blaðið - 04.07.2006, Qupperneq 23
blaöiö ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006
HESTAR I 23
Roy Rogers
Kvikmyndastjarnan Roy Rogers
skipaði stóran sess í lífi margra
sem fæddir eru á fimmta ára-
tugnum. Hann var stjarna eins
og þær skina skærastar. Ungir
drengir sátu stjarfir í myrkv-
uðum bíósölum og áttu sér þá
ósk heitasta að líkjast honum í
einu og öllu og sitja hnarreistir
geðþekka hestinn Trigger. Roy
Rogers fangaði hugi og hjörtu
heillar kynslóðar - og það ekki að
ástæðulausu.
Roy Rogers var kúreki eins og
allir töldu að kúrekar ættu að vera.
Hann var sterklega byggður og
myndarlegur með afbrigðum. Hann
var holdgervingur heiðarleika og
trausts í augum flestra. Hann mætti
hættunum af æðruleysi og leysti úr
öllum vandamálum af einskærri út-
sjónarsemi og fátt vakti meiri kátínu
meðal ungdómsins um miðja öldina
en að fylgjast með ævintýrum kú-
rekans káta og trygglynda hestsins
Triggers. Roy var hetjan sem aldrei
brást.
Fæddur í borginni
Roy Rogers var þó alls ekki sveita-
barn að upplagi þó hann ætti einkar
auðvelt með að eiga við hesta. Hann
fæddist í Cincinnati í Ohio árið 1911
og bar í upphafi nafnið Leonard Slye.
Þegar hann var sjö ára ákvað faðir
hans að nú væri tími til kominn til
þess að flytja í dreifbýlið og keypti
litið býli. Draumurinn og farsælt
fjölskyldulíf í sveitinni varð þó ekki
að raunveruleika því vinnudagarnir
voru ákaflega langir og tóku á. Roy
þurfti ungur að axla mikla ábyrgð
og skyldur á búinu. Þegar hvíld gafst
æfði hann sig á mandólín og áður en
langt um leið hafði hann náð tölu-
verðir færni á þetta snúna hljóðfæri.
Fjölskyldan bauð stöku sinnum ná-
grönnum sínum í heimsókn til þess
að stíga dans undir trylltum mandó-
línleik Roy og létu gestirnir sér það
vel líka.
Synir frumbyggjanna
Roy hætti í skóla til þess hjálpa föður
sínum að sjá fyrir börnum og búi.
Kreppan var í algleymingi og störf
lágu ekki á lausu. Roy sagði sjálfur
að Steinbeck hefði líklega skrifað
skáldsöguna Þrúgur reiðinnar um
fjölskyldu sína en þau ferðuðust
niður til Kaliforníu í leit að vinnu.
Mary, systir Roy, hafði veitt tónlist-
arhæfileikum hans athygli og hvatti
hann til þess að reyna fyrir sér á
útvarpsstöð nokkurri sem kynnti
óþekkta tónlistarmenn. Hann lét
Roy Rogers og hesturinn Trigger.
til leiðast og forsvarsmenn stöðvar-
innar gátu ekki annað en látið heill-
ast af þessum unga pilti. Þótti þeim
tilvalið að Rogers fyndi sér félaga til
þess að skemmta með sér og fyrir val-
inu varð frændi hans Dick Weston.
Saman sungu þeir undir nafninu
Sons of the Pioneers. Þeir komu
fram í ótal útvarpsþáttum og síðar í
kvikmyndum. Roy lék í sinni fyrstu
kvikmynd síðla fjórða áratugarins
og átti eftir að leika um 80 slíkum
á sinni löngu ævi. Einnig var hann
stjarna sjónvarpsþáttarins The Roy
Rogers Show á árunum 1951-57 sem
naut ótrúlegra vinsælda. Vinsældir
Rogers töldu margir ekki síst felast
í því að almenningur gerði engan
greinarmun á hans eigin persónu og
þeirri sem birtist í kvikmyndunum.
Hann var alltaf jafn sviphreinn og
heillandi hvort heldur sem er á hvíta
tjaldinu eða í eigin persónu.
Stjarna allra barna
Fyrri kona Roy, Arline, lést af barns-
förum árið 1945 og var hún öllum mik-
ill harmdauði. Roy giftist skömmu
síðar mótleikkonu sinni Dale Evans
og voru þau saman alla tíð. Þau urðu
þekkt um allar jarðir fyrir umhyggju
sína fyrir börnum en þau ættleiddu
sjálf nokkur börn auk þess sem þau
gáfu mikið fé til alls kyns hjálpar-
starfsemi til handa heimilislausum
og fötluðum börnum. Bæði Roy og
Dale voru sannkristin og lifðu eftir
boðorðunum af heilum hug. Það
er kunnara en frá þurfi að segja að
vestrar Roy Rogers nutu geysilegra
vinsælda. Ein ástæðan er án efa sú
að flestar myndir hans voru í lit
meðan flestar aðrar B-myndir voru
í svarhvítu. Einnig voru framleiddar
styttur, póstkort, teiknimyndasögur
og allskyns dót til þess að selja aðdá-
Roy ásamt eiginkonu sinni Dale Evans
endnum hans sem tóku öllu slíku
fegins hendi. Roy lést úr hjartabilun
87 ára að aldri árið 1996 en lifir góðu
lífi í kvikmyndum sínum, á föln-
uðum leikaramyndum sem farið
hafa í gegnum hendur ótal barna
og í minni þeirra sem lifðu með
honum tímana tvenna. Fyrir borg-
arbörn sem ekki komast á hverjum
degi í útreiðartúr eða kúrekaleiki
er tilvalið að kúra inni við á rigning-
ardögum og endurnýja kynnin við
Roy Rogers og hestinn Trigger.
