blaðið - 26.07.2006, Blaðsíða 1
FRJALST, OHAÐ & OKEYPIS!
■ IPROTTIR
Hinir íslensku Lávaröar
eru forfallnir fótboltafíklar
og flestir margreyndir
landsliðsmenn. | s(ða 22
■ MENNING
Listin er heilun og hluti
af mennskunni. Bubbi og
Tolli í spjalli við Kolbrúnu
Bergþórsdóttur. | sIða 27
167. tölublað 2. árgangur
miðvikudagur
26. júlí 2006
Glöð á gangi í suddanum
Eftir nokkra bjarta daga dró fyrir birtuna og rigning og súld hrekkti borgarbúa. Veðurstofan lofar ekki betra veðri i dag en var í gær, áframhaldandi súld og
Það sannast á þessari fjölskyldu að veðrið er hvorki betra né verra en dimmt verður. Það er svo okkar að lifa við það veður sem okkur er ætlað.
hverjum þykir. Ljóst er að ekki er ástæða til að láta liggja illa á sér þó súldi. Og það er okkar, hvers og eins, að meta hvort veðrið er gott eða vont.
Vélhjólakappi féll af hjólinu vegna grjóthruns af vörubíl:
Grjóthrun af vörubíl
slasaði vélhjólamann
■ Vélhjólamaðurinn viðbeinsbrotinn ■ Vörubílstjóri eftirlýstur ■ Hjólið mikið skemmt
EftirVal Grettisson
Vélhjólakappinn Stefán Björnsson missti
stjórn á hjóli sínu og datt þegar hann rann á jarð-
vegi sem féll á götuna af vörubílspalli. Atvikið
varð á hringtorgi í Keflavík. Formaður Ernis, Bif-
hjólaklúbbs Suðurnesja, segir óbirgðan farm geta
valdið lífshættu fyrir vélhjólamenn.
„Þetta var grjót, sandur og möl,“ segir Stefán, en
hann var að aka að hringtorginu við Víkurbraut
og Faxabraut í Keflavík á sunnudagskvöld þegar
hjólið rann undan honum. Við fallið viðbeins-
brotnaði hann og vélhjólið stórskemmdist. Stefán
var vel búinn og þakkar hann sínu sæla fyrir að
ekki fór verr.
„Það er heldur súrt að þurfa að borga fyrir
annarra manna klúður,“ segir Stefán en honum
verður gert að borga 180 þúsund krónur í sjálfs-
ábyrgð. Ekki er vitað hver bílstjórinn er og því
ekki hægt að draga hann til ábyrgðar. Samkvæmt
lögum á farmur að vera birgður með segldúk.
„Þetta getur skapað lífshættu," segir Hannes H.
Slasaður vélhjólamaður Stefán Bjömsson viðbeins-
brotnaði þegar hann féll eftir að grjót hrundi af vörubíls-
palli. Mynd/JónBjömÓlafsíon
Gilbert, formaður Ernis, ómyrkur í máli. Hann
segir það skelfilegt ef óreyndari menn lenda í svona
aðstæðum, þá getur verið mikil hætta á ferð.
Hannes vill ítreka fyrir vörubílstjórum að
birgja farminn enda sé annað lögbrot.
Hannes segist ekki þekkja til þess að vélhjóla-
menn fái á sig lausamöl þegar þeir aka á eftir
vörubílum. Hann segir að ekki séu nema örfáir
dagar síðan að steinn sem féll af vörubíl braut
rúðu í bílnum hans.
Stefán mun ekki vera eini vélhjólamaðurinn
sem hefur orðið fyrir grjóthruni af vörubílum.
Lögreglan í Keflavík hefur auglýst eftir græn-
bláum vörubíl, en bílstjóri hans varð valdur að
talsverðu tjóni á Reykjanesbrautinni í byrjun
mánaðarins. Hluti af malarfarmi sem var á pall-
inum hrundi á götuna með þeim afleiðingum að
mölin dreifðist um allt og olli töluverðum lakk-
skemmdum á þremur bílum. Telur lögreglan að
tjónið nemi hundruðum þúsunda. Frá og með
áramótum hefur tryggingafélagið Sjóvá greitt
alls 31 milljón vegna sambærilegra tjóna.
valur@bladid.net
Flugumferðarstjórar:
Segjast ekki
í aðgerðum
„Mér er ekki kunnugt um
neinar mótmælaaðgerðir
né að menn séu að boða sig
veika vegna þeirra deilna sem
við stöndum í,“ segir Loftur
Jóhannsson, formaður Félags ís-
lenskra flugumferðarstjóra. Fé-
lagið hefur nú um árabil staðið
í deilum vegna vaktafyrirkomu-
lags við Flugmálastjórn. í mars
ákvað Flugmálastjórn einhliða
að taka upp nýtt vaktakerfi.
SJASlÐU4
SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000
■ FJÖLSKYLDAN
Ástfangin og
glöð á Italíu
ra Katrín Gunnarsdóttir. Fann
ástina í afslöppuðu umhverfi (taiíu
| SfÐA 29
■ SUMAR OG GARÐUR
Aukablað um
sumarið og garðinn
fylgir Blaðinu í dag
| SIÐUR13TIL20
■ VEÐOR
Hitastigið
Það verður lítilsháttar súld S-og
V-lands, þokuloft við N- og A-
ströndina og Pjartviðri inn til lands-
ins. Hiti verður á bilinu 8-18 stig.
| SlÐA 2