blaðið - 22.07.2006, Qupperneq 38
38
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 blaðið
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Sérð þú um brekkusönginn i ár?
„Ég hef alltaf terið með brekkusönginn, cn cgstartaði honum fyrir30 árum
stðan. Það er þvt stórafmæli t ár. Boðið verður upp á einhver mj lög, ]ió að
mcstmegnis verði sungin eldri lögscm allirkunna. Églilakka ntikið til."
Arni Johitsen,
Eyjamaður
Þjóðhátíð íVestmannaeyjumfer
fram um verslunarmannahelgina
og er brekkusöngur á dagskrá á
sunnudagskvöldinu..
Smáborgarinn
Smáborgarinn flyt-
ur af landi brott
Smáborgarinn skilur sífellt betur þá sem
ákveða að flýja land vegna skattbyrðar og
vöruverðs. Ifyrstu skildi Smáborgarinn þetta
ekki og var uppfullur af þjóðerniskennd. Vit-
anlega á maður að sætta sig við landlð sitt.
Þrátt fyrir að allt virðist betra á hinum Norð-
urlöndunum, betra velferðarkerfi, lægri
skattbyrði, hærri tekjurog svo framvegis, þá
erlsland alltaf best í heimi.
Smáborgarinn er ekki lengur á þeirri
skoðun. Satt best að segja er hann orðinn
hundleiður á því að um leið og hann stígur
inn fyrir dyrnar á verslun er hann búinn að
eyða 2000 krónum, bara fyrir nauðsynjar.
Vlkuinnkaupin kosta hann að lágmarki
6000 krónur og það er bara fyrir tveggja
manna fjölskyldu. Enda skilur Smáborgar-
inn ekki hvernig stærri fjölskyldur hafa það
af á Islandi í dag. Smáborgarinn er á ágætis
launum en skuldar vitanlega námslán, Ibúða-
lán og sitthvað sem safnast hefur saman í
áranna rás. Ásfnum launum ætti Smáborgar-
inn því að geta lifað ágætis Iffi en það er allt
svo dýrt að Smáborgarinn veigrar sér við að
láta eitthvað eftirsér.
Steininn tók þó úr um daginn er Smáborg-
arinn leit á álagningarseðil sinn á Netinu
og í Ijós kom að hann þarf að borga hátt í
fimmtíu þúsund krónur í skatta fram að ára-
mótum. Smáborgarinn skilur ekkert í þessu.
Hann borgar sfna skatta samviskusamlega,
á frekar ódýra íbúð og skuldar álíka og með-
almaðurinn, ef ekki meira. Venjulega hefur
hann fengið lágmark 100 þúsund krónur í ág-
úst og oft mikið meira. En ekki í ár, einmitt
þegar vöruverð og bensínverð er f hæstu
hæðum.
Maki Smáborgarans þarf líka að borga tæp-
lega fimmtíu þúsund. Það eru því um 20 þús-
und krónursem Smáborgarinn og maki hans
þurfa að borga skattinum á mánuði næstu
mánuði og fyrir hvað? Fyrir að þræla og púla
8-10 klukkustundir á dag hið minnsta? Fyrir
að borga okurverð í bensfn til þess eins að
geta mætt f vinnuna? Fyrirað þurfa að borga
tugi þúsunda í hverjum mánuði til þess eins
að geta borðað? Þetta er svo sannarlega
ekki þess virði. Næsta skref Smáborgarans
er að velja hvert hann flytur og Noregur fær
mörg góð meðmæli. Hver veit nema pistill
Smáborgarans fari að birtast í Nettavisen í
Noregiá næstuvikum?
Sígaunar vestursins
„Það er afskaplega góð tilfinning að
keyra út í frelsið," segir Anna Guðrún
Jóhannsdóttir, ritari félags húsbílaeig-
enda. Á venjulegum degi er Anna Guð-
rún leikskólakennari en þegar sumarið
kemur breytist hún í húsbílaflakkara.
Þá keyrir hún út um allt land á bílnum
sem ber nafnið Farsæll.
