blaðið - 04.07.2006, Síða 30

blaðið - 04.07.2006, Síða 30
30 I FÓLK ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 blaöiö SMÁ HVAÐ FINNST ÞÉR? borgarínn AF STRÍÐS- GLÆPAMÖNNUM Smáborgarinn er rasandi yfir því hvað menn eru hissa á nauðgunum og níð- ingsverkum Bandaríkjamanna í Irak. Það er eins og fólk hafi ekki af því heyrt að nauðganir og níðingsverk, limlestingar og morð eru undantekningalaus fylgi- fiskur styrjaldareksturs. Man einhver eftir stríði sem háð hefur verið án þess að ofbeldismenn leiki lausum hala og fái óáreittir útrás fyrir sjúklegar fíknir sínar? Man einhver eftir stríði þar sem meinleysisgrey, sem vart gátu gert flugu mein, breyttust ekki i óhamin skrímsli sem miskunnarlaust hjuggu niður mann og annan? Smáborgarinn á ekki til orð yfir þessum kjánalegu viðbrögöum við endalausum fregnum af níðingsverkum úrstríðum heimsins. Auðvitað eru þetta ekkert annað en kjánaleg viðbrögð. Fólk vill kannski meina að það hafi nú alls ekki búist við þvíað hermenn létu til skararskríða gegn almennum borgurum. Smáborgarinn hlýtur að spyrja hvað verður þá til þess að fólk dregur slíka ályktun. Stríð eru í eðli sínu ekkert annað en ofbeldi og glæp- ur. Smáborgarinn hefur mikið verið að hugsa um eðli og hlutverk forystumanna ríkisins, forsætisráðherra og forseta, eft- ir því með hvaða sniði stjórnsýslan hefur verið sniðin. Smáborgarinn hefur komist að þeirri niðurstöðu, þeirri eðlilegu niður- stöðu, að forseti þjóðar sem lýsir stríði á hendur annarrar þjóðar hljóti að hafa brugðist hlutverki sínu algerlega. Helsta hlutverk þjóðarleiðtoga er að tryggja reglu í samfálagi sínu. Með þvi að efna til stríðs er þjóðarlelðtogi í raun að fara þvert gegn hlutverki sínu, þvert gegn reglunni. Hann er f raun að tryggja óreglunni viðgang með slfku háttalagi. Forsvarsmaður ríkis sem efnt hefur til stríðs hefur því um leið fyrirgert rétti sfnum til að stjórna ríkinu. Slfkur maður hlýtur um leið að vera að lýsa yfir nauðg- unum á konum og börnum, pyntingum og morðum á almennum borgurum. Hjá þvíverðurekki komist því ekkert stríð hef- ur verið háð án slíkra voðaverka. Að halda þvffram að þannig sé málum ekki farið er því ekkert annað en rakalaus útúrsnúningur þeirra sem vita betur eða innihaldslaust hjal þess sem ekkert veit. Maður sem hefur lýst yfir stríði er því ann- aðhvort illvirki eða heimskingi. Þetta er eitthvað sem smáborgarar landsins vita ósköp vel. Þaðerorðið ansi mikið of langt sfðan Andersen strípaði keisarann til að haldaöðrufram. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri Reykjavíkur Tókstu mynd af Ingibjörgu Sólrúnu niður? „Það er ekki hægt að taka niður það sem ekki hangir uppi.“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri Reykjavíkur ákvaö aö hengja aftur upp myndirnar sem Ingibjörg Sólrún fyrrverandi borgarstjóri tók niöur i Höföa í valdatíð sinni. MYNDJIMSMART Tívolíið við Smáralind bauð börnum frá Umhyggju, sambýlununum á höfuðborgarsvœðinu, BUGL ogfleiri stöðum í heimsókn í gœr. Um i.6oo einstaklingar þáðu þetta góða boð ogskemmtu sér í góðviðrinu og tóku spretti í hinum ýmsu leiktœkjum tívolísins. Þetta er ífjórða sinn sem Smáralindin stendurfyrir þessum svokallaða góðgerðardegi. SU DOKU talnaþraut 3 9 8 6 1 2 4 7 5 Lausn síðustu gátu: Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hvertala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri linu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. 