blaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 7

blaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 7
blaöið ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 FRÉTTIR I 1 Lýst eftir vitn- um að um- ferðaróhappi Fimmtudaginn 22. júní sl. um klukkan 18:06 varð umferðar- óhapp, slys, í hringtorgi við Reykjanesbraut/Lækjargötu í Hafnarfirði. Mun óhappið hafa orðið með þeim hætti að hóp- bifreið lenti þar utan í hjólreiða- manni sem við það féll í götuna og drógst með bifreiðinni nokk- urn spöl. Þeir vegfarendur sem kunna að hafa orðið vitni að óhappi þessu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 525 3300. Verð innan eði- legra marka Gjöld fyrir alþjónustu í fjar- skiptum hér á landi eru innan eðlilegra marka. Þetta er niður- staða verðkönnunar Póst- og fjarskiptastofnunar. „I alþjóð- legum verðsamanburði Teligen á árlegum kostnaði fyrir meðal- notkun á heimilissíma innan OECD landa er ísland með þriðja lægsta kostnað á eftir Kanada og Bandaríkjunum. Ef tekið er mið af meðalnotkun heimilissíma á Norðurlönd- unum er ódýrast hér á landi að nota heimilissíma," segir í fréttatilkynningu á heimasíðu Póst- og fjarskiptastofnunar sem þar birtist í gær. Gjaldskrá fyrir almenningssíma og sím- töl í upplýsingaþjónustuna 118 standast einnig alþjóðlegan samanburð og er ódýrari en í flestum viðmiðunarríkjunum. Kim Jong II, leiðtogi Norður-Kóreu- manna. Hóta kjarn- orkustríði Norður-kóresk stjórnvöld hóta að svara árásum, sem Banda- ríkjamenn kunna að gera á kjarnorkuver þeirra og eld- flaugaverksmiðjur, með kjarn- orkustríði. Þetta kom fram i rikisfjölmiðlum landsins í gær. Mikil spenna ríkir á milli Norður-Kóreumanna og ann- arra ríkja sökum þess að stjórn- völd í landinu hafa gert sig líkleg til að skjóta langdrægri eldflaug, afgerðinni Taepodong- 2, á loft í tilraunaskyni. Talið er að slík eldflaug geti dregið til vesturstrandar Bandaríkjanna og borið kjarnahleðslu. Fram kom hjá norður-kór- esku fréttastofunni að Banda- ríkjamenn hafi aukið hernað- aruppbyggingu í grennd við landið og aukið tíðni njósna- fluga frá Suður-Kóreu. Fram kom í fréttinni að norður-kór- eski herinn væri reiðubúinn til þess að svara árásum Banda- ríkjamanna og myndi grípa til kjarnavopna til þess að verjast þeim. Óstööugleiki á fjármálamörkuð- um ógnar tyrneska hagkerfinu Þrátt fyrir fall lírunar er ekki búist við sambærilegri kreppu og reið yfir árið árið 2001. Stjórnmálahorfur ráða miklu um ákvarðanir fjárfesta. Eftir Örn Arnarson Undanfarna mánuði hafa alþjóð- legir fjárfestar í vaxandi mæli verið að selja eignir sínar í hagkerfum svokallaðra nýmarkaða (e. emerg- ing markets) sökum óvissu um horf- urnar á fjármálamörkuðum. Hækk- andi vextir í Bandaríkjunum og á Evrusvæðinu ásamt ótryggu ástandi í alþjóðamálum og háu heimsmark- aðsverði á olíu hafa gert það að verkum að alþjóðlegir fjárfestar hafa dregið úr fjárfestingum sínum á ný- mörkuðum og fært eignasöfn sín í ríkara mæli í traustari myntir eins og dollara, evrur og pund. Áhrif þessarar þróunar gætir víða þrátt fyrir að aðstæður í einstaka löndum séu ólíkar. Undanfarna tvo mánuði hefur tyrkneska líran fallið um fimmtung gegn dollara og verðbólga í landinu mælist nú um tíu prósent. Seðla- banki Tyrklands hækkaði vexti þrisvar sinnum í síðasta mánuði til þess að draga úr falli lírunnar. Ótt- ast er að haldi líran áfram að falla muni það leiða til alvarlegrar fjár- málakreppu sem myndi draga veru- lega úr annars stöðugum hagvexti í landinu. Stjórnmálaástandið veldur áhyggjum Sökum þróunar á fjármálamörk- uðum undanfarna mánuði er mikið horft til ástands á nýmörkuðuðum eins og í Tyrklandi enda hafa skyndi- legar breytingar á innstreymi fjár- magns frá alþjóðlegum fjárfestum oft valdið kreppum sem hafa breiðst út til annarra sambærilegra hagkerfa. En þrátt fyrir að ýmsar hagtölur í Tyrklandi benda til undirliggjandi vandamála er það fyrst og fremst stjórnmálaástandið sem veldur áhyggjum. Þrátt fyrir ástandið í dag er ekki ótt- ast að fjármálakreppa í líkingu við þá sem reið yfir Tyrkland árið 2001 geti skollið á. Kreppan 2001 var afleið- ing áralangrar óstjórnar og í henni hrundi bókstaflega bankakerfi og hagkerfi landsins. Þjóðarframleiðsla féll um 10% á einu ári og atvinnuleysi jókst gríðarlega. Ríkisstjórn lands- ins neyddist til þess að láta líruna fljóta gegn öðrum gjaldmiðlum og tileinkaði sér aðhaldsamari stjórn ríkisfjármála í samstarfi við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn (IMF). Dagblaðið International Herald Tribune hefur eftir Gavi Ercel, sem var í stjórn tyrk- neska seðlabankans frá árinu 1996 