Helgarnar hjá önnu eru yfirleitt
þannig að hún og maðurinn hennar,
Magnús Árnason, setjast upp í húsbíl-
inn og keyra út á land. Hún segir það
einstaklega skemmtilegt og
ekki skemmi fyrir þegar
þau hitta fleiri húsbílaeig-
endur og eyða með þeim
kvöldinu.
„Ef við komumst í hús
þá spilum við eða ein-
hver grípur í harmonikk-
una og tekur lagið,“ segir
Anna Guðrún um þennan
skemmtilega lífsstíl.
Hún ásamt manni sínum
eru búin að ferðast í viku núna og ætla
sér að gista í Búðardal um helgina. Þar
munu fleiri húsbílaeigendur hitta þau
og verður félagsvist spiluð um kvöld-
ið. Að sögn Önnu verður húsbíllinn
að nokkurs konar heimili þegar þau
flakka svona um. I bílnum er allt sem
til þarf, allt frá klósetti upp í eldhús.
„Það mætti segja við séum einhvers
konar sígaunafjölskylda," segir Anna
Guðrún hlæjandi. Hún og maðurinn
hennar eru búin að fara
meira eða
minna út um allt Island. Hún segist
skoða það sem vert er að skoða þegar
þau vilja skoða það. Engar kvaðir, eng-
in dagskrá sem þarf að fylgja. Hún segir
þetta yndislegan lífsstíl og það sé gott
að vera sinn eigin herra á ferðalögum.
Þau hjónin ætla að enda reisu sína
um helgina og fara heim frá Búðardal
ólíkt laginu sem söng um komuna til
dalsins.
HEYRST HEFUR...
\ hugamenn um stjórnmál
Zxættu ekki að láta Press-
una á NFS fram hjá sér fara á
morgun kl. 12.30. Þar verður
meðal annars
langt viðtal
Helga Seljan
við Ingibjörgu
Sólrúnu Gísla-
dóttur, formann
Samfylkingar-
innar, þar sem farið er vítt
yfir sviðið. Athygli vekur
að þegar grein Margrétar S.
Björnsdóttur um mögulegt
samstarf við Sjálfstæðisflokk-
inn er tekin til umræðu er for-
maðurinn frekar fráhverfur
þeim hugmyndum og tekur í
svipaðan streng og Björgvin
G. Sigurðsson, þingmaður
Samfylkingarinnar í Suður-
kjördæmi, sem telur allt betra
en íhaldið. Eins vekur athygli
að hún tekur umhverfismálin
og stóriðjuna sérstaklega upp
sem baráttumál þó Samfylk-
ingin hafi á sínum tíma stutt
álversframkvæmdirnar eystra.
Méð þessu þykir formaðurinn
gefa mjög ákveðið til kynna að
áfram skuli herjað til vinstri...
Greint var frá því í Frétta-
blaðinu á dögunum að
yfirheyrslur yfir Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni, forstjóra Baugs,
hefðu frestast
vegna sumar-
leyfa. Ekki kom
hins vegar fram
vegna sumar-
leyfa hverra.
Það er þó ekki
þannig að starfsemi Rikislög-
reglustjóra hafi lagst af yfir
sumarið, heldur var Jón Ásgeir
sjálfur í önnum og fríum
erlendis lengi vel, en þegar
hann kom heim fór Gestur
Jónsson, lögmaður hans, í
frí og þótti enginn annar, af
hinu fjölmenna lögmannaliði
Baugsmanna, nógu góður til
þess að fylgja Jóni Ásgeiri á
Skúlagötuna...
andres.magnusson@bladid.net
Flottur í formi
Leikarinn Matthew McConaughey sást fyrir skemmstu á gera æfingarnar
sína ströndinni. Matthew sem er rómaður fyrir kynþokka sinn er greinilega
í góðu formi og það er ekkert skrítið að stúlkurnar kolfalli fyrir honum.
hém? <sr lám%
„Þetta er fyrrverandi kærastinn minn."
by Jim Unger
9-28
© Jlm Ungar/dlst. by Unlted Modio, 2001