blaðið - 04.07.2006, Side 24
24 I MENWING
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 blaðið
Frá Paimpol til Reykjavíkur
Þann 24. júní síðasliðinn hófst árleg skútukeppni, Skippers de Islande,
frá franska fiskibænum Paimpol til íslands. Skippers de Islande er al-
þjóðleg keppni á seglskútum af ýmsum stærðum og gerðum. Keppnin
er haldin í minningu tengsla franskra sjómanna við ísland. Kappsigl-
ingin var nú haldin í þriðja sinn í þessum einstaklega fallega 8000
manna bæ þar sem höfnin er sneisafull af skútum og þetta árið mátti
sjá íslenska fánann skreyta nokkrar þeirra. Götur og staðir í Paimpol
bera nöfn sem minna á Island, má þar nefna götuna Islandais og veit-
ingahúsið L’lslandais.
Mikið var um dýrðir þennan dag. Hljómsveit lék sjómannalög og í
tjöldum mátti kaupa alls kyns varning. Hópur íslendinga á vegum
Alliance Francaise fylgdist með skútunum þegar þær lögðu úr höfn.
Skemmtiferðaskip fylgdi skútunum eftir og farþegar stóðu úti á þilfari
og veifuðu til áhafna. Nokkrir bátar fylgdu þeim einnig eftir og greini-
legt var að þar voru fjölskyldumeðlimir áhafna því heyra mátti börn
kalla „pabbi!“ um leið og þau veifuðu í ákafa.
Skipverjar á skútuni Belle Poule stóðu uppi í rám þegar þeir fylgdu skútunum frá Paim
pol.
BlaðMolla
Nokkrar skútur voru skreyttar íslenska fánanum.
BlaliWolla
Sigur skútustýrunnar
Sigurvegari kappsiglingarinnar
frá Paimpol til Reykjavíkur er
hin 25 ára gamla Servane Esc-
offier frá Saint Malo, sem sigldi
ásamt þremur félögum sínum.
Hún er yngsti skútustjóri keppn-
innar og náði strax forystu sem
hún hélt til loka. Reiknað hafði
verið með að sigurvegarinn
kæmi til hafnar i Reykjavík 4.
júlí en Servane var nokkuð á
undan áætlun og sigldi í höfn 30.
júní eftir fimm daga og þrettán
klukkutíma siglingu. Faðir
Servane ásamt skipsfélugum sínum.
hennar tekur einnig þátt í keppn-
inni en var ekki kominn í höfn
þegar blaðamaður hitti Servane.
Þessi glaðlynda og tápmikla
stúlka, sem hefur próf í viðskipta-
fræði, segist hafa byrjað að fara í
siglingar með foreldrum sínum
þegar hún var tveggja ára gömul.
Hún hefur ætíð haft áhuga á sigl-
ingum en um tíma hafði hesta-
íþróttin yfirhöndina og þar keppti
hún með góðum árangri þar til hún
lenti í slæmu slysi. Hún sneri sér
þá að siglingum, sextán ára gömui.
BlaöiD/lngó
99.................
Kannski verð ég
stundum einmana en
þetta er bara vika svo
það gerir ekki mikið til.
Hún segir að ferðin til íslands hafi
ekki verið sérlega erfið, vanda-
samast hafi verið að halda réttri
átt. Kuldinn hafi verið nokkur
en engin ástæða sé til að kvarta
undan honum þar sem hann sé
hluti af íþróttinni.
Servane verður á Islandi fram
til 12. júlí en þá hefst kappsigling
frá Grundarfirði til Paimpoi. Þá
mun hún sigla ein og tryggja sér
þar með rétt til þátttöku í Romm-
keppninni í haust en þar er siglt
frá Saint Malo til Guadeloupe í Kar-
abíska hafinu. Þegar hún er spurð
hvort siglingin frá Grundarfirði
verði ekki einmanaleg segir þessi
brosmilda stúlka: „Kannski verð
ég stundum einmana en þetta er
bara vika svo það gerir ekki mikið
til. I þeirri ferð skiptir mestu máli
að maður þekki báttinn sinn eins
og sjálfan sig og líði vel í honum.“
Servane Escoffier. Sigraði í keppninni frá
Paimpoi til Reykjavíkur.