blaðið - 22.07.2006, Blaðsíða 35

blaðið - 22.07.2006, Blaðsíða 35
blaðið LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 35 Þjóðhátíðarlagið frumflutt i dag: Mynd/Jim Smart Ástfangin í þér Fyrst kom vetur svo kom vor Örstutt sumar, aftur haust Mér fannst ég alltaf vera að stíga í sömu spor Þegar þú komst inn í líf mitt sólin gegnum skýin braust Til að breyta mínu lífi þurfti þor Margir arka æviveginn eins og lest fer um sitt spor Aðra hristir lífið eins og lítið strá Sumar yfirgefa alitof snemma æsku sinnar vor Aðrar aldrei sína draumaprinsa fá Þegar allt á verri veginn fer Vindur stendur beint í fang á mér Get ég alltaf fundið skjól hjá þér Bros þitt leiðarljós til mín Við öll leiðindi er ég laus Ástfangin í þér upp fyrir haus Þetta sumar bráðum liðið Aftur kemur haustið svalt Sumarylurinn er enn í hjarta mér Og hann hitar mig í vetur Sama hvað það verður kalt Hamingjan er stundum þar sem ást- in er Höfundur Magnús Eiríksson ^ Nýja Þjóðhátíð- arlagið verður frumflutt í dag á Bylgjunni á milli klukkan n og 12. „Þetta er róleg ballaða sem er undir keltneskum, svolítið kántrí-skotnum áhrifum og heitir Ástfangin í þér,“ segir Magnús Eiríksson sem er höf- undur lagsins. „Þjóðhátíðar- nefndin kom að máli við mig og bað mig um að semja þetta lagið fyrir Þjóðhátíð í Eyjum 2006 og ég tók það að mér með glöðu geði. Þetta er mjög skemmtileg hefð og frábær há- tíð en það er ekki auðvelt verk að feta í fótspor heiðursmanna eins og Ása í Bæ og Oddgeirs Kristjánssonar enda er ég ekk- ert að reyna það. Ég sem þetta það algjörlega eftir mínu höfði. Lagið kom fyrst og ég var bú- inn að vera að velta því fyrir mér í svolítinn tíma. Maður þarf nú að gera það, velta þessu svolítið fyrir sér svo að útkom- an verði góð. Síðan samdi ég textann sem fjallar um það ei- lífa viðfangsefni ástina," segir Magnús. Engin samkeppni Það er áralöng hefð fyrir því að samin eru sérstök lög sem tileinkuð eru Þjóðhátíð- inni. Fyrsta Þjóðhátiðarlagið er af mörgum talið Setjumst að sumbli sem samið var fyr- ir hátíðina árið 1933 en það er eftir Oddgeir Kristjánsson og textinn eftir Árna úr Eyjum. „I fyrra var samkeppni um Þjóð- hátíðarlagið en það var ekkert af þeim lögum sem komu inn í samkeppninni nógu góð að okk- ar mati. Þá gripum við til þess ráðs að biðja Hreim úr Landi og sonum og Vigni úr írafári að búa til lag. Þeir gerðu það og var það mjög vel heppnað . í ár ákváðum við því að hvíla keppnina aðeins og fengum Magga Eiriks til þess að semja lagið og hann var til í það,“ seg- ir Tryggvi Már en hann situr í Þjóðhátiðarnefndinni sem vinnur nú hörðum höndum að þvi að gera Þjóðhátíðina sem flottasta. Lagið eríCogallir geta sungi með „Lagið er undir keltnesk- um áhrifum og það er ekkert minnst á Heimaklett eða svona það helsta sem hefur verið f öllum Þjóðhátiðarlögum und- anfarið. Þetta er allt öðruvísi, mjög ferskt og skemmtilegt. Ég er ekki i nokkrum vafa um að fólk á eftir að glamra þetta á kassagítarinn sinn í dalnum. Lagið er smekklega útsett, ein- falt en samt fallegt. Það byrjar í C og ég bara skora á að fólk „pikka það upp“ og byrja að æfa sig,“ segir Tómas Hermanns- son sem gefur lagið út. kristin@bladid.net NÝTT Á DVD matthew mcconaugney komin í verslanir og á leigur á DVD SAM^MYNDIR V

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.