blaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 14

blaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 14
blaði Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber. FORYSTUVANDI HEIMSINS Alþjóðamál samtímans mótast af yfirburðastöðu Bandaríkjanna. Hernaðar- og efnahagsmáttur eina risaveldis samtímans er slíkur, að jafna verður til dýrðar Rómarveldis. Það blasir við að utanríki- stefna ríkis, sem hefur slíka yfirburðastöðu, verður ávallt umdeild. Og langt er síðan að utanríkisstefna Bandaríkjanna hefur verið jafnumdeild og um þessar mundir. Ekki er ofmælt að ræða um djúpstæða andúð meðal almennings og sumra ráðamanna í höfuðborgum Evrópu á valdhöfum í Washington. Utanríkisstefnu Bandaríkjanna er vissulega gagnrýnisverð á margan hátt og fullyrða má að með framgangi sínum í einstökum málum hafi rík- isstjórn George W. Bush skaðað hagsmuni Bandaríkjanna til frambúðar. Jafnvel dregið úr getu þeirra til þess að axla forystuhlutverk meðal Vestur- landa. Hins vegar verða Bandaríkjamenn að fá að njóta sannmælis - hvað sem mönnum kann að þykja um núverandi ábúanda í Hvíta húsinu. Forystuhlutverk Bandaríkjanna í samfélagi þjóðanna er ekki öfunds- vert. Hinn gríðarlegi hernaðarmáttur Bandaríkjanna og geta þeirra til þess að grípa til aðgerða í öllum heimshornum með litlum fyrirvara hefur fyrirbyggjandi áhrif á mörgum af hættulegustu stöðum heimsins. Ljóst er að viðbúnaðar Bandaríkjamanna í Suður- og Suðaustur-Asíu gerir það að verkum að valdajafnvægi þar um slóðir helst stöðugt. Þrátt fyrir uppgang Kínverja og þá staðreynd, að valdhafar Norður-Kóreu hafa yfir kjarnorkuvopnum að ráða, hafa Japanir og Suður-Kóreumenn, svo augljós dæmi séu tekin, ekki brugðist við með vígvæðingu. Að sama skapi má benda á að hervernd Bandaríkjamanna yfir Vestur- Evrópu á dögum Kalda stríðsins skapaði langþráðan stöðugleika í álfunni, sem meðal annars ruddi brautina fyrir Evrópusamrunann. Bandaríkin hafa einnig staðið vörð um framgang frjálsra viðskipta og lýðræðis í heiminum. Margvísleg jákvæð áhrif hins vopnaða, bandaríska friðar eru óumdeild. Þrátt fyrir að Bandaríkjamenn hafi síðastliðin ár tekið umdeildar ákvarðanir í utanríkismálum, svo ekki sé fastar að orði kveðið, blasir við að óraunhæft er að leysa úr helstu vandamálum alþjóðakerfisins án forystu Bandaríkjanna. Alþjóðasamstarf án virkrar þátttöku Bandaríkja- manna er einskis virði og ólíklegt til afreka. Að sama skapi blasir það við að valdhafar í Bandaríkjunum verða átta sig á því, að þrátt fyrir gríðarlegan hernaðar- og efnahagsmátt eru valdi þeirra takmörk sett. Utanríkisstefnan verður að njóta lögmætis og viður- kenningar og slíkt fæst ekki nema með nánu samráði við aðrar þjóðir sem deila sömu áhyggjum og hagsmunum en kunna að hafa aðrar hugmyndir um lausn mála. Örn Arnarson. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: (slandspóstur 14 I ÁLIT ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 biaöiö 'o ■HVA-PA, 'HVAVA...flU-PViT4í’ ERÍ LftGi fl-C> Hann umgangíst bíum Eíhs í-eíkfaNG. -Vi{> VÁUM JÖ ENN GR-ErOPAR 'PARNflBÆTUR MrtJ fTSSflRi EL5KU. 1 tlUÚTÚ,'7^ rl £ U Góð hugmynd Bandaríkin fagna 230 ára sjálfstæði- safmæli sínu í dag og það er svo sem ástæða fyrir fleiri til þess að fagna af- mæli þessa skilgetna afkvæmis Upp- lýsingarinnar. Enn þann dag í dag geta þeir, sem unna frelsi mannsins, lesið Sjálfstæðisyfirlýsingu Banda- ríkjanna frá 1776 sér til gagns. í sögu- bókum er oft látið meira með stjórn- arbyltinguna í Frakklandi 1789, en þá er eins og menn leiði hjá sér blóð- baðið og alræðið, sem sigldi nánast óhjákvæmilega í kjölfarið. Margt hefur gerst síðan nýlend- urnar 13 á austurströnd Norður- Ameríku lýstu yfir sjálfstæði sínu. Bandaríkin uxu og döfnuðu, gengu í gegnum harðvítuga borgarastyrj- öld, urðu að stórveldi og loks að eina eftirstandandi risaveldinu, miklum mun auðugra og öflugra en önnur ríki heims. Aukin tortryggni Eins og gefur að skilja hefur mönnum litist misvel á það forystu- hlutverk, ekki síst hin síðustu ár. Tor- tryggni í garð Bandaríkjanna er hins vegar engan veginn ný af nálinni og má sjálfsagt rekja allt til þess að stór- veldi Evrópu liðu undir lok eitt af öðru og yfirburðir Bandarikjanna á hverju sviðinu á fætur öðru urðu augljósari. Hvort heldur litið var til efnahags, hernaðarmáttar, tækni- kunnáttu