blaðið - 22.07.2006, Page 20
20 I VIÐTAL
4
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 blaöiö
fyrir mínu
** Vílhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur verið borgarstjóri
Reykvtkinga í rúman mánuð. „Mér finnst ég hafa
verið borgarstjóri miklu lengur, það hefur svo
margt gerst á þessum stutta tíma," segir hann. Vil-
hjálmur hefur langa reynslu í stjórnmálum, varð
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks árið 1982 og nú,
tuttugu og fjórum árum seinna, eftir að hafa setið
tólfár í minnihluta, er hann orðinn borgarstjóri.
Hann er spurður að því
hvort þetta hafi ekki
verið löng bið. „Mér
leið aldrei sérstaklega
illa í minnihlutanum i
borgarstjórn vegna þess að ég var for-
maður Sambands íslenskra sveitarfé-
laga, sem er mikið og gjöfult starf. Ég
læt af því starfi í haust eftir sextán
ára formennsku," segir hann. „Ef
ég hefði ekki haft það starf þessi ár
sem ég sat í minnihlutanum þá hefði
ég sennilega hætt í stjórnmálum og
snúið mér að öðrum störfum.“
Erengumháður
Erþað ekki rétt að við val á borgar-
stjóraefni hafi Sjálfstœðisflokkurinn
ítrekað gengiðframhjá þér?
„Nei, ég hef aðeins einu sinni áður
sóst eftir því að verða borgarstjóri
og það var þegar Davíð Oddsson lét
af embætti. Það fór eins og það fór.
Eftir það voru ýmsir sem fóru fram
úr mér og vildu verða borgarstjóra-
efni: Markús Örn Antonsson, Árni
Sigfússon, Inga Jóna Þórðardóttir,
Björn Bjarnason og fleiri. Það trufl-
aði mig ekki. Þegar menn segja að ít-
rekað hafi verið gengið framhjá mér
þá er það ekki rétt. Eg ákvað sjálfur
að gefa ekki kost á mér. Á hinn bóg-
inn hef ég gert mér grein fyrir því að
ákveðin öfl í Sjálfstæðisflokknum
höfðu ekki sérstakan áhuga á því að
ég yrði borgarstjóraefni flokksins og
hugsanlega borgarstjóri. Ugglaust
hafa þessir aðilar einhverjar ástæður
fyrir því en ég er bara ekki þannig
gerður að ég sé að velta því mikið
fyrir mér.“
Þykirðu kannski ekki nœgilega
hollur ákveðnum armi innan
flokksins?
„Það stjórnar mér enginn. Enginn
nema ég sjálfur. Ég er engum háður.
Ég hef ekki leitast eftir því að tengjast
hópum sem ég hef síðan ætlast til að
styddu mig þegar ég teldi mig þurfa
á því að halda. Ég hef þurft að hafa
fyrir mínu. I prófkjörinu voru ýmsir
kunnir forystumenn í Sjálfstæðis-
flokknum sem studdu mig ekki. Það
fór ekkert sérstaklega í taugarnar
á mér. Það fór meira í taugarnar á
stuðningsmönnum mínum. Mér var
nokk sama.“
„Ég veit að ég get virkað
þungur en innra með
mér er ég mjög glað-
lyndur og hef gaman
af góðum húmor og
saklausri stríðni
Kominn með forgjöf
Maður hefur séð stjórnmálamenn
einangrast þegar þeir komast í góðar
stöður. Hefurðu engar áhyggjur afþví
að það hendi þig?
„Veistu, ég held að úr þessu sé úti-
lokað að ég geti breyst. Eg er orðinn
sextugur og er bara sá sem ég er. Ég
hef alltaf verið í miklu sambandi við
fólk og rækta þau tengsl. Ég reyni að
aðstoða fólk eins og ég hef krafta til.
Á þessum eina mánuði sem liðinn er
síðan ég tók við embætti hafa um 260
einstaklingar beðið um viðtal og ég
hef því fjölgað viðtalstímum borgar-
stjóra úr tveimur klukkustundum
í viku í sex klukkutíma. Þegar ein-
hver fer frá mér þá skilur hann eftir
viðfangsefni fyrir mig, verkefni sem
ég afgreiði sjálfur eða útdeih til ann-
arra. Það fer mikill tími í þetta en ég
hef líka mikla reynslu í mannlegum
samskiptum.“
Þú átt örugglega ekki margar frí-
stundir, hvaðgerirðu íþeim?
„Við Guðrún sambýliskona mín
höfum gaman af því að ferðast, inn-
anlands og utan. Svo hefur golfið líka
fangað hug okkar. Ég fór að æfa golf
fyrir tveimur árum og finnst það
gríðarlega skemmtilegt. Ég er kom-
inn með forgjöf 30.9“
Erþaðgott?
„Ég er dálítið montinn yfir því. Ég
er allavega kominn með forgjöf.“
Þú ert t' sambúð en verður borgar-
stjórinn í Reykjavík ekki að vera (
hjónabandi?