blaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 1

blaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 1
IVIexíkanskir pizzaofnar í garðinn Nom (í/> <<//>«/•<'' / (0(0(0./iO/Ut. ('Y UBRÚÐKAUP Mey skal að morgni lofa | SÍÐA 17 ■ HEILSA Léttar sígarettur ekki hollar Frjálst, óháð & ókeypis! 149. tölublaó 2. árgangur þriðjudagur 4. júlí 2006 Slys á Vesturlandsvegi Harður árekstur átti sér stað á Vesturlandsveginum, rétt við afleggjarann inn í Grafarholtshverfið, igærkvöldi rétt fyrir klukkan sjö. Jeppi ogfólksbill rákust ílla saman. Þrennt var flutt á Landspítala - Háskólasjúkrahúsið f FosSvogi en ekki fengust nánari fregnir um liðan þeirra áður en blaðið fór i prent. Einkavæðingaráform í orkugeiranum galin Stjórnarandstaðan telur hugmyndir um einkavæðingu orkugeirans einkar varhugaverða en útilokar ekki einkavæðingu hluta hans. Eftir Andrés Magnússon Orbylgjuhit- aður matur skaðlegur Þrátt fyrir niðurstöður nokkurra rannsókna gefi til kynna ríka ástæðu til að ætla að matur sem hitaður hefur verið í ör- bylgjuofni geti haft margvísleg skaðleg áhrif á heilsu eru frekari rannsóknir á örbylgjuhituðum mat ekki fyrirhugaðar. Almennt vara næringafræðingar ekki við því að fólk neyti slíks matar og á vísindavef HÍ eru upplýsingar um að örbylgjuhitaður matur sé ekki hættulegur. Niðurstöður svissneskrar rannsóknar benda þótil hins gagnstæða en breyt- ingar á blóði fólks sem neytti ör- bylgjuhitaðs matar sýndu m.a. lækkun blóðrauða, aukningu hvítra blóðkorna og aukningu kólesteróls, jafnvel eftir neyslu kólesteról-frírrar fæðu eins og grænmeti. | SÍÐA25 f Stjórnarandstaðan hefur margvís- legar efasemdir um þær hugmyndir sem Illugi Gunnarsson, varafor- maður stjórnar Landsvirkjunar, hefur sett fram um uppkaup ríkis- ins á hlutum Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun og einkavæðingu fyrirtækisins í framhaldinu. „Einkavæðingaráform stjórnar- flokkanna í orkugeiranum eru al- gerlega galin,“ segir Helgi Hjörvar, stjórnarmaður í Landsvirkjun og þingmaður Samfylkingarinnar. ,Þau hafa snúist um svo víðtæka sameiningu á orkumarkaði að allt að 8o% orkuframleiðslunnar yrðu á einni hendi og síðan einkavætt. Ef eitthvað er verra en ríkiseinokun er það einkavædd einokun og það er það sem stjórnarherrarnir vilja." Á hinn bóginn telur Helgi ekki óeðlilegt að huga að einkavæðingu á tilteknum þáttum raforkufram- leiðslu og nefnir t.d. orkubeislun til stóriðju. „En mér finnst til dæmis slæm hugmynd að einkavæða Lands- net, dreifikerfi raforkunnar, og hélt að menn myndu læra af reynslunni af einkavæðingu Símans.“ Helga finnst ekki óeðlilegt að 111- ugi setji fram hugmyndir af þessu tagi, enda séu þær í takt við stefnu Sjálfstæðisflokksins, „En öðrum þræði eru þær auðvitað settar fram til þess að beina ljósinu frá þeirri pínlegu staðreynd að stjórnendur Landsvirkjunar vilja ekki fyrir nokkra muni upplýsa almenning um orkuverðið eftir að forsvars- maður Alcoa talaði af sér um að það væri helmingi lægra hér en í Brasilíu.“ Helgi taldi á hinn bóginn að hug- myndir Illuga um verðtryggingu á eignarhluta sveitarfélaganna kynnu að greiða fyrir samninga um upp- kaup ríkisins á þeim. Ögmundur Jónasson, þingmaður vinstrigrænna, telur ágætt að 111- ugi hafi skýrt mál sitt með þessum hætti en telur niðurstöðurnar frá- leitar. „Hann telur að einkavæð- ingin sé einhver lausn á þeim vanda sem Landsvirkjun stendur frammi fyrir vegna leyndarinnar um orku- verð en ímyndar sér einhver að þagnarmúrarnir rofni við það að Landsvirkjun fari í einkaeigu?“ Ögmundur telur röksemdafærslu Illuga mótsagnakennda en tekur undir að hugmyndir um verðtrygg- ingu á eignarhlut sveitarfélaganna kunni að greiða fyrir samningum. ,En það væri þá fróðlegt að vita hvort þeir kumpánar Björn Ingi Hrafns- son og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ætli að senda öllum Reykvíkingum 250.0000 kr. ávísun fyrir eignarhlut þeirra, eins og Björn Ingi lofaði í kosningabaráttunni." Þó ítrekar Ögmundur að það hafi ekki verið verðið, sem vinstri- grænir gerðu mestar athugasemdir við og kveðst út af fyrir sig skilja rök þeirra, sem telja óeðlilegt að borgin eigi 1 senn Orkuveituna og tæplega helming í Landsvirkjun. „En sann- leikur málsins er sá að við treystum ekki ríkisstjórninni í þessum málum. Hún hefur hvorki gætt hags- muna náttúrunnar né almennings í þessum efnum. Þeir hagsmunir verða að vera í fyrirrúmi." andres.magnusson@bladid.net 7.900- ^ Nú Númerabirtir Simaskrá Ljós í skjá Nettur og þægilegur þráðlaus sfmi frá Panasonic & Ara ábyrod i Vinsselasta^ fartólva*1 ACER 3633WLMi Intel Celeron M 1.5Ghz örgjörfi 512MB DDR2 vinnsluminni 60GB HDD ACER 5612WLMÍ svan).. SÍÐUMÚLA 37-SÍMI 510 6000 — SMÁAUGLÝSINGAR KAUPA /SELJA blaöiön SMAAUGLYSINGARihJBLADID.NET

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.