blaðið - 22.07.2006, Side 10
10 I ÁUT
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 blaðið
Ur dagbókinni
Dagurinn
hófst á
því að ég
undirritaði
þrjár
reglugerðir
vegna
samkomu-
lags stjorn-
valda vð
eldri um bættan hag aldraðra.
Kl. íi var blaðamanna-
fundur í Hinu húsinu þar
sem Magnús Stefánsson,
félagsmálaráðherra,
skrifuðum undir samning
við fyrirtækið Nýja leið um
ný úrræði fyrir ungmenni á
aldrinum 15 til 18 ára sem eiga
við áhættusama hegðun og geð-
og hegðunarraskanir að stríða
Siv Friðleifsdóttir
föstudaginn ii.júlí.
Grímþór hugsar upphátt:
...ég hef verið að velta fyrir mér hvers vegna allt er eins og það er.
Fyrir ekki svo langa löngu voru allir í stuði, bankar og ráðherrar.
Peningar hrundu út um alla glugga, opinbera og ekki opinbera.
Bankar og ríkið kepptust af hörku við að lána peninga. Fólk geyst-
ist um, byggði, breytti og bætti. Svo fór Davíð úr ríkisstjórninni í
Seðlabankann og óveðurskýin komu hvert af öðru. Bankarnir eru
hættir að lána og allir eru varaðir við af sömu mönnum og fyrir
ekki svo löngu hvöttu alla til að gera allt og allt. Hvernig er þetta
eiginlega? Ekki er hægt að rífa húsin, sólpallana, bílana, sumarbú-
staðina með gestahúsunum, rífa upp heitu pottana, slíta veggsjón-
vörpin niður. Skuldirnar standa eftir. Þess vegna langar mig að
spyrja. Er hægt að fá, þó ekki væri nema örlítið skýrari skilaboð!
SMÁAUGLÝSINGAR
blaðiða
SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET
„Rausnarskapur"
ríkisstjórnarinnar
Svo illa hefur verið farið með aldraða
hér á landi að þeir gera sér að góðu
molana sem ráðherrar ríkisstjórnar-
innar stífa þeim úr hnefa. Á þessu
kjörtímabili fá þeir i samkomulaginu
við stjórnvöld lítið annað en það sem
ASÍ samdi um fyrir launþega þessa
lands, 15 þúsund krónurnar, fyrir þá
allra verst settu, sem eru 400 aldraðir.
Hingað til hefur ekki þurft handsal
og húllumhæ til að slíkir kjarasamn-
ingar gangi til lífeyrisþega. Aldraðir
hafa setið eftir í ellefu ára tíð ríkis-
stjórnarinnar og nú er mikið gert
með að þeir fái sjálfsagða kjarabót
launþega á vinnumarkaði. Allt sem
haft hefur verið af þeim í ellefu ár
stendur óbætt.
Þegar ég heyrði af þessu „mikla“
átaki sem ríkisstjórn Guðna og Geirs
handsalaði við eldri borgara nú í
vikunni, rifjaðist upp fyrir mér sam-
komulagið sem gert var við aldraða
korteri fyrir síðustu alþingiskosn-
ingar: Alltaf er verið að leika sama
leikinn aftur og lofað upp í ermina á
næstu ríkisstjórn.
Rumskað rétt fyrir kosningar
Það er dæmigert fyrir stjórnvöld að
rumska nú tíu mánuðum fyrir kosn-
ingar og vilja þá rétta öldruðum kjara-
bætur, sem þó ná ekki að bæta þeim
upp það sem lífeyrisþegar ættu að
hafa í greiðslur ef grunnlífeyrir og
tekjutrygging hefðu haldið raungildi
sínu frá árinu 1995, þegar þessir flokk-
ar hófu ríkisstjórnarsamstarf sitt.
Það á greinilega ekki að skila öldruð-
um til baka því sem af þeim var haft
á valdatímanum undanfarin ellefu
ár, sem eru um 170 þúsund krónur
á ári ef almannatryggingabæturnar
hefðu haldið raungildi sínu. Þetta á
heldur ekki að bæta á næstu fjórum
árum ef marka má orð Geirs, ef þeir
ráða áfram.
Samfelld bið hjá öldruðum
Þetta loforð nær yfir næstu fjögur ár,
en umboð stjórnarinnar varir aðeins
í tíu mánuði í viðbót. Þetta mikla sam-
komulag á auðvitað að verða til þess
að aldraðir verði svo glaðir að þeir
kjósi þessa flokka áfram til valda.
Flokkana sem hafa hundsað aldraða
og málefni þeirra alla sína stjórnar-
tíð nema ef vera skyldi þegar kosn-
ingavíxlarnir hafa verið handsalaðir.
En það er eins gott að lífeyrisþegar
átti sig á því að það á ekki að leiðrétta
kjör þeirra að fullu heldur næstu fjög-
með ókunnugum á hjúkrunarheim-
ilum. Nú á áfram að bíða eftir úrbót-
um sem vísað er til næstu ríkisstjórn-
ar að efna.
Hjúkrunarsjúklingarnir fá 5000
krónur um áramót. Þetta eru sjúk-
lingar á stofnunum sem hafa rúmar
20 þúsund krónur til ráðstöfunar
- gamla fólkið sem ekki hefur getað
vikið smáræði að börnum sínum og
barnabörnum um jól vegna hins öm-
urlega vasapeningakerfis á nú að fá
fimm þúsund krónur um áramótin!
Mikil rausn þar eða hitt þó heldur.
Var það þetta sem gladdi Guðna svo
mjög?
Einu sinni var ríkisstjórn sem
kölluð var Stefanía eftir forsætisráð-
herra hennar. Nú hvarflar að manni
að framundan sé ríkisstjórnin „Geir-
jón“ og að ríkisstjórnarflokkarnir í
blágræna bandalaginu hafi ákveðið
að starfa saman á næsta kjörtímabili
nái þeir fylgi til þess. Vonandi láta
aldraðir ekki plata sig með þessu svo-
kallaða „átaki“ til að styðja þá til þess,
eftir allt sem á undan er gengið í mál-
efnum þeirra. Staðan í málefnum
aldraðra er áfellisdómur fyrir stjórn-
völd. Samfylkingin mun gera betur
við þennan hóp fái hún stuðning til
þess í næstu kosningum.
Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar.
Þetta loforð nær yfir næstu
fjögur ár, en umboð stjórn-
arinnar varir aðeins í tíu
mánuði í viðbót. Þetta
mikla samkomulag á auð-
vitað að verða til þess að
aldraðir verði svo glaðir
að þeir kjósi þessa flokka
áfram til valda. Flokkana
sem hafa hundsað aldraða
og málefni þeirra alla sína
stjórnartíð.
ur árin. Þetta eru mun lakari kjör
fyrir aldraða en Samfylkingin hefur
barist fyrir á Alþingi undanfarin ár.
Saga ríkisstjórnarinnar í málefnum
aldraðra hefur verið samfelld bið, 100
bíða á LSH, 1000 bíða eftir hjúkrunar-
rýmum, enn aðrir 100 bíða eftir að fá
að vera með sínum nánustu síðustu
æviárin, eru aðskildir nú og svo eru
tæplega 1000 aldraðir í herbergjum