blaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 2

blaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 2
2IFRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 blaðiö blaóiö— Hádegismóum 2,110 Reykjavík Sími: 510 3700 • www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@ bladid.net AUGLÝSINGAOEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Skýrslutöku í skattamálum Baugs frestað Skýrslutökum embættis ríkis- lögreglustjóra yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, vegna meintra skattalagabrota hefur verið frestað að sinni. Fram hafði komið í fjölmiðlum að skýrslutakan ætti að fara fram í gær, en Hjálmar Blöndal, aðstoðarmaður Jóns Ásgeirs, kvað svo ekki vera. Sagði hann unnið að því að ákveða tíma til skýrslutökunnar en að ekk- ert hefði verið fastsett í þeim efnum. Af málum Baugs, sem nú eru rekin fyrir dómstólum, er það að frétta að Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmálinu, upplýsti í gær að frávísun héraðsdóms frá því á föstudag hefði verið kærð til Hæstaréttar. Um er að ræða einn ákærulið af nítján, þann umfangsmesta. Sex þurrir dagaríjúní Aðeins sex alþurrir dagar voru í Reykjavík í júní samkvæmt visi. is. Mikil rigning hefur verið á höfuðborgarsvæðinu í sumar og einnig skýjað. Veðrið hefur verið mun betra á Norður- og Austur- landi. Úrkoman í höfuðborginni mældist tæplega 6o millimetrar í júní en meðaltalið eru fimmtíu millimetrar. Tuttugu og þrjú ár eru síðan færri alþurrir dagar voru í júní en þá voru þeir fimm talsins. Úrkoman var þó mun meiri árið 2003 eða 90 milli- metrar. Á Akureyri hefur úr- koman verið rétt um þriðjungur af meðalúrkomu júnímánaðar. Mynd/Ásdis Sumarvinnan Þessi unga kona er ein af þeim sem tryggir aö Reykjavíkurborg skarti sínu fegursta yfir sumartimann. Hún virðist hinsvegar ekki vera neitt sérstaklega hrifin af þeim hijóm sem borgin og náttúran bjóða uppá og hafði þvf Mp3 spilara sér til halds, trausts og afþreyingar. Spá vaxta- hækkun Seðlabankinn mun hækka stýri- vexti sína um 0,50-0,75% á fimmtu- daginn, gangi spá Greiningardeildar Glitnis eftir. „Bankinn mun þar með vera kom- inn með stýrivexti sína upp í 12,75- 13,0% en svo hátt hefur bankinn ekki farið með vexti sína í yfir ára- tug. Með aðgerð sinni bregst bank- inn við vaxandi verðbólgu en án aðgerða reynist hún sennilega yfir 2,5% verðbólgumarkmiði bankans fram yfir næsta ár,“ segir í Morgun- korni Glitnis. Dæmdur fyrir ölvunarakstur Karlmaður var dæmdur í Héraðs- dómi Norðurlands eystra í gær til þess að greiða 180 þúsund krónur í sekt fyrir að aka ölvaður og nytja- stuld í apríl á þessu ári. Maðurinn var jafnframt sviptur ökuleyfi í þrjú ár og situr í 14 daga fangelsi ef hann borgar ekki sektina innan fjögurra vikna. Maðurinn ók bifreið frá sumarhúsi við býlið Fögruvík í Hörgárbyggð og ætlaði til Ólafsíjarðar. Okuferðinni lauk hins vegar þegar hann velti bif- reiðinni við býlið Brávelli á leið sinni. Gagnrýnir fyrirkomulag greiðslna til langveikra barna Faðir langveiks barns spyr hvort meiri ástæða sé til að borga mönnum hundruð þúsunda í fæðingarorlofi heldur en að borga foreldrum sem hlúa að deyiandi barni EftirVal Grettisson Um mánaðarmótin síðustu tóku gildi lög sem tryggja foreldrum lang- veikra barna tekjur í allt að níu mán- uði. Hingað til hefur sá möguleiki ekki verið til staðar. Ragna K. Marínósdóttir fram- kvæmdastjóri Umhyggju, sem vinnur að bættum hag sjúkra barna og fjölskyldna þeirra, segir frum- varpið ganga of skammt og að marga vankanta sé að finna á því. „Sá hópur