blaðið - 22.07.2006, Qupperneq 23
blaAÍð LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006
SAMSKIPTI I 23
Eftir lát hennar varð hann verri maður.
Stúlkan sem átti
hjarta Hitlers
Hitler hafði gaman afað taka Geii með í lautarferöir. Hér má sjá einkar afslappaðan for-
ingjann, að rabba við sína ástkæm frænku ísllkri ferð.
Angela Raubal, kölluð Geli, fæddist
í Linz í Austurríki 4. júní 1908. Hún
var elsta dóttir hálfsystur Adolfs
Hitler, Angelu Raubal, og ástkona
móðurbróður síns, Adolfs Hitler.
Kynni með þeim hófust fyrir al-
vöru í mars árið 1927, þegar móðir
Geli flutti til Obersalzberg í Þýska-
landi til þess að gerast húshjálp
bróður síns. Hún hafði dætur sínar
með sér og ekki leið á löngu þar til
hinn fertugi Adolf Hitler tók að heill-
ast meira og meira af nítján ára gam-
alli frænku sinni, Geli Raubal.
Á fundi með flokknum
f Obersalzberg byrjuðu þau að
njóta félagsskaps hvort annars en
þegar hann, starfsins vegna, þurfti
að vera meira i Munchen flutti hann
Geli þangað.
Hann skráði hana í læknanám við
háskólann og lét útbúa fyrir hana her-
bergi í íbúðinni sinni. Hann tókhana
með sér hvert sem hann fór. Naut þess
að sýna henni lífið og listirnar. Þau
fóru í lautarferðir og leikhús og hann
vílaði það ekki fyrir sér að fara með
hana á fundi hjá nasistaflokknum.
Opinn og blíður Adolf
Þeir sem til hans þekktu sögðu að
Hitler hafi vanalega yfirtekið öll sam-
töl og allar umræður á mannamótum
en hann gerði undantekningu á þessu
þegar Geli átti í hlut. Þegar hún hafði
eitthvað til málanna að leggja þagn-
aði sjálfur foringinn og leyfði Geli að
njóta sín. Hann var lokaður maður
sem gaf aldrei persónulegt færi á sér
en gagnvart Geli var hann opinn og
blíður. Það mátti enginn gera grín að
honum nema hún og Geli var ein af
fáum manneskjum sem gat fengið
hann til að hlæja.
Vaktaði hana dag og nótt
Eftir þvi sem Hitler komst meira til
valda innan nasistaflokksins byrjaði
hann að herða ólina sem hann hafði á
frænku sinni. Hann leyfði henni ekki
að umgangast vini eða kunningja án
hans samþykkis og ef hann vaktaði
ekki ferðir hennar sjálfur dag og nótt
þá fékk hann einhvern sem hann
treysti til þess að gera það fyrir sig.
Þrátt fyrir þessa stjórnunartakta
frændans var Geli frjálslynd ung
kona sem lét illa að stjórn og gerði
því vanalega það sem henni hentaði
við hvert tækifæri sem bauðst. Hún
átti meira að segja í ástarsambandi
við Emil Maurice, en hann var einn
af stofnendum SS sveitanna og um
tíma einkabílstjóri foringjans.
Tókeigið líf
I september 1931 framdi hin tutt-
ugu og þriggja ára gamla Geli Rau-
bal sjálfsmorð. Þetta gerði hún, með
byssu sem Hitler átti sjálfur, inni í
herberginu sínu í íbúðinni. Hún
skildi ekki eftir neitt sjálfsmorðs-
bréf en við hlið hennar lá annað bréf
sem hún skrifaði til vinar síns og í
því voru engar vísbendingar sem
gátu skýrt dauða hennar.
Eftir að Geli dó fóru af stað margs
konar sögusagnir. Marga grunaði
að Hitler sjálfur hefði haft eitthvað
með lát hennar að gera. Hitler
hafði jú sterk ítök hjá lögreglunni
í Munchen og hefði þar af leiðandi
getað hagrætt sannleikanum að
vild. Sumir héldu að hún hefði orðið
barnshafandi eftir hann og ekki
getað lifað með því og aðrar raddir
töldu Himmler hafa drepið hana þar
sem hún hótaði Hitler fjárkúgun.