til 2001, að litlar líkur séu að fjármála- kreppa nú gæti haft álíka afleiðingar og sú sem reið yfir í byrjun aldarinnar. Síðan þá hafa verið gerðar miklar um- bætur á fjármála- og bakakerfi lands- ins og er það þvf betur í stakk búið til að takast á við sveiflur en áður var. Kosningar framundan Fall lírunnar er engu að síður mikið áhyggjuefni. Á sama tíma og hag- vöxtur mælist um 6.4% eru skuldir ríkisins miklar og óhagstæður vöru- skiptajöfnuður fer vaxandi. Tyrk- neska hagkerfið reiðir sig í miklum mæli á skammtímafjármögnum frá alþjóðlegum fjárfestum og teikn eru á lofti að erfiðara verði á komandi misserum að tryggja slíkt fjármagn. Getan til slíks mun ekki síst ráðast af því hvernig stjórnmálaástandið þróast. Forseta- og þingkosningar eru framundan og merki eru um að spenna fari vaxandi. Þar takast á hin hefðbundna valdastétt í land- inu, sem hefur ávallt lagt áherslu á að Tyrkir halli sér til vesturs, annars- vegar og hinsvegar stjórnarflokkur landsins, Réttlætis- og þróunarflokk- urinn, sem er leiddur af Recep Tayyip Erdogan forsætisráðherra. Réttlætis- og þróunarflokkurinn á rætur sínar að rekja til íslam en neitar því að hann vilji afnema veraldlega stjórn- kerfið í Tyrklandi. Talið er líklegt að Erdogan hyggist bjóði sig fram til for- seta og andstæðingar hans óttast að það muni auka áhrif trúarbragða á stjórn landsins. Dæmi um þessa spennu mátti greina fyrr á þessa ári þegar hart var deilt um skipun í stöðu seðlabanka- stjóra. Forsætisráðherrann tilnefndi mann sem er sérfróður um tengsl fjárfestinga og íslam en forsetinn beitti neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að sá tæki við embættinu. í aprfl náðust sættir um að skipa Durmuz Yilmas í stöðuna en hann er sagður hafa meiri áhuga á stöðugu verði á mörkuðum en kóraninum. Ljóst er að fjárfestar munu fylgjast grannt með gangi mála í Tyrklandi á komandi misserum. Þar munu þeir væntanlega þurfa að taka tillit til annarra þátta en þeirra er birtast í hagtölum þegar þeir vega og meta kosti fjárfestinga á landinu. Ljóst þykir að þeir muni fyrst og fremst þurfa að horfa á gang mála í aðildar- viðræðunum við Evrópusambandið. Þær viðræður eru að mörgu leyti það sem viðheldur áhuga fjárfesta á land- inu um þessar mundir. orn@bladid.net Palestínskir vígamenn setja ísraelum úrslitakosti Þrír hópar palestínskra vígamanna sem hafa ísraelska hermanninn, Gilad Shalit, í haldi gáfu ísraelskum stjórnvöldum frest til aðfaranætur þriðjudags í gær til að verða við kröfum þeirra. Hótunin kom frá hernaðararmi Hamas-samtakanna og tveim öðrum samtökum. Vfgamennirnir vilja að ísraelsk stjórnvöld sleppi um 1500 Palest- ínumönnum úr fangelsi gegn því að þeir sleppi hermanninum, sem Íieir rændu síðustu helgi. Verði sraelsmenn ekki við kröfu þeirra segja vígamennirnir að þeir verði að taka afleiðingunum. Ekki var útskýrt frekar í hverju þær afleið- ingar fælust. í kjölfar hótunar- innar ítrekuðu ísraelsk stjórnvöld þá afstöðu sína að þau myndu ekki semja við vígamennina og kröfð- ust að hermanninum yrði sleppt án allra skilyrða. SpennanfervaxandiáGaza-svæð- inu en Ehud Olmert, forsætisráð- herra ísraels, er sagður hafa skipað hernum að grípa til allra nauðsyn- lega úrræða til þess að frelsa her- manninn. Israelsk stjórnvöld hafa Reuters Daglegt líf á spennutímum: Hjólreiðamaður fer fram hjá israelskum skriðdrekum og jarð- ýtum við Nismit sem er á landamærum fsraels og Gaza-svæðisins. lýst því yfir að þau Iíti svo á að rík- muni beina aðgerðum sínum að isstjórn Hamas-samtakanna beri ríkisstjórn þeirra á meðan hermað- ábyrgð á mannráninu og að þau urinn er í haldi. Paui Fenech hefur að öllum líkindum sleg- ið heimsmet í heimsendingu á pitsum. Heimsmet í heimsendingu Ástralski kvikmyndaleikstjórinn Paul Fenech setti að öllum líkindunm nýtt heimsmet í heimsendingu á pit- sum á dögunum en hann ferðaðist um 20 þúsund kílómetra til þess að koma pítsunni á leiðaranda. Fenech ferðaðist frá Ástralíu til Spánar, þar sem að hann keypti pítsuna, og fór með hana þaðan til Nýja-Sjálands þar sem að hann færði 13 ára dreng, sem heitir Niko Apostolakis, flatbökuna. Ferðalagið tók þrjá daga. Ástæðan fyrir að Fenech fór alla leið til Spánar til þess að ná í pítsuna er sú að hann vildi vekja athygli á mál- efnum krabbameinssjúkra barna en Niko litli sem fékk hina köldu pitsu þjáist af sjúkdómnum. Heimsmetabók Guinness hefur ekki enn staðfest metið en samkvæmt bókinni var núverandi heimsmet sett þegar nokkrir leikarar í áströlsku sápuóperunni Grannar pöntuðu sér pitsu sem var send frá Lundúnum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.