4 5 2 9 7 3 6 8 1 i 6 7 4 8 5 9 2 3 6 4 3 7 2 1 8 5 9 2 7 5 8 3 9 1 4 6 8 1 9 5 4 6 2 3 7 5 3 1 2 6 4 7 9 8 7 2 6 3 9 8 5 1 4 9 JLi 4 1 5 7 3 6 2 Gáta dagsins: 2 3 1 5 2 9 1 8 7 3 1 8 3 7 2 6 8 3 6 8 4 5 9 1 7 3 6 9 eftir Jim Unger Kanínurnar eru að borða allt grænmetið hans. 9-10 O Jlm Ungar/dist. by Unitod Media, 2001 HEYRST HEFUR... Bandarískisendiherrann.Car- ol van Voorst og eiginmað- ur hennar, William A, Garland, bjóða til I mikillar móttöku að Kjarvalsstöðum í dag í tilefni 230 ára I afmæli Bandaríkj-j anna. Áhugi á hana- stéh þessu meðal hinna talandi og drekkandi stétta höfuðstaðarins mun hafa aukist mjög eft- ir að út spurðist að George Bush eldri, fyrrverandi Banda- ríkjaforseti, yrði staddur hér á landi í sama mund. Útsendari greiningardeildar úrklippu- safns Blaðsins í sendiráðinu segir á hinn bóginn af og frá að forsetinn fyrrverandi komi í móttökuna, enda verði George Herbert Walker Bush, eins og hann heitir fullu nafni, önnum kafinn við að knýta á sig slauf- una fyrir kvöldverðarboð, sem herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, heldur honum að Bessastöðum... Annars hlýtur náttúrlega stóra spurningin að vera sú hvort George Bush eldri leggi í að feta í fótspor Bills Clintons og fá sér pylsu á Bæjarins beztu í Tryggvagötu. En sporin hræða ef til vill, því eins og menn muna var Clinton ekki fyrr kominn aft- ur heim til Bandaríkjanna en hann fékk ákafan hjartverk og var lagður inn á spftala þar sem hann gekkst undir hjáveituað- gerð. Bush eldri hefur verið við góða heilsu og hélt nýverið upp á 82 ára afmæli sitt. Sennilegast væri rétt hjá honum að sleppa sinnepinu, sem Clinton úðaði í sig um árið... Ekki fer mikið fyrir stórgróss- ernum Jóni Ólafssyni, sem löngum var kenndur við Skíf- una, þessa dagana. Hér á landi að minnsta kosti. En það þýðir ekki að hann sitji með hendur í skauti. Auk þess sem hann stendur í málaferlum við ís- lenska fræðimenn hefur hann gerst um- svifamikill vatnsút- flytjandi og markaðssetur vatn frá Þorlákshöfn undir merkinu Glacial. Fregn er um Jón á Bev- Net, sem er veffréttarit drykkjar- vörumarkaðarins og þar er ekki ónýt kynning á okkar manni: „Hinn annálaði íslenski viðskipta- maður Jón Ólafsson, sem kunn- ur er að ástríðufullri umhyggju fyrir náttúru lands síns...“ Pað styttist í kosningar, eins og sjá mátti á forsíðu Frétta- blaðsins á sunnudag, þar sem ráðherrarnir Surla Böðvarsson og Magnús Stefánsson sátu fyr- ir á mynd með gítar og bongó- trommur, en þeir eru báðir með skrifstofur í Hafnarhúsinu, en þar í portinu er kjörinn staður fyrir tónleikahald þeirra félaga úrNorð- vesturkjördæmi. En það má svo sem merkja kosningatitr- inginn af fleiru, því ekki er annað að heyra af Sturlu að hann sætti sig ekki við aðgerð- ir þær, sem ríkisstjórnin boðaði fyrir skemmstu um frestun framkvæmda, a.m.k ekki þegar kemur að vegaframkvæmdum. Og undir þetta taka þingmenn í hinum og þessum kjördæmum, svo ekki er útséð með þensluna ennþá... andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.