En þetta eru bara getgátur. Það eina
sem er alveg vitað er að þau höfðu
rifist mikið fram að deginum sem
hún tók eigið líf. En raunverulega
ástæðu þess að hún dó, hvernig eða
út af hverju, veit enginn.
Hann breyttist til hins verra
Margir sagnfræðingar telja að
Hitler hafi verið mjög ástfanginn
af Geli. Eftir að hún dó hótaði hann
að fremja sjálfsmorð en flokks-
bræðrum hans tókst að telja hann
af því. Reyndar hafði hann áður
komið með slíkar yfirlýsingar án
þess að láta verða af þeim en eitt er
víst að hún var eina stóra ástin í lífi
hans og eftir að hún lést varð hann
allt annar maður. Hann breyttist til
hins verra.
Afbrýðisöm út í Evu Braun
Allt frá upphafi var samband Hitl-
ers og Geli mjög stormasamt og það
er vitað að hann var ekki fær um að
sýna sama trygglyndi og hann krafð-
ist af frænku sinni. Þau ásökuðu
hvort annað stöðugt um framhjáhald
og sérstaklega hafði Geli áhyggjur af
hinni sautján ára gömlu Evu Braun
sem Hitler var duglegur að taka í
bíltúra í Mercedes-Benz glæsikerru
sinni. f dag er sú kona fyrst og fremst
þekkt fyrir að hafa verið ástkona Hitl-
ers en það mun samt alltaf hafa verið
Geli sem átti hjarta hans.
Frændi Geii, Willie Hitler, lýsti henni á
eftirfarandi hátt „Geli minnti meira á bam
en unga konu. Það var ekki beinlínis hægt
að kalla hana fallega en hún var mjög heill-
andi. Hún notaði vanalega ekki hatta eða
annað skraut og klæddi sig mjög látlaust.
Til dæmis i pliseruð pils og hvítar blússur.
Enga skartgripi bar hún aðra en gylltan
hakakross sem frændi hennar Adolf gaf
henni en hann kallaði hún alltaf Alf frænda.
Sálarangist
Eva Braun upplifði, líkt og Geli
Raubal, mikla sálarangist yfir sam-
bandi sínu við foringjann og reyndi
m.a. tvisvar sinnum að taka eigið
líf á meðan á sambandi þeirra stóð.
Hún lést þó ekki fyrr en fjórtán
árum síðar, eftir að hún hafði á
einum sólarhring gifst ástmanni
sínum og haldið svo með honum
yfir móðuna miklu í brúðkaupsferð.
Gat ekki hamið ást sína
Flestir sem til málsins þekkja telja
að Geli Raubal hafi fyrst og fremst
liðið tilfinningalegar kvalir vegna
þess að hún átti í sifjaspells sam-
bandi við náfrænda sinn. Þrátt fyrir
blóðböndin gat hún ekki hamið
ástríðu sína til hans og í kjölfarið tók
hún eigið líf. Nú liggur hún grafin í
Zentralfriedhof kirkjugarðinum í
Vínarborg.
Harðjaxlinn Adolf Hitler átti erfitt með að opnahjarta sitt. Svo erfitt að aðeins ein .......................................
kona komstþarinn. Sú hét Geli Raubal og varsysturdóttirhans. margret@bladid.net
Fallegar konur
og efnaðir menn
Aldrei hef ég hneykslast á því
þegar fallegar konur ná sér í þybbna,
kannski ófriða, en vel efnaða menn.
Ég hneykslast ekki heldur þegar
ungar og fallegar konur ná sér í SAMSKIPTI
vel efnaða eldri menn. Hin svegar KYNJANNA
skil ég lítið í því þegar ung og fal-
leg kona birtist allt í einu með illa
ofsalega fallegar. Bara fallegar.
Þetta sést best á muninum á því
hvernig kynin bregðast við fata-
fellum. Þegar konur koma saman
til að horfa á fagra karla fækka
fötum þá öskra þær og skrækja.
