
ir lýðræðisins á kjörstað í Grafarvogi
meinuðu stúlkubörnunum tveimur um
aðgang að kjörklefanum. Smáborgarinn
varð að skilja dæturnar eftir umkomu-
lausar fyrir framan tjaldið á meðan hann
afgreiddi lýðræðið með X-i.
Þessi uppákoma varð auðvitað til
þess að draga enn úr trú Smáborgarans á
þetta lýðræðiskerfi okkar en átti þó eftir
að keyra um þverbak þegar fjölskyldan
fylgdist með fréttum þetta kvöldið. Það
fór ekki framhjá dætrum Smáborgarans
að frambjóðendur hinna ýmsu flokka í
Reykjavík og víðar sportuðu börnunum
sínum á kjörstað og fengu þau öll að fara
með foreldrunum inn í klefann. Reiðióp-
in í börnum Smáborgarans ómuðu langt
inn í kosninganóttina enda sjaldan sem
lýðræðismýtan hefur sýnt sitt rétta and-
lit eins greinilega. Dætur Smáborgarans
gefa lítið fyrir kerfið eftir kosningar á
laugardaginn og ólíklegt má teljast
að þær eyði tíma sínum í framtíðinni í
lýðræðisdútl. Það virðist enda skila sér
betur að mæta bara ekkert á kjörstað og
afgreiða lýðræðið með þögninni.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði
Voru það vonbrigði að ná ekki inn
áttunda manninum?
„Það var aldrei ætlunin hjá okkur að ná sama eða betri árangri en í kosn-
ingunum 2002. Viðmiðið hjá okkur var því 50,2% og við bættum við okk-
ur sex prósentum í viðbót. Það er ekki hægt annað en að vera hæstánægð-
ur með það.“
Samfylkingarmenn í Hafnarfirði náðu glæsilegri kosningu og eru með sjö menn af ellefu í bæjarstjórn, Næsti maður inn var
einnig Samfylkingarmaður.
Virkjanastefnu mótmælt
Á kosningadaginn fóru fram tónleikar á vegum fslandsvina sem mótmæltu því hvernig stjórnvöld hafa komið fram við fólkið,
hvernig stjórnvöld hafa komið fram við landið.
Sif Aradóttir mun verða fulltrúi fslands í Miss Universe.
Beint í Miss Universe
Fegurðardrottning Islands 2006,
Sif Aradóttir, mun verða fulltrúi ís-
lands í Miss Universe í Los Angeles
23. júlí næstkomandi.
Fegurðarsamkeppni íslands
hefur ekki sent keppanda í Miss
Universe frá árinu 2003 þegar Ma-
núela Ósk Harðardóttir var fulltrúi
íslands en þurfti að hætta keppni
vegna veikinda, aðeins tveimur dög-
um fyrir aðalkeppnina.
Ásdís Svava Hallgrímsdóttir sem
hafnaði í 2. sæti keppir fyrir hönd
íslands í Miss World sem fram fer í
Varsjá, Póllandi þann 30. september
og Jóna Kristín Heimisdóttir ferðast
alla leið til Kína til að keppa í Miss
Intercontinental í ágúst.
eftir Jim Unger
Ekki segja mér að ég fái þetta gerpi
© Jim Unger/dist. by United Modia. 2001
HEYRST HEFUR...
Kosningabaráttan var ekki
öll jafndaufleg og sumir
kvörtuðu undan. Svandís Svav-
arsdóttir
og félagar
h e n n a r
í vinstri-
grænum
í höfuð-
borginni
létu út-
búa sér-
stökbarm-
m e r k i,
sem á stóð „Aldrei kaus ég fram-
sókn“, sem nutu millar hylli. Á
kjördag kláruðust merkin á
augabragði á kosningaskrifstof-
unni í Vonarstræti. Sérstaklega
munu það hafa verið nágrann-
ar þeirra á kosningaskrifstofu
Sjálfstæðisflokkins í Lands-
símahúsinu, sem fjölmenntu
til þess að merkja sig með þess-
um hætti...
Mörgum þótti Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson og félag
á framboðslista sjálfstæðis-
m a n n a
sveigj a
fullmik-
ið af leið
sjálfstæð-
isstefn-
unnar í
kosninga-
b a r á 11 -
unni. Einngallharður sjálfstæð-
ismaður fékk upphringingu frá
kosningaskrifstofu íhaldsins
og var spurður hvort hann ætl-
aði ekki að fara að kjósa Villa.
Sá gamli hélt nú ekki. Þegar á
hann var gengið um hvað ylli
þessum sinna skiptum svaraði
hann því til að ef hann vildi
koma á sósíalisma í Reykjavík
myndi hann fremur kjósa til
þess atvinnumenn en áhuga-
menn...
Stjórnmálaskýrendur Sam-
fylkingarinnar kepptust
við að benda á að Sjálfstæð-
i s m e n n
hefðu mátt
þola sín
næstverstu
kosningaúr-
slit í Reykja-
vík frá því
fornar súl-
ur flutu á
land. En
þegar litið er á súlurit Samfylk-
ingarinnar blasir við að þetta
er slakasti árangur flokksins í
Reykjavík frá upphafi. Samfylk-
ingin hefur þrisvar verið mæld
í kosningum og fékk hún 29% í
þingkosningum árið 1999, tæp
35% í þingkosningum 2003 en
aðeins liðlega 27% nú. Þau úr-
slit ollu ekki minni vonbrigð-
um í ljósi þess að flokkurinn
mældist með 36% fylgi í upp-
hafi kosningabaráttunnar...
Ekki verður samt sagt annað
en að Dagur B. Eggertsson
hafi borið sig mannalega þeg-
ar hann
kom á
kosninga-
vöku Sam-
fylking-
arinnar,
sem hald-
in var á
Broadway,
sem áður nefndist Hótel ísland.
Þegar hann og eiginkona hans,
Arna Dögg Einarsdóttir, gengu
niður stigann, var leikið lagið
Eye of the Tiger úr kvikmynd-
inni Rocky III, þó Dagur hafi
sloppið öllu ólaskaðri úr viður-
eigninni en Rocky Balboa forð-
um. Þótti viðeigandi að flytja
þetta lag með hljómsveitinni
Survivor...