Vinsældir Rogers töldu
margir ekki síst felast
í því að almenningur
gerði engan grein-
armun á hans eigin
persónu og þeirri sem
birtist í kvikmyndunum.
Eldhestar gera víðreist um landið
Það er fátt unaðslegra á hlýjum
sumardegi en að fara í útreiðar-
túr. Sitja stæltan, íslenskan hest
og njóta náttúrunnar til hins
ýtrasta. Margt ljóðskáldið hefur
lýst yndislegri reynslu sinni um
grösuga dali í félagsskap þessarar
yndislegu skepnu sem hesturinn
er og það er vissulega engu Iíkt
að sitja töltandi hest um sveitir
landsins.
Mörgum borgarbörnum kann
að finnast þetta aðeins fjarlægur
draumur en þannig þarf það alls
ekki að vera.
Hestaleigan Eldhestar er tuttugu
áragömuláþessuári. Hestaleigan er
staðsett á Völlum í Ölfusi, einungis
í um 30 mínútna akstursfjarlægð
frá Reykjavík og því eru hæg heima-
tökin fyrir ráðvillt borgarbörn að
skreppa austur og bregða sér á bak.
Ferðir um fagra náttúru
Markmiðið með stofnun leigunnar
á sínum tíma var að bjóða ferða-
mönnum upp á hestaferðir um svæði
sem ekki voru aðgengileg á annan
hátt. í upphafi var áhersla lögð á
að gefa fólki kost á upplifa Hengils-
svæði og þær mörgu náttúruperlur
sem þar er að finna, eins Reykjadal,
Marardal, Kattartjarnir svo fátt eitt
sé nefnt og nutu þessar ferðir fljót-
lega mikilla vinsælda.
í dag er dagsferð Eldhesta í Reykja-
dal ein af vinsælustu hestaferðum
landsins. Eldhestar bjóða upp á
hestaferðir frá 1 klst og upp í 7 daga
ferðir. Allar dagsferðir fyrirtækisins
og styttri eru farnar frá Völlum í ölf-
usi, sem og lengri. Hins vegar teygja
lengri ferðirnar anga sína nánast
um allt landið þvert og endilangt.
Allar styttri ferðirnar eru ætlaðar
jafnt vönum sem óvönum.
„Islendingar duglegir að
fara í hestaferðir"
Louise Harreson starfar hjá Eld-
hestum og hefur nóg að gera þessa
dagana.
„Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval
af hestaferðum. Stuttu ferðirnar eru
í boði alla daga og innifalið í verðinu
er að sækja fólk til Reykjavíkur og
skila því aftur til baka. Ferðirnar eru
ákaflega vinsælar og það er brjálað
að gera hjá okkur enda háannatími.
Annars bjóðum við upp á ferðir allt
árið nú orðið og það er töluvert að
gera hjá okkur allt árið. “
Louise segir að það séu alls ekki
bara erlendir ferðamenn sem sæki í
það að fara í útreiðartúra.
Mynd/Þorkell
Skyldi hann fjögurra- eöa fimm gira þessi?
99.....................................
Við fáum alls ekki bara útlendinga til
okkar, íslendingarnir eru duglegir að fara í
styttri ferðir um helgar efveðrið er gott.
„Við fáum alls ekki bara útlend-
inga til okkar, íslendingarnir eru
duglegir að fara í styttri ferðir um
helgar ef veðrið er gott. Fólk kemur
mikið í hópum, saumaklúbbar og
aðrir taka sig saman og skreppa í
stuttan útreiðartúr. Svo rekum við
líka hótel og veitingahús sem fólk
nýtir sér mjög mikið.“
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að íslenska hálendið heillar
flesta sem því kynnast. Eldhestar
bjóða upp á slíkar ferðir sem eru
í lengri kantinum. „Við förum i
langar ferðir yfir hálendið og hafa
ferðir yfir Kjöl verið mjög vinsælar
meðal erlendra ferðamanna. Þær
ferðir eru margar uppbókaðar fyrir
löngu,“ segir Louise
Að nýafloknu hestamannamóti
er ekki annað hægt en að spyrja
hestakonuna Louise um mótið. „Við
vorum ekki með neina sérstaka
dagskrá í tengslum við hestamanna-
mótið um helgina. Það er svo mikið
að gera hjá okkur öllum sem vinnum
hér að við höfðum sjálf engan tíma
til þess að sækja mótið, “ segir Lou-
ise og snýr sér aftur að vinnunni
enda nóg að gera hjá Eldhestum
þessa dagana.
Við tökum vel á móti þér!
UFLAND
Lynghálsi 3 • Sími: 540 1125
www.lif1and.is
i
i