sem aldrei kemst út á vinnumarkaðinn gleymist algerlega og þeir njóta ekki góðs af þessu frum- varpi,“ segir Ragna. Hún bendir á að skilyrði fyrir að foreldrar njóti góðs af styrkinum séu m.a. að þeir hafi verið á vinnumarkaði og geti lagt inn fullnægjandi vottorð um að þeir hafi orðið fyrir tekjumissi vegna umönnun barnsins. Áð sögn Rögnu er aftur á móti hópur foreldra sem aldrei kemst á vinnumarkaðinn vegna veikinda barna sinna og því eiga þau ekki rétt á aðstoðinni. „Við fögnum því samt að fyrsta skrefið hafi verið stigið," segir Ragna en bætir við að henni finn- ist ekki nógu langt gengið í nýsam- þykktu frumvarpi. Hún bendir á að í nágrannalöndum Islands sé kerfið mun hagstæðara og aðstoðin betri. Samkvæmt frumvarpinu tekur það þrjú ár fyrir foreldra Iangveikra barna að vinna upp þriggja mánaða rétt til þess að fá bæturnar. Ragna segir það vera fullhæga þróun og bendir jafnframt á að styrkurinn nemi 93 þúsund krónum sem sé til að mynda mun lægri upphæð en ný- samþykktar atvinnuleysisbætur. Sorgieg staða Einn af þeim sem gagnrýnir hið nýja fyrirkomulag er faðir langs- veiks barns, Falur Þorkelson. Hann hefur ekki verið á vinnumarkaði að ráði í heilt ár og einnig hefur eiginkona hans verið frá vinnu síðastliðin þrjú ár. Sonur þeirra er með heilahrörnun og er mikið fatl- aður líkamlega og andlega. Þau fá enga aðstoð í kjölfar nýsamþykkts frumvarps sökum þar sem þau geta ekki sýnt fram á að hafa orðið fyrir tekiumissi. „Eg er heppinn að hafa geta selt eign sem við getum lifað af,“ segir Falur. Hann bætir við að það sé sorg- leg staða að eina leiðin fyrir foreldra sem eiga svo veikt barn sé að grípa til slíks úrræðis til að eiga fyrir þeim kostnaði sem fylgir því að sjá um veikt barn sitt. Falur segir að hann reyni að fara út á vinnumarkaðinn þegar dreng- urinn er í góðu ásigkomulagi. Hins vegar vari það stutt og stundum er ekki gefið að vinnumarkaðurinn hafi þörf fyrir krafta hans þegar slíkar aðstæður koma upp. Ótrúlegt álag „Mér finnst það vera samfélagsleg spurning hvort fólki finnist meiri ástæða til þess að borga tekjuháum mönnum 600 þúsund krónur fyrir að tengjast barni sínu í feðraorlofi heldur en að borga foreldrum sem hlúa að deyjandi barni,“ segir Falur en heildartekjur sem foreldrar geta fengið í kjölfar lagabreytingarinnar verður um hálf milljón króna sem dreifter yfirþrjúár. Sonur Fals og eiginkonu hans er annað barn þeirra sem fæðist veikt en þau misstu barn fyrir átta árum sem var haldið sama sjúkdómi. Falur segir að foreldrar svona langveikra barna séu langþreytt enda ekki búin að hvílast almennilega jafnvel í marga mánuði. Því sé orkan lítil sem er eftir til þess að berjast einnig fyrir bættum réttindum þeirra sem reyna að sjá um deyjandi eða veikt barn. „Álagið sem er á fjölskyldum lang- veikra barna er ótrúlegt,“ segir Falur og vonast eftir skilvirkari aðstoð í framtíðinni. valur@bladid.net Kisi, kis! Starfsmaður í dýragarðinum í Amman í Jórdaníu notaði tækifærið til að halda á þess- um Ijónsunga í gær enda er þess ekki langt að bíða að óráðlegt verður að klappa þessum kisa. 0 Heiðskirt léttskýjaðÁjL Skýjað Alskýjað Rigning, litilsháttai ir^^Rioning^?»Súld Sniðkoma^fe-:. Slydda Snióél &^Skúr Algarve Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Dublin Frankfurt Glasgow Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal New York Orlando Osló Paris Stokkhólmur Vin Þórshöfn 22 29 28 26 21 17 29 20 27 23 24 29 30 31 20 24 25 24 30 28 27 12 Á morgun Veðurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.