eða menningar, á öllum sviðum sóttu Bandaríkin fram. Þrátt fyrir að íslendingar hafi allt frá fyrri heimsstyrjöld litið á Bandaríkjamenn sem góða granna, og tengslin orðið mjög náin, hafa alla tíð margir haft áhyggjur af bandariskum áhrifum hér á landi, bæði menningarlegum og heims- póliflskum. Þó hygg ég að engum blöðum sé um það að fletta að fs- lendingar hafa hagnast mjög á þeim nánu samskiptum og má raun segja að hér á miðju Norður-Atlantshafi höfum við íslendingar notið hins besta beggja heima, hins gamla og hins nýja. En að undanförnu hefur slegið nokkuð f bakseglin hvað þau varðar. Andrés Magnússon Þrátt fyrir gagnkvæma vináttu þjóð- anna hefur þeim fjölgað verulega á síðustu árum, sem hafa miklar efa- semdir um hug bandarískra stjórn- valda til íslendinga og stefnu þeirra í alþjóðamálum yfirleitt. Framkoma þeirra í varnarviðræðum þjóðanna var til að mynda ekki drengileg. Að sumu leyti er þessi gagnrýni ósanngjörn í meira lagi. I upphafi valdatíðar George W. Bush var hann ákaflega gagnrýndur fyrir heimótt- arskap og einangrunarhyggju en nú skilst manni að heimsvaldastefnan ráði ferðinni. Klippt & skorið jöm Ingi Hrafnsson, formaðurborg- arráðs, minnist á það á vef sínum (www.bjorningi.is) hversu mjög Ingibjörg Sólrúnu Gfsladóttur, formanni Samfylkingar- innar, sé í nöp við sig og Framsóknarflokkinn. Tekur hann sem dæmi hvernig hún hafi varið miklu máli f viðtali við Morgunblaðið síðasta laugardag í að gagnrýna athafnastjórnmálin, sem hann hefði boðað. Eins tínir hann til sneiðina, sem hún sendi honum á flokksstjórnarfundi Samfylkingar- innar hinn 10. júní, en þar hæddist hún að Birni sem „sex prósenta manninum í borginni". En í Ijósi þess að Ingibjörg Sólrún sjálf nýtur - sam- kvæmt könnun Fréttablaðsins - aðeins fyllsta trausts 8,4% kjósenda, meðan flokkur hennar hefur stuðning 24,2% þeirra, myndi klippari ætla að þau Björn og Ingibjörg hefðu ríkari skilning hvort á hlutskipti hins. Uppstokkun hefur verið f gangi innan Fróða að undanförnu og í dag tekur Kristján Þorvaldsson, fyrrverandi ritstjóri Séðs og heyrðs, við ritstjórn Vikunnar. Kristján er hokinn af reynslu í þessum geira blaðamennsku, en áður en hann varð ritstjóri S&H hafði hann meðal annars rit- stýrt Pressunni og Mannlffi. Fyrir áhugamenn um samtímasögu er svo athyglisvert að það er Mikael Torfason, lærisveinn Gunnars Smára Egilssonar, sem leiðir Kristján til Á góðum grunni En þá ættu menn kannski að hugsa aftur til 1776 og minnast þess að þar reis hin nýja þjóð gegn nýlenduoki og stofnaði ríki með sjálfstæði, per- sónufrelsi og fulltrúalýðræði að leiðarljósi. Hugsjónir Thomas Jef- ferson og annarra landsfeðra Banda- ríkjanna um valddreifingu og hvert valdið er sótt eru þar enn í fullu gildi, sem er ekki síst athyglisvert þegar horft er til þveröfugrar stefnu Evrópusambandsins um æ samofn- ara samband, þar sem valdið kemur allt að ofan. Kannski hefur minna breyst á þessum 230 árum en maður hugði. Þá er sjálfsagt hollt að minnast þess að Bandaríkjamenn björguðu Evrópu þrisvar sinnum á liðinni öld og það án þess að helga sér meira land en þurfti til þess að grafa hina föllnu syni sína. Eins hvernig Banda- ríkin hafa hvað eftir annað staðist heimsveldisfreistingar, höfðingskap í garð sigraðra óvina og þolinmæði gagnvart hvikulum bandamönnum. Ekki má heldur gleyma einstöku ör- læti Bandaríkjamanna og hvernig þeir hafa auðgað mannkyn allt með ótrúlegri framfarasókn á sviði tækni, vísinda og menningar. Það má fyrst og fremst rekja til þess að þeir hafa haldið trúnað við þær hugsjónir, sem lögðu grunninn að Bandaríkjunum fyrir 230 árum. Bandaríkin eru vissulega merki- legt land en sem hugmynd eru þau enn merkilegri. Höfundur er blaðamaður ábyrgðar á ný. Á sfnum tíma bolaði Smári hins vegar Kristjáni úr ritstjórastóli Pressunnar. Klippari les á Vfsi (www.visir.is) um undirbúning Pauls Fontaine Nikolovs, kollega sfns á Grapevine, að stofnun stjórnmálaflokks, sem mun hafa það að meginmarkmlði að láta raddir innflytjenda heyrast. (fréttinni eru ýmis stefnumál þessa Babelsflokks tíunduð og er m.a. haft eftir Paul að áhersla verði lögð á byggingu „moskvu [svol] og réttrúnaðarkirkju á Islandi." Segið svo að brottför varnarliðsins hafi ekki geigvænleg áhrif. andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.