blaðið - 22.07.2006, Page 26

blaðið - 22.07.2006, Page 26
26 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 blaðið tíska tiska@bladid.net Stóra þakkarskuldin „Ég veit ekki hver hannaði háa hæla en allar konur skulda honum mikið,“ sagði ein allra frægasta kona síðustu alda, leikkonan Marilyn Monroe, sem hafði griðarleg áhrif á útlit fjölmargra kvenna. V. A, Tískudómar Þegar ég settist niður til að skrifa þessa grein var bara ekkert sem mér datt í hug að skrifa um, það er bara ekkert búið að koma upp í hug- ann alla vikuna - engin hugmynd að grein. Eg settist samt niður til að reyna að skrifa eitthvað en ekkert gerð- ist. Svo fór ég að hugsa um allar þessar týpur sem við íslendingar þekkjum, um vini mína og þá sem ég er að vinna með. Ég fór að velta því fyrir mér af hverju þurfum við alltaf að setja okkur inn í ein- hvern ramma og tilheyra honum? Ég nefni til dæmis, og nú nefni ég þekktustu týpur landsins; hnakka, fegurðardrottningar, Verslótýpur, lista-fólkið ,retró-fólkið, 17-liðið, allt í bland-fólkið, gotharar ,busi- ness-týpur ,klassíska fólkið, bar- bie-hommarnir, trukkalessurnar, verkamennirnir, silíkon-tútturnar, íþrótta-gellurnar og -gaurar, rokk- arar, pönkarar, heldra fólkið, mód- elin, flíspeysurnar, þeir sem vilja ekki fitta inn, gamla fólkið, skrýtna liðið, rónarnir, spútnik-týpurnar, merkja-fríkin, puma-týpurnar, útsölu-drottningar og svo mætti lengi telja. Af hverju verslum við föt eins og við gerum? Er það ekki fram- lenging á því hver við erum, hvað við höfum að segja um okkur og við þjóðfélagið? Af hverju þurfum við að klæða okkur upp í búninga til að koma skilaboðum áfram um okkur? Erum við hrædd við að ef við höfum ekki þessa búninga þá sjái fólk í gegnum gervið eða er ein- hver önnur ástæða fyrir því að við veljum okkur stíl? Hvernig væri heimurinn ef allir væru bara, segjum í alveg eins kirtlum. Enginn væri neitt frá- brugðinn hinum og fólk gæti ekki dæmt eftir því hvernig fólk er klætt. Myndum við gefa fólki meiri „sjens“ eða erum við alltaf með fyrirfram mótaðar skoðanir um fólk? Ég er svo heppinn að ég á vini í að ég held öllum þessum hópum sem ég taldi upp hér að ofan og veit þannig með vissu að þessir hópar hafa alltaf eitthvað á móti hinum. Hnakkar fatta til dæmis ekki af hverju fólk vill ekki vera snyrtilegt til fara, listatýpur fatta ekki þessa áráttu með útlitið, hefðar-liðið fattar ekki hvernig er hægt að vera flippaður í fatavali og litum, barbie- hommarnir eiga erfitt með trukka- lessurnar og öfugt og þannig gæti ég talið endalaust áfram. Með því að velja okkur dress erum við að velja okkur skoðanir og fataval okkar endurspeglar skoð- anir okkar og viðhorf okkar til lífs- ins. Þannig eru þetta í raun einkenn- isbúningar okkar sem einstaklinga og segja til um hvað okkur finnst um okkur, hina og heiminn. Fötin eru tákn um allt það sem við stöndum fyrir. Skjöldur Gillzenegger Egill Einarsson erþessi týpiski hnakki SMÁAUGLÝSINGAR blaðiða SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET Efþaö væri ekki fyrir útsauminn meö austur-evrópsku áhrifunum á efri hluta þessa fallega Chrisitan Dior kjóls væri nánast erfitt að greina af- ganginn af kjólnum og gildirþá einu um þirtuskilyröin! Á skuggsælu kveldi gæti áhorfandi freistast til aö horfa algerlega fram hjá þessum kjól frá Aslessandro DellAcqua og séð ekkert nema stúlkuna. Þessi kvenlegi og mjúki kjóll eftir Calvin Klein færir hverja konu beint aftur í fang náttúrunnar en hann ýtir undir hugmyndir um gamlar gyðjur eins og Afródítu.... Nánast á Evuklæðunum Það er greinilegt að húðlitar flíkur eru hluti af næstu tískubylgju enda má sjá þær í öllum gerðum og útfærslum á tískupöllunum um þessar mundir. Húðlitar flíkur geta verið sérlega glæsilegar á vel til hafðri konu og við fyrstu sýn virðist hún jafnvel ekki vera í neinu, nokkurs konar tilbrigði við nýju föt keisarans. Ólíkt keisaranum forðum þurfa þessar huggulegu snótir ekki að hafa áhyggjur af flæðandi fitufellingum valdníðslu og hégóma en þær bera „klæðaleysið" óvenjuvel. Hönnuðurinn Coswllo Tagliapietra tekur hér gyöjustefið skrefin lengra i sköpunarvérki innar hafi litið öðruvisi ut en þessi gyðja í upphaf- Góð ráð Að grenna sig með fötum Til að líta út fyrir að vera grennri en maður raunverulega er er mikil- vægt að vera í sama litnum að of- anverðu og neðanverðu. Við það skapast samræmd heild sem ýtir undir „hávaxna og granna" útlitið, jafnvel þó sentimetrafjöldinn nái ekki mikið yfir einn og sextíu. Lengri leggir Fótleggirnir líta út fyrir að vera lengri og grennri ef þú gætir þess að sokkabuxurnar þínar passi við pilsið og skóna. Ef pilsið er mynstrað borgar sig að finna sokkabuxur í sama.lit og er í grunninn í pilsinu. Ef skórnir eru í tveimur litum getur verið erfitt að velja skokka- buxur. Það borgar sig þó að velja hlutlausan lit eða Ijósari litinn í skónum. Það borgar sig að nota aldrei sokkabuxur sem eru dekkri en Ijósasti liturinn í skónum. Heimatilbúiö skrúbb Ertu á leið í sturtuna og áttar þið þá á því að skrúbbið þitt er búið? Það er ekki svo stórkost- legt mál því það má auðveldlega hræra saman góða jurtaolíu úr eldhússkápunum saman við gott sjávarsalt. Svo er bara að bera það á húðina og nudda með léttum hringlaga hreyfingum yfir llkamann. Munið að sneiða hjá brjóstasvæðinu. Svo er bara að skola allt saman af í sturtunni. Hreinsikremið í ísskápnum Annað gott ráð úr eldhúsinu er að nota farðahreinsi úr ísskápnum ef sá úr baðskápnum klárast. Undan- renna, jógúrt og jafnvel rjómi eru Ijómandi góðir og mildir náttúru- legir farðahreinsar. Olía í húðina Svo er ekki úr vegi, svona til að skapa tilbreytingu fyrir húðina, að nota nokkra dropa af möndluolíu á andlitið eftir heitt og gott bað. Það má blanda henni saman við aðra olíu, svo sem eins og lavand- erolíu eða myntuolíu og húðin verður mjúk og geislandi. Þetta má gera nokkrum sinnum í mán- uði í stað þess að nota rakakrem. Leggjanæring Það ma auðveldlega koma í veg fyrir rakabruna á leggjunum með þvi að rakanæra þá fyrir rakst- urinn. Ein leið er að bera á þá hárnæringu og láta hana liggja á leggjunum í nokkrar mínútur. Svo er bara að raka en raksturinn verður sérlega mjúkur og leggirnir lengri mjúkir.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.