Klappa saman lófunum og láta
öllum illum látum eins og glaðir
simpansar. En þegar fatafella fer
úr fyrir karla þá sitja þeir þöglir, op-
inmynntir og dáleiddir og virðast
varla geta hreyft legg né lið. Þeir
verða bergnumdir af fegurð og
kynþokka fatafellunnar og um leið
valdalausir þar sem þeim hættir að
vera sjálfrátt.
Það er mikið minna af hormón-
inu testósterón í konum en körlum.
Karlar sem hafa mikið testóste-
rón í sér eru meiri keppnismenn
en hinir sem hafa minna af því.
Konur hafa almennt lítið testóste-
rón og eru að sama skapi ekki jafn
mikið fyrir að keppa og karlar.
Hvorki í fótbolta né á vinnumark-
aði. Kannski er það þess vegna sem
testósterón rýrum konum finnst
það góð hugmynd að eignast efn-
aða karla? joseph Campbell sagði
líka að konum hefðu verið seld
karllæg gildi í seinni heimsstyrj-
öldinni þegar þær neyddust til að
fara á vinnumarkaðinn. Þær áttu
að varpa sínum gildum fyrir borð
og breytast í karlkonur. Gera það
sem karlar gera.
Tímaritið Time, sjónvarpsþáttur-
inn 60 Minutes og dagblaðið New
York Times gerðu nýlega víðtækar
rannsóknir í kringum þetta við-
fangsefni og út úr henni fengust
m.a. þær niðurstöður að 95% af
körlum sem útskrifuðust úr Stan-
ford Háskóla með MBA gráður
voru í fullri vinnu en aðeins 38%
kvennanna. Sömu útkomu má
finna í bókinni What Women
Really Want, eftir tölfræðingana
Celindu Lake og Kellyanne Con-
way, en þar kemur fram að sjö af
hverjum tíu konum myndu frekar
kjósa að vera heima með börn-
unum, ef þær hefðu efni á því.
Og það er þess vegna sem ég
botna lítið í því þegar ég sé fagrar,
valdamiklar konur með rolulega
og lata karla sér við hlið. Þær gætu
nefnilega verið heima að dúlla sér.
margret@bladid.net
gefinn, tuttugu árum eldri karl
upp á arminn. Karl sem er með
allt niðrum sig eins og amma hefði
kallað það. Já. Það finnst mér erf-
itt að skilja. Þetta virkar einhvern
veginn andstætt þróunarkenningu
Herberts Spencer um að þau sterk-
ustu komist af.
Ekki spyrja mig af hverju, en
það er nú samt svo að karlar eru
almennt vanmáttugari gagnvart
fögrum konum, en konur gagn-
vart fögrum körlum. Hinn lokkum
prýddi Fabio hefur ekki öflug áhrif
á flesta kvenmenn. Fagur karl er
oft lítið annað en fagur í augum
konu. Eins og fagur kaffibolli. En
heillandi, fyndinn, skemmtilegur
og vel gefinn karl er önnur saga.
Giacomo Casanova var t.d. ekk-
ert sérstaklega sætur. Hann var
með alltof stútlegan munn, stutt
enni og signa undirhöku en hann
var óhemju heillandi, fyndinn,
skemmtilegur og alltaf með smá
penge i lommen.
Ég hef stundum velt valdi
kvenna fyrir mér. Hvar það raun-
verulega liggur. Hvítur karlmaður
ku víst vera valdamesta skepna
jarðarinnar. Sumir þykjast sam-
mála þessu en halda því um leið
fram að þeir séu oft strengja-
brúður kvenna sem gera allt á bak
við tjöldin. Svona eins og þegar
hin fagra Hallgerður kom Gunnari
í tómt rugl út af húskörlum og osti.
Ég hef engar kenningar um þetta
baktjaldamakk kynsystra minna
en hins vegar hefur mér sýnst að
ofsafallegar konur hafi nánast und-
antekningarlaust, raunverulegt
vald yfir flestum karlmönnum. Og
þær þurfa ekki einu sinni að vera